Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1971, Side 50
Hjá fiskimönnum
á Kolaskaga
Á HINUM gríðarstóra hrein-
dýrabúgarði „Túndra“ á Kola-
skaga, en á honum er þriðji hluti
allra hreindýra á skaganum, þ. e.
um 40.000 dýr, er nokkur hópur
fiskimanna. Þeir eru aðeins 11
að tölu, en þeir sjá ekki einungis
stærsta þorpi héraðsins, Lovosero
og þorpum þar í kring fyrir nýj-
um og ísuðum fiski heldur senda
þeir afganginn til vinnslu á fisk-
vinnslustöð í Múrmansk.
Tvö tonn af fiski á dag.
Stærsti bær, sem byggður er
af Löppum á Kolaskaganum, heit-
ir sama nafni og vatnið sem hann
stendur við, Lovosero, en það
vatn er eitt af stærstu vötnum á
Kolaskaga, yfirborð þess er 224,5
km2.
Vatnið er auðugt af fiski en
fiskimenn staðarins hafa um 30
ára skeið stundað veiðar á öðru
minna vatni, Seidosero, sem ligg-
ur þar skammt frá. Þetta er afar
skiljanlegt, þeir kjósa heldur að
stunda veiðar á minna vatninu,
sem er ennþá auðugra af fiski,
heldur en á hinu stóra, djúpa og
oft á tíðum úfna Lovosero, en þar
er aðeins hægt að gera út á stór-
um bátum.
Seidoséro-vatnið nær yfir 20
kílómetra svæði og er umlukið
skógi vöxnum hæðum. Niðri við
vatnið standa þrjú timburhús.
Eitt þeirra er íbúðarhús fiski-
mannanna, annað baðhús en hið
þriðja er íshús og birgðageymsla.
Þetta er aðsetur fiskimannanna
frá búgarðinum „Túndra“. Þeir
eru ellefu talsins og veiða hér allt
árið. En þeir eru ekki slitnir úr
tengslum við heimili sitt. Þeir
taka alltaf öðru hvoru frídag í
Lovoséro.
Allir stunda þeir veiðarnar
nema Stefán Kírílof, en hann er
63 ára að aldri og eldar ofan í
hópinn og sér um heimilisstörf-
in. Veiðarnar eru stundaðar á
þrem mótorbátum með 25 hest-
afla vélum. Venjulega eru netin
lögð tvisvar á dag, kvöld og
morgna: lögð eru þrjú nylon-net
300 metrar að lengd með 30 mm.
möskvastærð. í einni lögn, en hún
stendur í 2—3 klst., veiða þeir
milli 300 og 400 kg. af fiski. Þetta
er aðallega silungstegundin „sig“,
sem vegur 0,5—2 kg. en um það
bil 20% af veiðinni er urriði.
Samyrkjubúið sér fiskimönn-
unum fyrir bátum og veiðarfær-
um, benzíni, hlífðarfatnaði og
útvarpstæki, sem þeir hlusta á
veðurfregnir í. Á þessu ári hefur
samyrkjubúið byggt nýtt bað-
hús og hesthús handa fiskimönn-
unum. Þeir þurfa nauðsynlega á
hestum að halda til að koma veið-
inni frá vatninu í íshúsið. Sér-
staklega eru hrossin nauðsynleg
að vetrarlagi, þegar erfitt er að
koma við bílum vegna frosta og
fannfergis.
Þegar veiðin hefur verið tekin
úr netunum, er farið með hana í
íshúsið. Þar er fiskurinn flokk-
aður og settur í 30 kg. kassa og
síðan ísaður. Daglega er fiskur-
inn síðan fluttur að bökkum Lo-
voséra, en þangað kemur mótor-
bátur eftir honum frá þorpinu.
Hluti fisksins fer síðan í verzlan-
ir, matsölustaði og veitingahús
í þorpinu Lovoséra og einnig er
hann fluttur flugleiðis í nærliggj-
andi þorp. Afganginn flytjá svo
flutningabílar með kæliútbúnaði
til fiskiðjuversins í Múrmansk.
Árið um kring er farið til veiða
á Seidosera, og yfir veturinn er
þetta mjög miklum erfiðleikum
bundið. Vegna veiðanna er þá
nauðsynlegt að opna nokkurn
hluta vatnsins og gæta þess, að
þar frjósi ekki aftur. f þessar
vakir eru síðan netin lögð. Sér-
Fiskimenn frá samyrkjubúinu Túndra
hafa um 25 ára skeið veitt ýmsar teg-
undir silungs í Seidosero.
fræðingar frá Haf- og fiskifræði-
stofnuninni í Múrmansk hönn-
uðu fyrir fiskimennina sérstaka
tegund af borum til að gera vak-
ir á ísinn með. Með slíku tæki er
hægt að gera vök í ís, sem er allt
að hálfur metri á þykkt. Fiski-
mennirnir hafa undir höndum
tvö slík tæki og með þeim er hægt
að gera hæfilega stóra vök til að
leggja netin í á 40 mín.
Meðalaldur fiskimannanna er
45—50 ár. Þeir hafa næstum allir
stundað veiðar á Seidcsera meir
en 15 ár. Yngstur fiskimann-
anna er Vanja Danilof. Hann er
átján ára gamall. Faðir hans og
frændi eru einnig í hópnum.
Vanja stundar þessar veiðar að-
eins yfir sumarmánuðina. Eftir
að hann lauk skyldunámi hóf
hann nám í Fiskiðnskólanurn í
Arkangelsk. Hann stundar þar nú
nám í þriðja bekk og í framtíð-
inni ætlar hann að verða fisk-
vinnslufræðingur.
Fiskimennirnir hér hafa 300—
350 rúblur á mánuði í laun. Þeir
fá sérstaka uppbót á laun sem
nemur 40% fyrir að vinna á svo
norðlægum slóðum og 10% kaup-
hækkun fyrir hvert hálft ár, sem
VlKINGUR
234