Fréttablaðið - 14.08.2009, Page 8

Fréttablaðið - 14.08.2009, Page 8
8 14. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR STJÓRNMÁL Þrír þingmenn Borgara- hreyfingarinnar, þau Þór Saari, Margrét Tryggvadóttir og Birgitta Jónsdóttir, vilja að Þráinn Bertels- son víki af þingi fyrir hreyfinguna og kalli inn varamann. Þetta kemur fram í bréfi sem þremenningarnir sendu stjórn Borgarahreyfingarinn- ar í byrjun mánaðarins. Í bréfinu segja þremenningarn- ir „að ljóst sé að afstaða Þráins sé ekki tekin með hagsmuni þinghóps- ins, Borgarahreyfingarinnar eða kjósenda í huga. Tekið skal fram að við þrjú höfum ítrekað boðað Þráin á fund okkar án árangurs.“ Í bréfinu kemur einnig fram að þingmennirnir ætla hvorki að verða við ósk stjórnar Borgarahreyfingar- innar um að skipt verði um þing- flokksformann né þeirri hugmynd að aldrei sitji færri en einn vara- þingmaður á þingi fyrir hreyfing- una á hverjum tíma. Mikil ólga hefur verið innan Borgarahreyfingarinnar eftir að þremenningarnir greiddu atkvæði gegn aðildarumsókn að Evrópusam- bandinu á Alþingi fyrir skömmu. Þá sagði Þráinn það skýrt brot á stefnu hreyfingarinnar. Síðan þá hefur hann ekki talað við hina þrjá þing- menn Borgarahreyfingarinnar. Þá gera þremenningarnir einnig alvarlega athugasemd við framkomu formanns stjórnar Borgarahreyf- ingarinnar í fjölmiðlum þar sem hann hafi meðal annars sagt hreyf- inguna áhrifalausa í Icesave-mál- inu. Það sé einfaldlega ekki rétt. Friðrik Þór Guðmundsson, tals- maður Borgarahreyfingarinnar, segir að bréf þingmannanna sé frá 5. ágúst og mikið vatn hafi runnið til sjávar síðan þá. Hann segir að þingmenn- irnir geti ekki skip- að stjórninni fyrir eða öfugt. Stjórn Borgara- hreyfingarinn- ar samþykkti á fundi sínum á miðvikudag að vísa öllum hugmyndum til aðalfund- ar sem haldin verður 12. sept- ember. „Fundur- inn mun afgreiða hvernig slíkum málum verði háttað í framtíðinni. Engar kröfur um breytingar eru í gildi fram að því. Hafa verður í huga að mjög stutt er eftir af sumarþingi og kjörtímabil núverandi stjórnar er að renna út,“ segir Friðrik. Hann vonast til að sátt verði komin á þegar aðalfundur verður haldinn. Hann segir það vissulega bagalegt að þingmenn hreyfingar- innar skuli ekki ræðast við. „Það er hið versta mál en hreyfingin hefur engin verkfæri til að grípa til nema með því að senda sáttanefnd á vettvang.“ Þráinn vildi ekki tjá sig um bréf þingmannanna þegar Fréttablaðið ræddi við hann í gær. kristjan@frettabladid.is 1. Með hvaða tónlistarmanni kemur Jóhanna Guðrún fram í Svíþjóð? 2. Hversu margir eru skráðir í háskólanám í stærstu háskólum landsins í haust? 3. Hver skoraði jöfnunarmark Íslands í vináttulandsleik í fótbolta gegn Slóvakíu? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 34 HUMAR 2.000 KR.KG GLÆNÝIR ÞORSKHNAKKAR STÓRLÚÐUSTEIKUR -MJÖG STÓRAR OG FÍNAR- Þingmennirnir vildu að Þráinn Bertelsson viki sæti Ósætti er innan Borgarahreyfingarinnar. Þrír þingmenn flokksins vildu að sá fjórði viki sæti. Þingmenn- irnir ætla heldur ekki að fara að ósk stjórnarinnar um að skipt verði um þingflokksformann. ÞINGMENN BORGARAHREYF- INGARINNAR Borgarahreyfingin á fjóra menn á þingi. Þór Saari, Margrét Tryggvadóttir og Birgitta Jónsdóttir lögðu það til að Þráinn Bertelsson viki sæti fyrir varamanni. Þráinn vildi ekki tjá sig um málið þegar Fréttablaðið leitaði til hans. ÞÝSKALAND Kosningabaráttan í Þýskalandi tók nýja stefnu í vik- unni eftir að veggspjöld með Ang- elu Merkel, kanslara Þýskalands og formanns Kristilegra demó- krata (CDU), voru hengd upp í Berlín. Á veggspjöldunum er mynd af Merkel og Veru Lengsfeld, fram- bjóðanda flokksins í einu Berl- ínarkjördæmanna. Báðar eru þær í einkar flegnum kjólum og á spjöldin var prentað slagorðið: „Við höfum meira að bjóða.“ Veggspjöldin hafa, vægt til orða tekið, vakið blendin við- brögð meðal almennings. Þykir mörgum sem þarna hafi Kristi- legir demókratar gengið of langt. Brjóstaskorur og stjórnmál eigi litla samleið. Maria Böhmer, formaður landsstjórnar kvenna kristilegra demókrata, sagði spjöldin úr takti við samtímann. Konur þyrftu ekki að nota líkama sína til að ná langt í pólitík. Þegar þýskir fjölmiðlar fóru að grennslast fyrir um málið kom í ljós að Merkel hafði ekki hug- mynd um veggspjöldin, hvað þá að mynd af henni í kvöldkjól, sem tekin var við opnun Óperuhússins í Osló, hefði verið notuð. Lengs- feld hefur viðurkennt að hafa látið prenta veggspjöldin án vitn- eskju Merkel og kosningastjórnar Kristilegra demókrata. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem umrædd mynd af Merkel vekur athygli fjölmiðla. Breska slúðurpressan gerði sér mat úr henni á sínum tíma. Þá birtist myndin í blaðinu Daily Mail undir fyrirsögninni: „Gereyðingar vopn Merkel.“ - th Veggspjöld af Angelu Merkel í flegnum kjól vekja hörð viðbrögð í Þýskalandi: Skora kanslarans of áberandi MYNDIN UMDEILDA Frambjóðandi Kristilegra demókrata í Berlín lét prenta myndir af Merkel og sjálfri sér í flegnum kjólum á veggspjald undir slagorðinu: „Við höfum meira að bjóða.“ NORDICPHOTOS/AFP KAUPMANNAHÖFN Danska lögreglan réðst snemma í gærmorgun inn í Brorsonkirkju í Kaupmannahöfn og handtók íraska flótta- menn, sem hafa haft þar afdrep undanfarið. Tugir þúsunda komu saman í miðborg Kaupmannahafnar í gær til að mótmæla með- ferðinni, sem mótmælendurnir hafa sætt. Svo virðist sem mörgum mótmælendanna svíði mest að kirkjugrið hafi verið rofin. Samkvæmt vefsíðum danskra dagblaða gekk lögreglan hart fram, en sjálf segist lög- reglan hafa reynt að forðast átök. Írösku flóttamönnunum hefur öllum verið neitað um hæli í Danmörku, en ekki hefur verið hægt að vísa þeim heim til Íraks vegna ástandsins þar. Söfnuðurinn í Brorsonskirkju hefur skotið skjólshúsi yfir marga þeirra. Einn þeirra írösku flóttamanna, sem hafa hafst við í Brorsonkirkju, er Ali Nayef Rasoon, en hann á barn hér á Íslandi með íslenskri konu, Giovönnu Spanó. Svo vildi til að Ali Nayef var ekki í kirkjunni þegar lögreglan gerði innrás sína, og er hann nú í felum. „Mér skilst að hann sé bara í felum, einhver mótmælendasamtök séu að hjálpa honum,“ sagði Giovanna í gær, en hann hringdi í hana í gærmorgun og leið þá að sögn hræðilega. Hún segir að hann hafi verið flóttamaður í Danmörku í sjö ár, þar af hafi hann dvalist nokkrar vikur undanfarið í kirkjunni. - gb Lögreglan í Kaupmannahöfn handtók hóp íraskra flóttamanna í Brorsonskirkju: Þúsundir mótmæla í Kaupmannahöfn BRORSONKIRKJA Hópur íraskra flóttamanna hefur haft þar hæli undanfarið, en í fyrrinótt lét lögreglan til skarar skríða og rýmdi kirkjuna. MYND/IB RASMUSSEN ÍRAN, AP Stjórnvöld í Íran vilja að alþjóðlegt bann verði lagt við árásum á kjarnorkuver. Vesturlönd hefur mörg hver grunað að Íranir séu að reyna að koma sér upp kjarnorkuvopn- um, en þeir segjast ekki hafa nein áform um að nota kjarnorku í öðrum tilgangi en friðsamlegum. Ísrael hefur hótað árásum á kjarnorkuver í Íran. Nýjustu viðbrögð stjórnvalda í Íran eru þau, að leggja til að Alþjóðakjarnorkustofnunin sam- þykki að slíkar árásir verði bann- aðar. „Við höfum engar áhyggjur af Ísrael,“ segir samt Ali Ashgar Soltanieh, aðalerindreki Írans hjá stofnuninni. „Enginn vogar sér að gera neitt á hlut Írans.“ - gb Tillaga íranskra stjórnvalda: Bönnum árásir á kjarnorkuver ALI ASHGAR SOLTANIEH Fulltrúi Írans hjá Alþjóðakjarnorkustofnuninni í Vín. NORDICPHOTOS/AFP VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.