Fréttablaðið - 14.08.2009, Síða 6

Fréttablaðið - 14.08.2009, Síða 6
6 14. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR ALVÖRU SÁLFRÆÐITRYLLIR D Y N A M O R E Y K JA V ÍK www.bjartur.is Ný stjarna á himni reyfarahöfunda Þýðandi: Bjarni Jónsson BEINT Í 3. SÆTI METSÖLULISTA EYMUNDSSON D Y N A M O D Y N A M O M R E Y K J R E Y K JA V A V AA ÍKÍ EFNAHAGSMÁL Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í gær að stýrivöxtum bankans yrði haldið óbreyttum enn um sinn. Vextirnir verða tólf prósent fram að næsta vaxtaákvörðunardegi, 24. september næstkomandi. Nefndin hafði áður vonast til þess að hægt yrði að lækka stýri- vextina. Þar sem gengi íslensku krónunnar hefur ekki styrkst var ákveðið að halda þeim óbreytt- um, sagði Svein Harald Øygard seðlabankastjóri á fundi með fjöl- miðlafólki í gær. Peningastefnunefndin telur góðan árangur hafa náðst á ýmsum sviðum sem skipti máli til að auka tiltrú á íslensku efnahagslífi. Til dæmis hefur ríkisstjórnin lagt fram lang- tímaáætlun í ríkisfjármálum, endurskipulagning bankanna er langt komin, og lánasamningar hafa verið gerðir til að styrkja gjaldeyrisvaraforða Seðlabank- ans, sagði Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri í gær. Tafir á samþykkt Icesave- samningsins hafa valdið því að lán sem Alþjóðagjaldeyris- sjóðurinn og vinaþjóðir hafa lofað að veita, og ætlað er að styrkja gjaldeyrisvaraforðann, hafa ekki enn verið veitt. Þetta hefur tafið styrkingu krónunnar, en veikt gengi hennar er ein aðal ástæða þess að stýrivextir voru ekki lækkaðir. Peningastefnunefndin varar raunar við því að til stýrivaxta- hækkunar geti komið í haust. Til standi að hefja afnám gjaldeyris- hafta, með því að leyfa innflæði nýs fjármagns, þann 1. nóvem- ber næstkomandi. Nefndin muni forðast að gera nokkuð sem gæti skapað efasemdir um staðfast- an ásetning hennar að stuðla að stöðugleika krónunnar og lítilli verðbólgu. „Peningastefnan getur aukið tiltrú á efnahagslífið, sem er forsenda þess að gjaldeyrishöft verði afnumin. Til vaxtahækkana getur komið af þessum sökum ef aðstæður kalla á slíkt,“ sagði Arnór. Í Peningamálum Seðlabankans, sem komu út í gær, kemur fram að sérfræðingar bankans spá því að gengi krónunnar styrkist nokkuð, og fram á mitt ár 2012 verði gengi evru á bilinu 157 til 175 íslenskar krónur. Spá Seðlabankans fyrir gengi krónu á móti evru gekk raunar ekki eftir fyrir annan ársfjórð- ung yfirstandandi árs. Í maí spáði bankinn því að evran yrði um 157 krónur, en raunin varð tæplega 172 krónur. brjann@frettabladid.is Styrking krónunnar tefst enn vegna Icesave-málsins Stýrivextir verða óbreyttir að minnsta kosti fram til 24. september samkvæmt ákvörðun peningastefnu- nefndar Seðlabankans. Ekki tekst að styrkja gjaldeyrisvarasjóð vegna Icesave-málsins. Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að halda stýrivöxtum óbreyttum er bein afleiðing leðju- slagsins um Icesave-samninginn á Alþingi, segir Gylfi Arnbjörnsson, formaður ASÍ. Hann segir ákvörðunina dapurlega, en ekki koma á óvart miðað við aðdraganda. Þetta sé birtingarmynd þess sem sé að ger- ast á Alþingi, þar sem umræða um Icesave hafi dregist í átta vikur. Það tefji styrkingu krón- unnar, sem aftur tefji lækkun stýrivaxta. Ákvörðun peningastefnu- nefndar sýnir í hvers konar sjálf- heldu vaxtastefnan og gjaldeyris- höftin eru komin, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann segir litla von til þess að krónan styrkist meðan gjaldeyrishöft séu við lýði, enda séu þau skila- boð til umheimsins um að krónunni sé vantreyst. Vilhjálmur segir Icesave aðeins eitt af þeim atriðum sem tefji fyrir því að vaxtalækkunarferli geti hafist. Meginatriðið sé að ríkisstjórnin og seðla- bankinn finni leiðir til að losna við gjaldeyrishöftin. Það má til dæmis gera með því að bjóða erlendum aðilum sem eiga krónur að fá skuldabréf í evrum frá Seðlabankanum og rík- inu, segir Vilhjálmur. Þeir vilji verja sig gegn mögulegri gengislækkun krónunnar eftir að losað verður um gjaldeyrishöftin og þetta verði til þess að slík lækkun verði skammvinn. - bj Forsvarsmenn ASÍ og SA segja það vonbrigði að stýrivextir hafi ekki lækkað: Leðjuslagur á þingi tefur fyrir VEXTIR Ekki reyndist mögulegt að lækka stýrivexti vegna lágs gengis íslensku krónunnar, sagði Svein Harald Øygard seðlabanka- stjóri á fundi í Seðlabankanum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA EFNAHAGSMÁL, AP Óvænt tíðindi bárust af efnahagsþróun bæði Frakklands og Þýskalands í gær, þegar hagvöxtur á öðrum árs- fjórðungi mældist 0,3 prósent í báðum löndunum. Þetta er mikill viðsnúning- ur frá fyrsta ársfjórðungi þegar samdráttur mældist í Þýskalandi upp á 3,5 prósent og í Frakklandi upp á 1,3 prósent. Hagspeking- ar höfðu búist við áframhaldandi samdrætti í báðum löndunum. „Frakkland er loksins að kom- ast út úr rauðu tölunum,“ sagði Christine Lagarde, fjármálaráð- herra Frakklands, og þakkaði það einkum öflugum ríkisstuðningi við bílaiðnaðinn að landið hefði staðið af sér verstu kreppuna. Þýsk stjórnvöld hafa einnig styrkt bílaiðnaðinn sérstaklega og telja þá ráðstöfun hafa hjálpað verulega til. Tíðindin af þessum tveimur stærstu hagkerfum Evrópu koma jafnt hagfræðingum sem ráða- mönnum á óvart. Aðeins fáeinir dagar eru liðnir síðan Seðlabanki Evrópusambandsins spáði áfram- haldandi samdrætti í ríkjum sam- bandsins vel fram á næsta ár. Þessum tíðindum hefur þó verið tekið af varúð. Efnahagshorfur í Evrópuríkjum eru enn ekki sem bestar. Til að mynda er búist við að atvinnuleysi muni aukast nokk- uð þegar tímabundinni styttingu vinnutíma lýkur víða í haust. - gb Óvæntur viðsnúningur á efnahag Þjóðverja og Frakka: Farnir að sjá út úr kreppunni VERSLANALÍF Í PARÍS Bjartari dagar eru væntanlega fram undan. FRÉTTABLAÐIÐ/AP STJÓRNMÁL Héraðsnefnd Evrópu- sambandsins hefur boðið Hall- dóri Halldórssyni, formanni Sam- bands íslenskra sveitarfélaga, á opna daga nefndarinnar. Hann hyggst þiggja boðið. Hlutverk hér- aðsnefndarinn- ar er að gefa sveitarfélögum rödd innan Evr- ópusambands- ins. Nefndin heldur opna daga árlega og verða þeir nú haldnir í Brussel í okt- óber. Í tilkynningu frá nefndinni er áhuga ríkisstjórnarinnar á aðildarviðræðum fagnað og seg- ist nefndin hlakka til að starfa með íslenskum sveitarfélögum að undirbúningi aðildar. - þeb Héraðsnefnd ESB: Býður Halldóri til Brussel Peningastefnan getur aukið tiltrú á efnahagslífið, sem er forsenda þess að gjaldeyris- höft verði afnumin. Til vaxtahækk- ana getur komið af þessum sökum ef aðstæður kalla á slíkt. ARNÓR SIGHVATSSON AÐSTOÐARSEÐLABANKASTJÓRIHUGBÚNAÐUR Microsoft og Nokia munu vinna saman að þróun og markaðssetningu farsímalausna fyrir fyrirtækjamarkað. Þetta kom fram í tilkynningu í fyrra- dag. Með samstarfinu hyggjast fyrir- tækin þróa nýjar útgáfur Micro- soft Office Mobile og annarra lausna Microsoft fyrir Symbian- snjallsíma Nokia. Hvorki Micro- soft né Nokia hefur áður gert samstarfssamning af þessari stærðargráðu. Yfir 200 milljónir snjallsíma frá Nokia eru í notkun um heim allan. Með samstarfinu verður innan tíðar mögulegt að vinna með skjöl úr Office-forritum á borð við Micro soft Word, PowerPoint og Excel í þessum símum. - vsp Samstarf Microsoft og Nokia: Skjöl úr Word í snjallsímanum MENNTAMÁL Fjallað verður um nið- urstöður PISA 2006-rannsóknar- innar á ráðstefnu Norrænu ráð- herranefndarinnar á Grand Hóteli eftir helgi. Samtímis kemur út ný norræn skýrsla um PISA 2006. Þátttakendur á ráðstefnunni eru frá Norðurlöndunum, bæði úr rannsóknageiranum og frá ráðu- neytum og stofnunum. Finnskir nemendur hafa ætíð staðið sig best allra í PISA-könnuninni. Ísland er eitt af fáum löndum í rannsókninni þar sem stúlkur eru að jafnaði betri í öllum grein- um en drengir. Fjallað verður um þennan kynjamun á ráðstefnunni. - vsp PISA-ráðstefna á Íslandi: Stelpur gera betur á Íslandi VILHJÁLMUR EGILSSON GYLFI ARNBJÖRNSSON Á að byggja á reitnum þar sem Hótel Valhöll stóð? Já 51,8% Nei 48,2% SPURNING DAGSINS Í DAG Munt þú fylgjast með leikjum kvennalandsliðsins í fótbolta á EM í Finnlandi? Segðu skoðun þína á Vísir.is HALLDÓR HALLDÓRSSON KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.