Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1994, Page 57

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1994, Page 57
VÍKINGUR Samningar um fiskverð hjá ÚA: Ekki sanngjarnt að borga öðrum meira en okkur - segir Árni Ingólfsson skipstjóri, en ÚA hefur greitt hærra verð til annarra skipa en sinna eigin. Það hefur valdið óánægju „Þeir eru nú hættir í viðskiptum við Prosta á Grenivík, en ég veit til þess að ÚA borgaði þeim hærra verð en Þeir borguðu okkur heimamönnum. Auk þess fengu þeir tonn á móti tonni, sem gerir samanburð enn óhagstæð- an,“ segir Arni Ingólfsson, skipstjóri hjá Útgerðarfélagi Akureyringa. Stjórnendur ÚA og áhafnir á skip- l'm félagsins hafa samið um nýtt fiskverð. Sem dæmi ná nefna að þorskurinn hækkaði úr 58 krónum í 60. Vitað er að ÚA hefur greitt mun hærra verð til aðkomubáta og þeirra sým hafa verið að fiska með kvóta ÚA. Þetta hefur valdið óánægju meðal ahafna á togurum félagsins. „Eðlilega hafa menn talað um þetta, það er að sjálfsögðu ekki sanngjarnt að borga aðkomusjómönnum hærra verð fyrir fiskinn. Mér skilst að þeir séu að hætta þessu núna, þeir eiga ekki það mikinn kvóta að þeir geti þetta lengur. Við höfum ekki kvartað formlega yfir þessu, en þetta umræðu- efni hefur komið upp. ÚA átti þannig viðskipti við þá fyrir sunnan á síðasta ári, en þá var lítið um þorsk og okkur gekk illa. Samt endaði það með því að við þurftum að hætta að veiða þorsk- inn þar sem kvótinn var búinn. “ Stefnir í svipað núna? „Núna veiðum við nánast engan þorsk, hann er rétt aðeins tekinn með. Við höfum þurft að einbeita okkur að öðrum tegundum, ýsunni og karf- anum. Ufsinn hefur varla látið siá sig.“ Þið fóruð út í aðgerðir 1990, stefnir í slíkt nú? „Ég á ekki von á því, við náðum fram 15 prósenta markaðstengingu 1990 og það er út af fyrir sig ágætt. Það mætti auðvitað hækka þessa tengingu í 20 prósent," sagði Arni Ingólfsson að lokum. r.i KEMHYDRO- salan Sími 91-12521, Reykjavík Fax 91-12075 ^ C-treat 6 gegn gróður- og skelmyndun í sjólögnum. ★ Fueltreat 710 Svartolíubætiefni. -fr DM 8:1 ok 410 Tæringarvarnar- efni fyrir gufukatla. lÉr Cooltreat 651 Tæringarvarnar- efni fyrir díselvélar. Breskir Olíu-og rafskautakatlar, katlaþjónusta. 57

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.