Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1971, Side 26
Af fjarlægum sltiöura
Jón Steingrímsson.
Feneyjar, 30. okt. 1970.
Heill og sæll ritstjóri.
Á sínum tíma var ég að hvetja
aðra að hrista af sér slenið og
skrifa eitthvað í blaðið okkar, en
menn voru hálf tregir og ég er
ekkert orðinn betri sjálfur. Að
gefnu tilefni hripaði ég eftirfar-
andi smágreinar:
„Moggann nýjan á miðin“.
Væri ekki vel til fallið að
krydda svolítið hátíðahöldin á
sjómannadaginn með kröfu-
göngu ? Það er eflaust margt sem
hetjur hafsins vanhagar um hina
daga ársins. Mér var því að detta
í hug, að fyrirsögn þessarar
greinar gæti verið ein af kröfun-
um
Bráðum eru tíu ár liðin síðan
„Víkingurinn“ birti grein eftir
mig, þar sem ég var að lýsa „fac-
simile-“ eða telefax tækjum, sem
þau eru nú almennt kölluð og
voru þá tiltölulega nýtilkomin.
Þau hafa ekki enn náð neinni út-
breiðslu að ráði hér í norðurálfu,
en fyrir ári síðan voru Japanir
komnir með þau í 2000 fiskiskip
og um 1000 flutningaskip. Mér
hafa líka borizt dagblöð að heim-
an og ég sé að það er að komast
skriður á endurnýjun og fjölg-
un togaraflotans, þess vegna
finnst mér að það sakaði ekki að
26
menn færu að athuga með þessi
tæki, hvort þau geti ekki líka orð-
ið Islendingum að gagni.
Svo ég lýsi telefax lauslega
aftur, þá eru það sjálfritandi eða
myndandi tæki, sem sett eru í
samband við venjulega góða
skipamóttakara og skila veður-
kortunum yfir viss svæði. Nú eru
50 stöðvar dreifðar víða um lönd,
sem senda út oft á dag veðurkort
af flestum höfum heims. Til þess
að hafa full not af þeim þurfa
menn auðvitað að kunna að lesa
úr þeim. Það er fljótlært og geri
ég ráð fyrir að það sé kennt í
stýrimannaskólum og námskeið-
um samtímis veðurfræðinni. Það
er ekki svo lítið hagi'æði að geta
séð fyrir um vindátt, sjólag, öldu-
hæð og ísrek bæði fyrir farmenn
og fiskimenn og gerir þeim jafn-
vel kleift að sneiða hjá óveðrum.
Telefax er eins konar ljósprent-
un, sem skilar myndunum á þurr-
um pappír. Þess vegna má einnig
hæglega senda úrklippur úr dag-
blöðum, það er ekki nauðsynlegt
að senda auglýsingarnar til sjós,
þótt sumum þyki mest varið í
þær, þeir geta skoðað þær, þegar
að landi kemur. Á þennan hátt
kemur Mogginn í spilið og getur
vart þægilegri fréttaþjónustu.
I Japan er sérstök fréttastofa
í sambandi við aðal fréttastofn-
frá Jóni Steingrímssyni.
unina, Kyodo Press. Þeir hafa
gríðar sterka stöð fyrir telefax
sendingar til skipanna. Sending-
arnar nást jafnvel í Evrópu, t. d.
hefur Raytheon skrifstofan í
Kaupmannahöfn oft tekið á móti
skýrum sendingum þaðan. Það er
samt sérstofnun sem sendir til
fiskiskipanna sem heitir Jiji
New.
Reytheon fyrirtækið, sem að-
allega framleiðir vandaðar rat-
sjár, framleiðir einnig telefax
tæki til þess að tengja við mót-
takara. Gerð JAX 21 AR er þó
innbyggð í móttakara og kostar
líka um $3000. Þar er sjálfvirk-
ur mynda start og stopp rofi,
sem vinnur stanzlaust. Það þarf
ekki annað en að velja samband
með takkakerfi, þá er myndstill-
ingin sjálfvirk. Stöðin í landi sér
um að setja allt í gang og engu
þarf að kvíða, því að 60 m papp-
írsrúlla fylgir.
Mér er ekki kunnugt um hvað
japönsku tækin kosta. Þau eru
sjálfsagt mun ódýrari en þau
amerísku, en nóg er af skelegg-
um og snarborulegum bissnes-
mönnum í Reykjavík, sem geta
fljótlega veitt allar upplýsingar
þar að lútandi. Mér kemur í hug
vinur minn Venni frá Húsavík,
sem nú er stassioneraður á
Grandagarði og hefur útvegað
iii 11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 i 111111111111111 m
E Víkingur þakkar tilskrifið og hvatninguna svo og allar gömlu góðu grein- =
E arnar. Vitað er um marga íslenzka sjómenn í förum á erlendum skipum. =
E Blessaðir, miðlið okkur hér heima á Fróni einhverjum fróðleik um upp- =
= lifelsi ykkar og nýjungar, sem bera fyrir augu. E
E Sjómannablaðið Víkingur myndi mjög gjarnan vilja birta slíkar fréttir og E
E þannig leitast við að tengja þjóðernisbönd okkar og félagsleg tengsl. •— Ö. S. j=
fTllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllMIMIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIlllllllTl
VÍKINGUR