Náttúrufræðingurinn - 1962, Page 19
NÁTTÚRUFRÆÐINGURI NN
161
TAFLA 7.
Hrafnsönd (Melanitta nigra).
Kyn- og aldursskipting netjafugla á tvö aðalsvæði Mývatns.
Age nml sex composition of black scoter caught in nets in two main areas
of Aiývatn.
Syðri-Flói Bolir Allt vatnið (The whole lake )
Fullorðnir karlfuglar ($ ad.) 1 1
Fullorðnir kvenfuglar (9 ad.) 8 10 18
Ókyngreinclir (Unsexed ad.) 3 1 4
Litlir dúnungar (Small downies) .. . 5 3 8
Stálpaðir dúnungar (Large doumics) 1 58 59
Fiðraðir ungar (Feathered young) . . 10 55 65
Fleygir ungar (Fledged young) .... 1 8 9
Aðrir ungar (Other young) 5 5
Óákvarðað (Undetermined) 1 1
Alls (Total) 29 141 170
aðra fugla. 19 þessara l'ugla voru kyngreindir, og var aðeins 1
þeirra karlfugl. Þessi mikli rnunur á netjadauða kynjanna stafar
eflaust af því, að steggjunum fer að fækka á Mývatni þegar um
miðjan júlí, eins og áður er getið, og má vera, að meira drepist
af þeint fyrri hluta sumars. Ég hafði auk þess spurnir af hrafns-
andarsteggjum, sent komu lifandi í net og var sleppt aftur, en
vafasamt er þó að treysta slíkum upplýsingum fullkomlega. Enda
þótt heildarveiði fullorðinna hrafnsanda sé e. t. v. ekki ýkjamikil,
hefur hún þó líklega mun meiri áhrif á stofninn en virðast mætti
við fyrstu sýn, þar eð hér virðist að langmestu leyti vera um kven-
fugl að ræða.
Mjög mikið veiddist af ungum eða alls 146 (86,4% af allri hrafns-
andaveiðinni). Eins og sést í töflu 7, náðust ungarnir að langmestu
leyti á Bolum. Mest veiddist af stálpuðum dúnungum (59) og fiðr-
uðum ungum (65). Veiði hrafnsandarunga skiptist því mjög svipað
og duggandarunga. Þó veiddust hlutfallslega enn Ileiri ungar á
Bolum.