Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1953, Page 13

Náttúrufræðingurinn - 1953, Page 13
ORKIDEU-RÆKT 123 eru Cymbidium dýrar plöntur. 1 Ameríku er algengt að borga 50 —200 dollara fyrir góða plöntu. 6. Oncidium stendur nærri Odontoglossum og vex á svipuðum stöðum, einnig uppi í Andesfjöllum og í Mið-Ameríku. Flest þeirra mynda langa blómstöngla með fjölda blóma á, sem eru tiltölulega lítil, en geta verið yfir 100 blóm á einum stöngli, sem hjá sumum verður allt að átta metrar á lengd. 7. Dudrobium Miltonia eru orkideur, sem þegar maður sér þær fyrst, líkjast mest fínni tegund af stjúpmæðrum. Þær eru víða seldar sem pottablóm. Eru aðallega ættaðar frá Suður-Ameriku. Miltonia og önnur tegund, sem lítið er ræktuð út af fyrir sig, Cochlioda, hafa ver- ið notaðar til að krossfrjóvga með Odontoglossum og þannig hafa skap- azt nýir og sérlega fallegir kynblendingar, sem ganga undir nöfn- unum Odontonia og Odontioda. Bæði Odontonia og Odontioda taka iðulega fram þeim fegurstu Odontoglossum, svo að þessar kynbætur hafa orðið til þess að framleiða enn fegurri Odontoglossum, þvi að kynblendingarnir líkjast allir miklu meira Odontoglossum heldur en hinu foreldtinu. Kynbætur 1 þessu sambandi er rétt að minnast á kynbætur þær, sem gerðar hafa verið á ýmsum orkideutegundum, til þess að fá fram fegurri og fullkomnari blóm. Það var fyrst í Englandi, að enskur læknir, Dr. Harris, fékk verkstjórann hjá Veitch, sem þá var mesta orkideustöð Englands, Mr. Dominy, til að reyna að krossfrjóvga tvær líkar orki- deutegundir innbyrðis. Þetta tókst. Plantan frjóvgaðist og eftir 5 ár blómstraði nýtt afbrigði, sem kallað var Calanthe Domini. Síðan var óspart tekið til að krossfrjóvga allar mögulegar tegundir og leið ekki á löngu unz það gerbreytti allrí orkideurækt. Einkum tókst vel að krossfrjóvga Laeliur og Cattleyur og hefur siðan verið framleitt svo hundruðum og þúsundum skiptir af Laelio-cattleyum, eins og þessir kynblendingar eru kallaðir. Seinna var gerð tilraun með orkideu, sem líkist nokkuð Laelium og Cattleyum og nefnist Brassavola. Einkum hefur verið notuð Brassa- vola Digbyana, sem hefur stóra og skrautlega vör. Þannig hafa verið framleiddar fjöldamargar nýjar tegundir af Brasso-cattleyum, Brasso- laelium og Brasso-laelio-cattleyum. Meðal þessara nýju kynblendinga eru margar af fegurstu orkideunum, sem nú eru til. Ég hef áður minnzt á kynblendingana af Odontoglossum, sem hafa gefið mörg fegurri afbrigði en áður hafa þekkzt. Þó veit ég ekki,

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.