Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1967, Blaðsíða 24
skulu eiga sæti í Hússtjórn aðrir
fulltrúar, eftir því sem rétt kynni'
að reynast, t.d. einn frá samtök-
um vinnuveitenda, einn frá FFSÍ,
og varamenn skulu vera jafn-
margir og tilnefndir á sama hátt.
Nú er ekki starfandi skólanefnd
í Stýrimannaskólanum, og ef svo
verður, þegar hússtjórn er skip-
uð, skal ráðherra sá, sem fer með
siglingamál, skipa í þess stað.
Annars ættu skipstjórafélögin og
stýrimannafélögin að beita sér
fyrir því, að skipuð verði skóla-
nefnd fyrir menntastofnun
þeirra, því að mínu viti er hér um
að ræða merkilegt nauðsynjamál
þeim til handa. Er óhugsandi, að
þeim ætti ekki að takast að koma
þeirri skipan á. Til þess þarf að-
eins breytingu á 17. gr. laga nr.
84,15. ágúst 1966, pg er lítt hugs-
andi, að slík lagabreyting ætti
ekki að geta flogið í gegnum hátt-
virt Alþingi.
Tveir skólar innan Sjómanna-
skólans heyra undir yfirstjórn
Samgöngumálaráðuneytisins, það
eru Stýrimannaskólinn og Mat-
sveina- og veitingaþjónaskólinn.
En yfirstjórn Vélskólans heyrir
undir Menntamálaráðuneytið. —
Yf irstj órn S j ómannaskólabygg-
ingarinnar mun heyra undir Sam-
göngumálaráðuneytið. — Málefni
þessara allra skóla, sem og bygg-
ingarinnar, heyra undir sama
ráðherra í núverandi ríkisstjórn,
Gylfa Þ. Gíslason. En þannig
er það ekki alltaf. T.d. þar áður
heyrðu málefni Stýrimannaskól-
ans Matsveina- og veitingaþjóna-
skólans og byggingarinnar undir
Hannibal Valdimarsson ráðherra,
en málefni Vélskólans undir
sama ráðherra og nú.
Ekki veit ég hvort það þarf
lagabreytingu til að koma á
þeirri skipan mála, er ég hér að
framan legg til að gerð verði. Þó
hef ég ástæðu til að ætla að ráð-
herra hafi heimild til að koma
henni á með reglugerð. Þetta þarf
ekki mikillar athugunar við, og
ætti ekki að tefja málið í fram-
kvæmd.
AÐ ENDINGU ÞETTA: Til
þess að jafna þann ágreining, er
66
B. S. R. B.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinii
tuttugu og fimm ára
SigurSur Thorlacíus,
fyrsti form. handalagsins.
Þriðjudaginn 14. febrúar var
þess minnst að Bandalag starfs-
manna ríkis og bæja hefði verið
stofnað þann dag fyrir 25 árum.
Stofnendur bandalagsins voru 14
félög opinberra starfsmanna með
samtals 1545 félagsmönnum, en á
þessum merkisdegi eru innan
bandalagsins 28 sambandsfélög
með samtals 5800 félagsmenn.
Stjórn bandalagsins hafði síð-
degisboð inni á afmælisdaginn að
Hótel Sögu, og var þar boðið öll-
upp hefur komist milli nemenda
Sjómannaskólans, — sérstaklega
varðandi mötuneyti og starfsemi
þess, er eins og málum er nú
komið, heppilegast að slikt verði
rætt innan slíkrar hússtjórnar,
svo og mun nýskipuð hússtjórn
vera betur til þess fallin að leysa
hin ýmsu óleystu mál byggingar-
innar, sem og skólalóðarinnar,
heldur en gömulskipuð nefnd með
margar eyður. Það ætti að vera
föst regla að endurskipuleggja
allar nefndir og ráð. Því endilega
um meðlimum bandalagsins og
velunnurum, m.a. var tveimur úr
stjórn Farmanna- og fiskimanna-
sambandsins boðið á þetta af-
mælisboð og mættu þar þeir Böðv-
ar Steinþórsson, ritari FFSl og
Guðmundur Jensson, framkv.stj.
þess. Um 800 manns munu hafa
sótt bandalagið heim á þessum
afmælisdegi, auk opinberra starfs-
manna sjálfra og fulltrúa FFSl,
sem áður er getið mátti þar sjá
fulltrúa frá Alþýðusambandi ís-
lands, Stéttasambandi bænda,
sem öll sendu bandalaginu blóm
eða skeyti. Þar voru ráðherrar,
alþingismenn, borgarstjóri og
borgarfulltrúar Reykjavíkur, —
ýmsir bæ'jarstjórar og bæjarfull-
trúar utan Reykjavíkur. Gestir
fóru að streyma úr því kl. var
15,30, og eftir að gestir höfðu
heilsað formanni og varafor-
mönnum BSRB, tóku á móti þeim
ungar blómarósir, er afhentu
hverjum gesti eintak af blaði
bandalagsins, Ásgarði, er sér-
staklega var gefið út vegna þessa
afmælis.
Afmælisboðið setti formaður
BSRB, Kristján Thorlacíus með
stuttri ræðu, síðan tók til máls
Magnús Jónsson, fjármálaráð-
herra, er afhenti bandalaginu lóð
eilífðarnefndir. — Að sjálfsögðu
verður það ætíð álitamál, um hve-
nær skipta eigi, en eftir áratug
er málið sannarlega komið á um-
ræðustig, hvað þá eftir meira en
aldai’fjórðung.
Framanritaðar hugleiðingar eru
hér settar fram af gefnu tilefni,
en með fullri vinsemd og virð-
ingu til allra þeirra er hlut eiga
að máli.
M/s. Esju 20. febr. 1967.
Böðvar Steinþórsson.
VÍKINGUR