Fréttablaðið - 14.08.2009, Page 4

Fréttablaðið - 14.08.2009, Page 4
4 14. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR NEYTENDAMÁL „Ég vil fá þetta burt. Það hefur lengi verið skoð- un Neytendasamtakanna að það eigi að banna forverðmerktar vörur. Stærsti ágallinn er sá að þær halda uppi verði. Því fyrr sem þær verða bannaðar, því betra,“ segir Jóhannes Gunnarsson, for- maður Neytendasamtakanna. Gísli Tryggva- son, talsmaður neytenda, segir löngu tímabært að stöðva for- verðmerkingar á matvöru. E i n s o g Fréttablaðið greindi frá í gær rekur Sam- keppniseftirlitið nú stjórnsýslu- mál sem bein- ast að smásölu- verslunum og hópi framleið- enda og birgja í kjötframleiðslu. Rannsóknin miðar að því að leiða í ljós hvort brotið hafi verið gegn samkeppn- islögum með forverðmerkingum. Helstu matvörur sem verðmerktar eru með þessum hætti eru unnin kjötvara og ostar. Aðspurður segir Gísli að verð- merking með þessum hætti sé ekki í samræmi við lög. „Það er löngu tímabært að þetta verði stöðvað.“ Hann vill árétta að þegar í apríl 2006 hafði hann að eigin frumkvæði samband við Samkeppniseftirlitið og fékk stað- fest að skoðun á samræmdri verð- lagningu framleiðenda á matvöru væri í gangi. „Ég lét í ljós þá skoðun mína að málið lyti að broti á samkeppnis- lögum. Ég taldi þetta skipta máli þar sem ég reyni sem talsmaður neytenda að aðhafast síður í málum ef aðrir, til dæmis til þess bær stjórnvöld, eru að vinna í mál- inu. Ég lét þó í ljós þá skoðun að forverðmerking hefði mikil áhrif á hegðun matvöruverslana og þar með hagsmuni neytenda.“ Jóhannes Gunnarsson telur að forverðmerkingar séu ekki ólög- legar, ólíkt skoðun talsmanns neytenda, Neytendastofu og ASÍ, sem í nýjustu verðkönnun sinni setur fram þá skoðun að forverð- merking sé bönnuð og hamli eðli- legri verðsamkeppni, eins og segir í skýringum við könnunina. „Ég held að samkeppnisyfir- völd væru ekki að velta vöngum yfir því hvort eigi að stoppa þetta eða ekki, ef þetta væri klárlega bannað. Sé þetta ólöglegt hefði þetta einfaldlega verið bannað fyrir löngu, enda hindrar þetta að fá virka verðsamkeppni á þessar mikilvægu vörur,“ segir Jóhann- es. SE hefur bent á að tíu til fimm- tán prósent matvöru séu forverð- merkt. Veltan var sjö til tíu millj- arðar króna á verðlagi í maí 2008. svavar@frettabladid.is Það er löngu tímabært að þetta verði stöðvað. GÍSLI TRYGGVASON TALSMAÐUR NEYTENDA Talsmenn neytenda fordæma verðmerkingar Formaður Neytendasamtakanna er þeirrar skoðunar að forverðmerkingar á matvöru eigi ekki að viðgang- ast. Talsmaður neytenda segir verðmerkingarnar ekki í samræmi við lög og tímabært að stöðva þær. Í skýrslu Samkeppnis- eftirlitsins nr. 1/2008, um viðskiptasamn- inga birgja og annað samstarf fyrirtækja á matvörumarkaði, er fjallað sérstaklega um forverðmerkingar birgja fyrir mat- vöruverslanir. Þar kemur eftirfarandi fram: - Forverðmerkingar og þau sam- skipti sem tengjast þeim kunna að fela í sér aðgerðir sem ganga gegn banni við samráði fyrirtækja eða misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Því var hins vegar ekki slegið föstu án frekari rannsóknar, sem stendur nú yfir. - Könnun sem SE gerði gaf til kynna að þessar forverðmerkingar takmarki samkeppni. Verðmunur á þessum vörum milli verslana er margfalt minni en eðlislíkra vara, sem ekki eru forverðmerktar. - SE beindi þeim tilmælum til birgja og matvöruverslana að ganga úr skugga um að samningar þeirra feli ekki í sér samkeppnishindranir. NIÐURSTÖÐUR SAMKEPPNISEFTIRLITSINS GÍSLI TRYGGVASON JÓHANNES GUNNARSSON FORVERÐMERKTAR VÖRUR Helstu vörur sem eru forverðmerktar eru unnin kjöt- vara og ostar. Á S B R Ú - S Í M I : 5 7 8 4 0 0 0 - W W W . K E I L I R . N E T Allar nánari upplýsingar á www.keilir.net. FLUGFREYJU-/ÞJÓNANÁM Örfá sæti laus VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 31° 25° 23° 19° 22° 25° 23° 19° 19° 24° 23° 30° 29° 33° 20° 26° 20° 18° Á MORGUN Hæg austlæg eða breytileg átt. SUNNUDAGUR Hæg suðauðstlæg átt. 14 12 11 11 12 10 12 12 15 14 16 8 1 3 2 3 1 4 3 6 5 8 2 14 13 1211 15 12 13 12 15 12 FÍNT HELGARVEÐUR Veðrið um helgina verður keimlíkt því sem hefur verið hjá okkur síðustu daga, yfi rleitt hægviðri, úrkomulítið og milt. Það verður fremur létt yfi r landinu og gæti víða orðið bjart með köfl um, en það er þó hætt við stöku skúrum á víð og dreif einkum inn til landsins. Elísabet Margeirsdóttir Veður- fréttamaður BANDARÍKIN, AP Bandaríkjastjórn hefur undanfarið boðið eigendum gamalla bílskrjóða að skila þeim til förgunar en fá í staðinn pen- inga til að kaupa sér nýja eyðslu- minni bifreið fyrir. Ekki er þó víst að þessi fram- kvæmd skili tilætluðum árangri í öllum tilvikum. Dæmi eru til þess að eigendur skrjóðanna noti pen- ingana til þess að kaupa sér stóra jeppa og pallbíla, sem engan veg- inn geta talist annað en eyðslu- frekir á eldsneyti. Stjórnvöld hafa enn ekki gefið upp tölur um hve margir hafa notað peningana á þennan hátt, frekar en að kaupa sér litla spar- neytna bíla. - gb Snjallræði Bandaríkjastjórnar: Virkar ekki allt- af sem skyldi KORSÍKA, AP Sextán ára piltur á eyjunni Korsíku í Miðjarðarhafi hefur játað að hafa skotið foreldra sína og tíu ára tvíburabræður sína aðfaranótt þriðjudagsins, meðan þau voru sofandi. Hann sagði frænda sínum frá verknaðinum á miðvikudag og saman fóru þeir á lögreglustöð, þar sem pilturinn lýsti atburðun- um og sagði hvar hann hefði falið riffil, sem hann notaði til verksins. Lögreglan fann síðan líkin fjög- ur í rúmum sínum. - gb Sextán ára piltur á Korsíku: Skaut foreldra sína og bræður PENING FYRIR SKRJÓÐINN Stundum eru peningarnir notaðir til að kaupa stóra jeppa og pallbíla. FRÉTTABLAÐIÐ/AP KJARAMÁL Lögreglumenn sem og slökkviliðs- og sjúkraflutninga- menn kolfelldu nýgerða kjara- samninga í atkvæðagreiðslu í gær. Skrifað hafði verið undir samkomulag við ríki og sveitar- félög í síðasta mánuði um fram- lengingu og breytingar á gildandi kjarasamningum hjá Landssam- bandi slökkviliðs- og sjúkraflutn- ingamanna. Slökkviliðsmenn felldu samn- inginn við sveitarfélög með 85 prósentum greiddra atkvæða. Á kjörskrá voru 252 en 179 greiddu atkvæði, sem er 71 prósents þátt- taka. Sjúkraflutningamenn felldu einnig sinn samning við ríkið með um 85 prósentum greiddra atkvæða. Kosningaþátttaka hjá sjúkraflutningamönnum var 39 prósent. Lögreglumenn felldu einnig nýgerða kjarasamninga með 90,5 prósentum greiddra atkvæða. Kjarasamningar aðildarfélaga BSRB við ríkið voru framlengdir í byrjun júlí til 30. nóvember á næsta ári. Samkomulagið var gert í kjölfar svonefnds stöðugleikasátt- mála sem gerður var í lok júní. - kh Lögreglumenn og slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn: Felldu nýgerða kjarasamninga FELLDU KJARASAMNINGINN Lögreglumenn felldu nýgerða kjara- samninga í póstkosningu. SAMGÖNGUMÁL Mjóafjarðarbrú í Ísafjarðardjúpi verður lík- lega ekki opnuð fyrr en fyrstu vikuna í september. Áður hafði verið vonast til þess að hægt yrði að opna hana þegar í næstu viku. Verið er að ljúka við að steypa bríkurnar á brúnni og mála kantana á henni, að því er fram kemur á fréttavefnum bb.is. Ef allt gengur eftir verður hún opnuð í byrjun september, en ekki verður farið í lokafrá- gang á jarðvegi fyrr en útséð er um hvenær hægt verði að opna brúna. - þeb Mjóafjarðarbrú í Ísafirði: Brúin opnuð í september GENGIÐ 13.08.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 233,3937 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 125,9 126,5 209,35 210,37 179,54 180,54 24,113 24,255 20,905 21,029 17,592 17,696 1,3073 1,3149 196,07 197,23 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.