Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1994, Blaðsíða 62
VÍKINGUR
Stýrimannaskólinn í Vestmannaeyjum:
Niðursveifla
„Það er svakaleg niðursveifla núna,
aðallega vegna þess hversu skipum
hefur fækkað mikið en líka vegna
þess að nú eru margir stýrimenn starf-
andi sem hásetar og skipstjórar sem
stýrimenn. Þá hefur tilkoma Dalvík-
urskólans einnig sín áhrif,“ segir Frið-
rik Ásmundarson, skólastjóri Stýri-
mannaskólans í Vestmannaeyjum, en
skólinn er einn af þremur á landinu
sem bjóða upp á stýrimannanám.
„Nú eru aðeins sex nemendur í
skólanum og við kennum bara 2. stig,
því þeir voru of fáir sem sóttu um 1.
stigið. I fyrra voru þrettán á 2. stigi og
sex á 1. stigi, Það er rosaleg fækkun á
milli ára, en það er lítið við því að
gera nema kannski að vonast eftir
góðu fiskeríi,“ sagði Friðrik að lokum
og bað um kveðju til allra sjómanna.
Við getum í dag afgreitt með stuttum fyrirvara
togvindur með átaki frá 2 til 30 tonn.
Við getum útvegað hagstæð lán
til allt að 5 ára.
Afgreiðum allar vindur okkar með
HAGGLUNDS DENISON
vökvabúnaði.
VÉUVVERKSTÆÐI
SIG. SVEINB JÖRNSSON HE
SKEIÐARÁSI, 210 GARÐABÆ - SÍMI 52850 - FAX 652860
62