Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1962, Side 3

Náttúrufræðingurinn - 1962, Side 3
Náttúrufr. — 31. árgangur — 4. hefli — 145—192. siða — Reykjavik, janúar 1962 Arnþór Garðarsson: Fugladauði af völdum netja í Mývatni Inngangur. Árin 1959 og 1960 urðu nokkur blaðaskrif um fugladauða í netj- um Mývetninga. Náttúruverndarráð taldi sér skylt að athuga þetta mál, og var það rætt á fundum ráðins. Auk þess var leitað álits veiðimálastjóra og formanns fuglafriðunarnefndar um málið, svo og náttúruverndarnefndar Suður-Þingeyjarsýslu. Árangurinn af þess- um athugunum varð sá, að náttúruverndarráð taldi brýna nauðsyn til að leitazt yrði við að ráða bót á þessu vandamáli. Ráðið treysti sér þó ekki til að bera fram ákveðnar tillögur til úrbóta, fyrr en fram hefði farið rannsókn á málavöxtum. Varð því úr, að náttúru- verndarráð réð mig til að annast slíka rannsókn. Athuganir á fugladauða í netjum fóru fram á tímabilinu 5. júlí —30. ágúst 1960. Alls voru teknar skýrslur af 24 aðiljum um fugla- dauða og silungsveiði í 257 umvitjunum. Auk þess var öðrum upp- lýsingum safnað, svo sem um netjafjölda, netjagerð, hvar lagt var o. s. frv. Áherzla var lögð á að fá sem flesta þeirra fugla, sem dráp- ust í netjunum, handa Náttúrugripasafni íslands, og er nú unnið að rannsóknum á þeim, einkum fæðuatliugunum. Jafnframt kann- aði ég fuglalífið á Mývatni og í nágrenni þess, eftir því sem ástæður leyfðu. Ég hafði bát og utanborðsmótor til afnota allan tímann, sem ég dvaldist við vatnið. í fyrstu hagaði ég söfnun upplýsinga þannig, að ég hitti menn við veiðar úti á vatninu. Þar sem þessi aðferð reyndist of seinleg og á margan hátt erfið, tók ég brátt þann kost að fara á milli bæja og eiga tal við veiðibændur. Síðari aðferðin er auðvitað ekki eins örugg, en ég tel þó, að yfirleitt hafi verið rétt skýrt frá um netjafugla. Hins vegar álít ég skýrslur um silungs-

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.