Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1994, Side 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1994, Side 14
VÍKINGUR Bræludagar Oveðursdag í febrúar hringdi Sjómannalaðið Víkingur um borð í nokkra báta og skip og tók þann sem svaraði tali. Hér á eftir fara viðtölin Baldur Kristinsson, skipstjóri á Rifsnesi SH 44: Við erum meðal þeirra örfáu sem róa með bala Á Rifsnesinu SH 44 frá Rifi voru þeir að draga á línu á Breiðafirði þegar hringt var um borð. Baldur skipstjóri Kristinsson svaraði í símann. „Það gengur mjög ilia, við erum með fast verð fyrir fiskinn og fiskum bara okkar kvóta og erum því ekki í neinu kvótabraski. Við erum sex um borð og sex í landi, við erum á bala— bát, einir af þessum örfáu geirfuglum sem ennþá halda sig við að róa með balana. Þetta er búið að vera mjög dapurt eftir verkfallið, það kom smáreytingur fyrstu tíu dagana, en síðan hefur þetta verið alveg dautt. Við bíðum eftir loðnunni og vonumst til að geta farið á netin í kjölfarið á henni. Það er samkeppni um loðnuna því hún laðar að annan fisk. Annars veit ég ekki hvað það gengur miklu lengur að gera út á balabát, samkepp- nin við vélabátana er orðin það mikil að það er orðið erfitt að komast að. Það stefnir allt í að sjómennskan verði ómanneskjulegri og það er sífellt meira lagt á áhafnir bátanna. Bala- veiðarnar eru þægilegar að því leyti að við getum lagt á nóttunni og dregið að morgni og farið í land að sofa. Á vélabátunum verða menn að vera úti þetta frá hálfum mánuði upp í þrjár vikur. Annars erum við heppnir með það að hér er stutt á miðin og það gerir túrana styttri hjá okkur sem búum við Fjörðinn, en auðvitað er eitthvað af aðkomubátum sem hafa lengra heim að sækja, það eru samt aðallega trillur sem landa hérna á mörkuðunum,“ sagði Baldur Kristinsson þegar rætt var við hann hálfgerðan óveðursdag í febrúar. Jóhann á Andvara VE 100: Steikur upp á hvern dag Það er leiðindaveður um land allt. Blaðamaður á Víkingnum hringir um borð í Andvara VE 100. Jóhann svarar og byrjar á að segja að hann sé lítið ánægður með tíðina. „Við erum að eltast við rækju í Skagafjarðardýpi en hún hefur ekkert sýnt sig af viti. Þetta hefur verið hálfgerður eltingaleikur, sumir eru heppnir en aðrir óheppnir. Annars er ágætisveður núna og við erum ekki á leið í land, að minnsta kosti ekki strax. Við eigum að landa 25. febrúar á Akureyri og þangað til höldum við áfram að leita. Það eru þrettán manns um borð og góður andi þrátt fyrir gæftaleysið, maturinn á auðvitað sinn þátt í því, enda steikur upp á hvern dag,“ sagði Jóhann. Magnús á Arnarfellinu: Tólf til tuttugu hafnir á viku „Við erum að lesta á Ströndinni og búumst til ferðar vestur á Firði og síðan norður á Húsavík. Það hefur svo sem verið nóg að gera í flutningunum. Farmurinn hefur aðallega verið fiskur, þó svo annað dót þvælist alltaf með. Við erum með þetta tólf til tuttugu viðkomur í viku. Það er helst veðrið sem er leiðinlegt, sérstaklega svona fjörugt eins og það hefur verið undan- farið. Við erum tíu um borð og andinn hefur verið alveg ágætur og vel farið um okkur. Annars höfum við lítinn tíma til mannlegra samskipta þar sem við gerum lítið annað en að vinna og sofa,“ sagði Magnús, stýrimaður á Arnarfellinu, þegar Víkingurinn hringdi í hann einn óveðursdag í febrúar. 14

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.