Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1971, Side 3
landa afla sínum í brezkum höfn-
um, bættist á Pál, auk afgreiðslu
íslenzku togaranna, mikið og
vandasamt hlutverk.
Ekki skoraðist hann undan því,
þótt eðlilegt hefði mátt telja, svo
störfum hlaðinn, sem hann var.
Lagði hann sig jafnt fram þar,
sem annarsstaðar, í smáatriðum
jafnt sem stórum.
Var ekki að ástæðulausu, að
þegar í upphafi að bátarnir hófu
að sigla með aflann báðu allir
skipstjórarnir um fyrirgreiðslu
Páls. Allir íslenzkir sjómenn
þekktu hann, ef ekki persónulega,
þá í gegnum starf hans.
Páll Aðalsteinsson var maður
mjög yfirlætislaus í fasi og allri
framkomu.
Hann vann sér traust við fyrstu
viðkynningu, vegna persónu-
leikans, sem hann bar.
Hann var glaðlyndur að eðlis-
fari og viðmót hans einkenndist
af góðvilja og nærgætni.
Hann virtist alltaf vera að
hugsa um að gera annara hlut
sem beztan og greiðvikni hans
voru lítil takmörk sett. 1 þeim
efnum gerði hann sér engan
mannamun.
1 þau 40 ár, sem ég þekkti Pál
bar okkar fundum oft saman, þó
allt of sjaldan, að mér fannst.
Það var ávallt mikil tilhlökkun
bundin við að hitta hann; og, að
mér fannst, ávinningur.
Ég held, að enginn hafi nokkru
sinni gengið af hans fundi öðru-
vísi en með meiri eða minni
þakklætiskennd í huga, þó ekki
væri fyrir annað en að finna vin-
gjarnlegt viðmót og kærkomin
hollráð, sem hann átti í svo rík-
um mæli.
Páll Aðalsteinsson var kvænt-
ur Svanhildi Guðmundsdóttur,
Valdimars Jónssonar skipstjóra
frá Bíldudal. Hún er systir Guð-
nýjar ekkju Ágústs Ebenezers-
sonar, sem látinn er fyrir nokkr-
um árum, en hann var þekktur
togaraskipstjóri frá Grimsby um
áratugi.
Svanhildur er glæsileg og góð
kona, eins og hún á kyn til.
Þótti hjónaband þeirra Páls
mikið jafnræði, enda hamingju-
samt. Eignuðust þau tvö börn,
Sigríði 19 og Aðalstein 16 ára.
Heimili þeirra að Humberston
Court þótti fyrirmynd að glæsi-
brag í hefðbundnum stíl, og gest-
risni, innanlands sem utan.
Eg og fjölskylda mín átti þar
ávallt sönnum vinum að mæta
og nutum þar margra gleði-
stunda.
En nú ríkir djúp sorg í þeim
ranni.
Mr. Parkes aðalforstjóri
Boston Deep Sea fórust svo orð
í blaðaviðtali eftir fráfall Páls.
„Ég get ekki með orðum lýst
hversu mikið áfall andlát hans er
fyrir okkur. Þekking hans á starf-
seminni var svo alhliða. Hann
naut svo mikillar virðingar allra
þeirra, sem störfuðu að útgerð-
inni“.
„Þeir, sem sakna hans mest
munu vera skipstjórar og stýri-
menn hjá félagi okkar. Þeim þótti
öllum svo vænt um hann, bæði
sem persónu og ráðgjafa um
fiskveiðar. Hann skildi þá manna
bezt“.
Andlátsfregn Páls var sam-
stundis tilkynnt öllum veiðiflota
félagsins.
Með svo snöggu fráfalli Páls
Aðalsteinssonar, er nánustu ást-
vinum hans; eiginkonu og tveim
efnilegum börnum þeirra, búin
mikil lífsreynsla.
I harmi þeirra mun þeim, í
framtíðinni, lýsa geisli endur-
minninga af þeirri lífsmynd, er
hann skóp þeim, svo og öllum, er
þekktu hann og nutu mannkosta
hans fram á síðustu stund.
Islenzk sjómannastétt og þjóð-
in öll harmar fráfall Páls Aðal-
steinssonar.
Ættjörðin kveður einn af sín-
um mætustu sonum.
VlKINGUR
3