Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1967, Side 27
SíldarleitarskipiÖ Árni Friðriksson sjósett
*
Avarpsorð Egyerts G. Þorsteinssonar ráðherra, flutt í Lovestoft 1. marz 1967
Heiðruðu gestgjafar, góðir
gestir!
Ég fagna því af heilum hug að
fá tækifæri til að vera viðstaddur
þann merkisatburð í f iskveiðimál-
um þjóðar minnar, sem hér hefur
átt sér stað í dag.
Sjósetning fyrsta skipsins, sem
sérstaklega er smíðað fyrir vís-
indamenn okkar í sj ávarútvegi,
markar vissulega tímamót í sögu
þjóðar, sem á afkomu sína að
stærstum hluta, undir veiði og
vinnslu sjávarafla, eins og raun
er á um íslendinga.
Síldarafli undanfarinna ára,
hefur verið ein styrkasta stoð í
aflamagni og verðmæti fyrir ís-
lenzkt efnahagslíf, og fjáröflun
til smíði þessa skips varð af þeim
ástæðum möguleg að sjómenn, út-
gerðarmenn og vinnslustöðvar
buðust til að greiða ákveðið gjald
af síldarafla er nota skal til
greiðslu á andvirði skipsins, en
ríkissjóður skal hinsvegar á-
byrgjast greiðslur á réttumgjald-
dögum.
Fyrrgreindir aðilar vilja með
þessum hætti sýna í verki vilja
sinn til að búa vísindamönnum
okkar á þessu sviði þá aðstöðu,
að þeir geti gegnt hlutverki sínu
á sem beztan og raunhæfastan
hátt, landi og þjóð til heilla. —
Sú reynsla, sem þegar er fengin
af störfum þeirra, er því undir-
staðan að fjárframlögum og þar
með byggingu skipsins.
Ekki verður á neinn einstakl-
ing hallað þó sagt sé að sá vís-
indamaður úr þessum hópi, sem
fremst hefur nú á síðari tímum
gengið og sannfært útgerðaraðila
og eigendur vinnslustöðva um
hagnýtt notagildi vísindanna í
síldveiðum, er Jakob Jakobsson,
fiskifræðingur. Smíði skipsins er
því um leið viðui’kenning á störf-
um Jakobs Jakobssonar.
* *
Vel fer á því að skip þetta hef-
ur verið skírt ÁRNI FRIÐRIKS-
SON, eftir hinum nýlátna fiski-
fræðingi, sem Jakob hóf störf sín
hjá og hefur verið lokið miklu
lofsorði á störf hans á sama
starfssviði.
Árni Friðriksson hlaut alþjóða-
viðurkenningu fyrir störf sín í
þágu fiskirannsókna, sem sést af
því að hann var framkvæmda-
stj óri Alþj óða-hafrannsóknaráðs-
ins í 11Y2 ár auk mikilvirkra
starfa í heimalandi sínu áður, um
áratugaskeið.
* *
Það er oftast meira rætt og rit-
VÍKINGUR
69