Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1953, Page 12

Náttúrufræðingurinn - 1953, Page 12
122 NÁTTCRUFRÆÐINGURINN um, má geta þess, aS fremsta orkideustöð Englands á þessu sviði, sem hefur gert Odontoglossum-rækt að sérgrein sinni, tekur um 10 ster- lingspund að meðaltali fyrir hverja Odontoglossumplöntu, sem hún selúr fullorðna. En mér hefur verið sagt, að þessi orkideustöð hafi gefið 10.000 sterlingspund fyrir sérstaklega fallegt Odontoglossum crispus, sem sé ættmóðir þeirra plantna, sem nú er verið að selja. 1 Mið-Ameríku eru líka Odontoglossum, og meðal þeirra er Odonto- glossum grande, sem hefur stór, gulbrún-flekkótt blóm og vex við heldur meiri hita en frændur þess úr Andesfjöllunum. 5. Cymbidium eru tiltölulega hávaxnar plöntur, sem flestar vaxa á jörðinni í tiltölulega rökum jarðvegi. Aðal-heimkynni þeirra er í Asíu, einkum uppi í Himalayafjöllum, og einnig i Burma og Austur- Indlandi (Assam). Þessum orkideum var lengi vel tiltölulega lítill gaumur gefinn, þótt sumar tegundir, eins og t. d. C. eburneum, væri bæði fagrar og ilmandi. Eftir að annað helzta orkideufinna Englands fann austur í Assam C. insigne, sem er sérlega fallegt og tilraunir voru gerðar með krossfrjóvgun á því og öðrum Cymbidium-tegund- um, hefur Cymbidium-ræktun farið sívaxandi. Nú er svo komið, að varla nokkur orkideutegund á jafnalmennri hylli að fagna og Cymbi- dium. Hin nýju afbrigði, sem ræktuð hafa verið í seinni tíð, eru öll- um blómum fegri, jafnvel þótt Cattleyae séu meðtaldar. Auk þess hafa Cymbidium marga góða kosti. Þau blómstra að vetrarlagi, þegar minnst er um blóm, sum jafnvel fyrir jól. Þau blómstra mikið, svo að ekki er sjaldgæft að sjá yfir 10 blóm á einum stöngli, og þegar plantan er orðin 5—10 ára fjölgar blómastönglunum með hverju ári. Það þarf ekki stóra né gamla plöntu til að bera 50—100 blóm. Þá hafa Cymbidium það fram yfir flest önnur blóm, orkideur meðreikn- aðar, að blómin halda sér vikum og mánuðum saman. Á plöntunni heldur Cymbidium sér iðulega í 3 mánuði, og afskorið heldur það sér vanalega 3—6 vikur. Það er því sérstaklega vel til flutninga fallið. Cymbidium-markaður virðist fara stöðugt vaxandi. Þrátt fyrir öll þau ósköp, sem ræktuð eru af Cymbidium í Bandaríkjunum, eru Cymbidium einnig flutt þangað inn frá öðrum löndum, einkum Hol- landi, Belgíu og Ástralíu. Sérstaka aðstöðu hafa Ástralíumenn að þessu leyti. Þar blómstra Cymbidium einnig að vetrinum, þ. e. þeg- ar við höfum sumar, og þar sem þau eru ekki blómstrandi í Amer- íku um það leyti, eru þau flutt inn í stórum stíl frá Ástralíu til Ameríku á sumrin og haustin. Heildsöluverðið, sem Ástralíumenn fá, er 50 cent fyrir hvert blóm, og er fljótséð, að hver planta gefur mikið af sér, þegar hún ber 20—100 blóm, eins og algengt er. Þessvegna

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.