Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1971, Síða 2
by, undir stjórn Ted Little og
Einars Olgeirssonar, bróður Þór-
arins Olgeirssonar, eins kunn-
asta togaraskipstjóra í Eng-
landi um tugi ára.
Með Einari og Páli tókst frá
upphafi náið samstarf og vinátta.
Var það mjög að líkum að Einar
hafi fljótt fundið hvað í piltinum
bjó af dugnaði og hæfileikum.
Árin liðu og í hörðum skóla
millistríðsáranna gekk Páll í
gegnum þau stig reynslu og þekk-
ingar, er krafizt var til skip-
stjórnar á brezkum togurum, en
sá tvíþætti skóli var sízt kröfu-
minni en hér heima.
Oft segir fátt af einum Is-
lendingi í lífi og starfi erlendis.
Ekki hvað sízt þegar hatrömm
styrjöld geisar.
I öndverðri síðustu heims-
styrjöld var Páll Aðalsteinsson
orðinn skipstjóri á brezkum
togara.
I þeim átökum komst nafn hans
í heimsfréttir, en það var árið
1941, þegar hann lagði skipi sínu,
sem orðið hafði fyrir árás úti
fyrir Englandsströnd, að öðru
sökkvandi skipi, festi taugar í
það og hélt því marandi þar til
tekizt hafði að bjarga áhöfninni,
17 manns, upp í skip sitt.
„Ég ætla að bjarga þessum
mönnum“.
Þessi orð hans munu í minn-
um höfð meðal sjómanna, því
jafnvel á þessum tímum þótti
þetta djarft afrek og var Páll
sæmdur M. B. E. heiðursmerki
frá brezku stjórninni.
Páll sigldi áfram öll styrjald-
arárin á brezkum togurum.
Stundaði hann veiðar hér við
land öll ófriðarárin og slapp
giftusamlega gegnum allar hætt-
ur, sem í leyni lágu á slíkum slóð-
um, en þær voru taldar einna
hættulegastar á N.-Atlantshafi.
Árið 1947 var Páll skipstjóri
á „King Sol“, einum stærsta og
glæsilegasta togara frá Englandi
í þá tíð.
I marzmánuði það ár vann
hann annað björgunarafrek, sem,
enda þótt á friðartímum væri,
þótti umtalsvert.
Hann var að veiðum á Eld-
eyjarbanka, þegar færeyska
skútan „Havfruven" var í nauð-
um stödd skammt þar frá; með
vélarbilun á reki í vaxandi stormi
og stórsjó. .Það var kl. 6 að
morgni.
Páli tókst að koma vírum á
færeyska skipið og draga það
undir Eiðið. Var þá brostið á
ofsaveður.
Kl. 9 um kvöldið slitnaði drátt-
arvírinn. Var Havfruven þá um
20 metra undan Klettinum og
ekki annað sýnna en hún ræki
upp og brotnaði í spón, en fyrir
snarræði og dirfsku tókst hon-
um og skipshöfn hans, sem var
að venju einvalalið, að bjarga
skipi og áhöfn þess úr bráðri
lífshættu.
Þess má geta að stýrimaður
hjá Páli var þá annar íslending-
ur, Karl Sigurðsson, ættaður frá
Hafnarfirði.
Hann varð síðar skipstjóri á
brezkum togurum og þótti mikill
aflamaður.
I mörg ár var Páll skipstjóri
á togaranum Andanesi frá Grims-
by. Það var mikið happaskip
undir stjórn hans og skaraði
fram úr að aflabrögðum, og var
til þess tekið að hann gat ávallt
valið sér úrvalsmenn í allar stöð-
ur á skipi sínu.
Árið 1962 lét Páll Aðalsteins-
son af skipstjórn eftir 30 ára
sjómennsku.
Hann var þá í blóma lífsins,
hálffimmtugur og hafði, eins og
að líkum lætur unnið sér hald-
mikið traust þeirra, sem fremst-
ir stóðu í brezkri togaraútgerð,
en hann hafði þá jafnframt sjó-
mennskunni verið virkur þátt-
takandi í stjórn Rinovia, sem ís-
lenzkum sjómönnum og útgerð-
armönnum er gamalkunnugt.
Mörg og fjölþætt verkefni biðu
Páls í landi.
Kom brátt í ljós, að hann gjör-
þekkti allt, sem að útgerð laut og
átti manna auðveldast með að
leysa flóknustu vandamál, bæði
í markaðsmálum, útbúnaði skip-
anna og ráðningu sjómanna.
Hann varð einn af fram-
kvæmdastjórum Boston Deep Sea
Fisheries Ltd., en sú togaraút-
gerð varð, með sameiningu fleiri
fyrirtækja, sú stærsta og yfir-
gripsmesta í Bretlandi og senni-
lega í heimi.
Spannaði starfsemi B. D. S. F.
yfir flestar fiskiborgir á austur-
strönd Bretlands.
Páll hafði m. a. allan veg og
vanda af allri erlendri umboðs-
þjónustu og afgreiðslu þessa risa-
fyrirtækis.
Svo þekktur og virtur sem Páll
var í starfi sínu meðal útlend-
inga, munu íslenzkir sjómenn og
útgerðarmenn eiga honum einna
stærstu þakkarskuld að gjalda.
Góður heimsborgari er ávallt
sannur sonur sinnar ættjarðar.
Hið mikla og margþætta starf,
sem hann innti af höndum fyrir
íslenzk útgerðarfélög og íslenzka
sjómenn verður seint að fullu
metið eða þakkað, kom þar hvar-
vetna fram að þessir aðilar stóðu
hjarta hans og huga næst, enda
er þeirra eftirsjá mikil við frá-
fall hans.
Eftir að íslenzkir fiskibátar
hófu fyrir nokkrum misserum að
VlKINGUE
2