Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1994, Síða 40
VÍKINGUR
Lífeyrissjóður sjómanna:
/
Astæðulaust að hafa
áhyggjur af sjóðnum
- segir Bjarni Sveinsson, fulltrúi FFSÍ í stjórn
Bjarni Sveinsson að ræða lífeyrismál á þingi Farmanna- og
fiskimannasambands Islands.
„Ekki hafa miklar
áhyggjur af sjóðnum.
Ef verið er að tala um
vandamál liggur það
í því að Lífeyrissjóð-
ur sjómanna lofar
betri elli- og örorku-
bótum en aðrir sam-
bærilegir sjóðir, sem
sagt við erum of
flottir á því. En rekst-
ur og ávöxtun fjár er
í góðu lagi. Við get-
um borið okkur sam-
an við hvern sem er
hvað það varðar,“
sagði Bjarni Sveins-
son, skipstjóri og
fulltrúi Farmanna-
og fiskimannasam-
bands Islands í stjórn
Lífeyrissjóðs sjó-
manna.
„Það eru komnir sextán mánuðir frá
því að bæði FFSI og Sjómannasam-
bandið samþykktu að breyta þyrfti 60
ára reglunni, þannig að sá sem byrjar
að taka lífeyri 60 ára verði búinn að fá
jafnmikið áttræður og sá sem byrjar
að taka lífeyri 65 ára.“
Lagfæringar á
örorkubótunum
„Núna erum við að vinna að lag-
færingu á örorkubótaþættinum þar
sem ljóst er að menn með litla örorku
geta í vissum tilfellum komist á
verulega háar bætur. Það getur ekki
hafa verið tilgangur sjóðsins, En í
þessum lagfæringum munum við
kappkosta að skerða alls ekki þá sem
virkilega þurfa á okkur að halda.“
En Bjarni, dugar það eitt að breyta
60 ára reglunni, ásamt fyrirhuguðum
breytingum í örorkunni, til að sjóð-
urinn geti staðið við skuldbindingar
sínar?
„Já, ég tel að ef okkur tekst að ná
fjögurra prósenta ársávöxtun á heild-
arinnstæðu sjóðsins verði það hægt.
Síðan er hægt að deila um hvort raun-
hæft er að miða við
fjögurra prósenta
ávöxtun eða ein-
hverja aðra tölu.“
Þegar skýrsla Versl-
unarráðs um stöðu
lífeyrissjóða var bor-
in undir Bjarna stóð
ekki á svörum.
Hann sagðist efast
um heilindi þeirra
sem að skýrslunni
unnu. Jafnframt sag-
ðist hann gruna þá
um að ágirnast sjálfir
þá fjármuni sem
sjóðirnir ættu. Olík-
legt væri að þeir sem
að skýrslu Versl-
unarráðs stóðu bæru
hag almennings fyrir
brjósti.
Bjarni getur tekið undir þá
gagnrýni, sem kom fram í skýrslunni,
að sjóðirnir séu of margir og að þeir
minnstu séu óhagkvæmir vegna
smæðarinnar.
„Sem dæmi má nefna að Frjálsi
lífeyrissjóðurinn, sem á ekki nema rétt
rúmar 100 milljónir í eigið fé, er
meðal minnstu sjóða. Hann er rekinn
af Landsbréfum, en meðal annars var
fulltrúi frá þeim í nefndinni sem
gagnrýndi lífeyrissjóðakerfið. Til við-
miðunar má geta þess að eigið fé
Lífeyrissjóðs sjómanna er um 18
milljarðar króna.“
40