Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1972, Side 26

Náttúrufræðingurinn - 1972, Side 26
146 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN a b 2. mynd. Sarsdrekka. a) yfirborð hægri og vinstri skeljar. b) hluti af yfirborðinu stækkaður þrítugfalt (3). eitt eintak úr ýsu, sem veidd var út af Hornafirði. Öll voru eintök- in fersk að útliti, og hefur tegundin örugglega verið lifandi, þegar ýsan gleypti hana. Sarsdrekkan er útbreidd við Noregsstrendur allt norðan frá Var- angursfirði. Hún finnst einnig við Vestur-Evrópu suður um Azor- eyjar og inni í Miðjarðarhafi. Dauð eintök tegundarinnar höfðu áður fundizt við vesturströnd íslands innan 400 metra dýptarlínu. Kuðungar (Prosobranchia) Körtuætt Cyclostrematidae Cyclostrema basistriatum (Jeffreys) Djúpkarta. Kuðungurinn traustur, livítur að lit og ógagnsær. Hyrnan frem- ur há. Vindingar fjórir, allkúptir. Grunnvindingurinn stór. Saum- urinn djúpur. Naflinn opinn. Yfirborðið með töluverðum gljáa, slétt nema setan, en á henni eru 8—10 hringlaga rákir umhverfis naflagatið. Tvö eintök, annað með brotinn munna, komu úr ýsu-

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.