Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1994, Page 7

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1994, Page 7
___________________________________ VÍKINGUR Albert Ólafsson HF 39: ríkissaksóknari að ljúka athugun á málinu Sigurjón Magnús Egilsson Ríkissaksóknara hefur verið falið að athuga hvort ástæða sé til opinberrar rannsóknar vegna meints skjalafals átgerðar Alberts Ólafssonar HF 39, áður KE 39. Það er að beiðni Sjó- mannasambandsins sem saksóknari hefur málið til meðferðar. Ástæða þess að leitað er til ríkissaksóknara er su að fyrir liggur að útgerðin gaf ekki UPP rétt söluverð á lönduðuni afla. Pyrir liggur að gögn frá Fiskmarkaði ^afnarfjarðar sýna að útgerðin lét áhöfnina ekki hafa rétt gögn við fppgjör. Það sést á samanburði við uPpgjör til áhafnarinnar. Beiðnin um rannsóknina nær einungis til júlímán- uðar í fyrra. Það segir ekkert um það Sem gerst hefur eftir þann tíma. Samkvæmt upplýsingum Braga Stein- arssonar vararíkissaksóknara sendi embætti saksóknara málið til sjá- varútvegsráðuneytisins til umsagnar. ^fagi Steinarsson segir málið komið Ur ráðuneytinu og stutt sé þar til embættið afgreiði það frá sér. Þegar ^ragi var spurður hvers vegna málinu hefði verið vísað til ráðuneytisins Svaraði hann því til að slíkt væri oft gert. Það er sama á hvaða veg embætti saksóknara afgreiðir málið, það kem- Ur ekki í veg fyrir að farið verði með Þetta kvótabrasksmál fyrir almenna dómstóla. Samkvæmt upplýsingum blaðsins skeikar um 29 þúsund krónum á laun- um háseta í júlí frá því sem honum bar að fá fyrir það verð sem greitt var fyrir aflann og á því verði sem lesa mátti út úr þeim gögnum sem útgerðin fram- vísaði. Deilan um helgarfríin Það er ekki langt síðan Albert Ólafs- son HF, þá KE 39, var í fréttum þar sem skipstjórinn á bátnum neitaði áhöfninni um lögbundið helgarfrí. Þá var fimm mönnum sagt upp störfum á bátnum, þar sem hann lá við bryggju á Djúpavogi. Þrír mannanna neituðu að vinna uppsagnarfrestinn en skipstjór- inn vísaði tveimur mönnum frá borði. Þeir hafa ekki fengið greidd laun í uppsagnarfresti og hafa ákveðið að sækja þau laun í gegnurn dómstóla. Að beiðni útgerðarinnar var haldið sjópróf vegna þessa máls. Fluttu útgerðina frá Keflavík til Hafnarfjarðar Það er nánast sama við hvern er talað, allir virðast sammála um að sér- staklega erfitt sé að eiga samskipti við útgerð Alberts Ólafssonar. Báturinn hefur verið gerður út frá Keflavík, en ekki alls fyrir löngu ákvað útgerðin að flytja sig til og varð Hafnarfjörður fyrir valinu. Beztablaðið í Keflavík átti í desem- ber 1993 viðtal við útgerðarmennina, hjónin Hrönn Torfadóttur og Óskar Ingibergsson, og skipstjórann, Karl Óskarsson, en hann er sonur hjón- anna. Þar svara þau því hvers vegna þau ákváðu að flytja útgerðina frá Keflavík. Það er Óskar sem segir eftirfarandi: „Eg vil láta fylgja þessu að ég vara útgerðarmenn við að koma með skip sín hingað lil Keflavíkur á meðan þessi verkalýðsforysta er við völd.“ Þá er Óskar spurður hvort þau séu flutt með útgerðina frá Keflavík. Óskar svarar: „Já, við erum flutt burt, löndum í Hafnarfirði, en erum ekki búin að umskrá bátinn ennþá, en það getur farið svo að við gerum það og við komum ekki til baka með skipið.“ Því má bæta við að eftir að viðtalið fór fram hefur báturinn verið umskráður og Hafnarfjörður er nú heimahöfn Alberts Ólafssonar. Blaðamaður Beztablaðsins spurði hvað þau græddu á flutningunum til Hafnarfjarðar, þar giltu jú sömu sam- ningar og í Keflavík. Hrönn svarar: „Kristján Gunnarsson ræður engu í Hafnarfirði." Kristján Gunnarsson er formaður Verkalýðs- og sjómanna- félags Keflavíkur og nágrennis. Karl skipstjóri bætti við: „Við erum ekkert í stríði við verkalýðshreyfinguna, þetta snýst bara um persónuna Kristján Gunnars- son. Hann þarf ekkert að haga sér svona.“ 7

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.