Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1997, Page 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1997, Page 24
Skortur á stöðugleika skipa hefur kostað fjölmörg mannslíf á undanf örnum árum SasrnundUr GuðvinsSon tók saman annað ii ídrí manns rorus Eins og fram kemur á öðrum stað í blaðinu hefur Rannsóknarnefnd sjóslysa lengi reynt að vekja athygli á því geigvænlega vandamáli sem er skortur á stöðugleika fiskiskipa. Engu að síður virtust upplýsingar þar um koma þingmönnum í opna skjöldu þegar málið kom til umræðu á Alþingi fyrir skömmu. Framkvæmdastjóri nefndarinnar, Kristján Guðmundsson, teiur að skortur á stöðuglei- ka og/eða vanþekking skipstjórnarmanna á mikilvægi stöðugleika fyrir öryggi skipsins, hafi átt mestan þátt í flestum skipstöpum á árunum 1971 til 1986, en samtals fórustl 14 menn í þeim. í greinargerð hans frá árinu 1987 segir: Samkvæmt skýrslum Rannsóknarnefndar sjóslysa fýrir árin 1971 till986 hafa farist á hafi 53 bátar og með þeim 100 menn, 6 trill- ur og með þeim 3 menn og 6 flutningaskip og með þeim 11 menn. Af þessum 53 bátum sem farist hafa á þes- sum árum er vitað um að: 29 bátar hafa farið Aðalbjörg RE 5 reynd- ist mikið happafley. á hliðina eða hvolft, 2 bátum hvolfdi vegna þess að veiðarfæri festust í botni,13 bátar fórust þar sem orsakir voru ókunnar nema hvað veður var vont, 6 bátar fengu óstöðvan- di leka og sukku, 3 bátar sukku eftir árekstur. Við nánari skoðun kemur í ljós að vitað er að 31 bátur hefur farið á hliðina eða hvolft og hefur slíkt gerst bæði í góðu og slæmu veðri. Að því er varðar þá 13 báta sem fórust án þess að orsakir sé kunnar má með nokkurri vissu telja að hluti þeirra hafi einnig farið á hliðina eða hvolft. Að framansögðu má draga þá ályktun að stöðugleiki íslenskra fiskiskipa og vanþekk- ing skipstjórnarmanna á stöðugleika skip- anna sé alvarlegt vandamál. Vegna skorts á upplýsingum um stöðuglei- ka fjölda íslenskra fiskiskipa er ekki við útgerðarmenn eða skipstjórnarmenn að sakast að öllu leyti. Er það fýrst nú á seinni árum að farið er að krefjast stöðugleikaút- reikninga fýrir fiskiskip og því er um að ræða fjölda eldri skipa sem engar eða takmarkaðar upplýsingar liggja fýrir um. Þær upplýsingar sem fýrir liggja gefa fýllstu ástæðu til að ætla að skortur á stöðugleika og/eða vanþekking skipstjórnarmanna á hve veigamikill þáttur í öryggi skipsins stöðug- leikinn er hafi átt mestan þátt í fléstum ofan- 24 Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.