Fréttablaðið - 14.08.2009, Side 10

Fréttablaðið - 14.08.2009, Side 10
10 14. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR ■ Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@ frettabladid.is DR. GUNNI neytendur@ frettabladid.is RÚSSLAND, AP Örlög rússneska flutningaskipsins Arctic Sea, sem hvarf á Ermarsundi fyrir rúmlega hálfum mánuði, eru enn hulin ráð- gáta. Ekkert hefur spurst til skips- ins síðan 28. júlí. Rússnesk herskip hafa gert mikla leit að skipinu og er rúss- neskum gervihnöttum beitt við þá leit. Ýmsar kenningar og vangavelt- ur um afdrif skipsins hafa komist á kreik. Ekki er vitað hvort það hafi í raun orðið sjóræningjum að bráð, heldur gæti eins verið að eig- endur skipsins hafi látið sökkva því til að svíkja út tryggingafé. Heyrst hefur sú kenning að farmur skipsins hafi ekki verið timbur frá Finnlandi, eins og opinberar skýrslur segja, heldur eitthvað skuggalegra sem skýrt gæti hvarfið ef upp kæmist. Skipið er skráð á Möltu með fimmtán manna áhöfn. Siglingaeftirlitið á Möltu segir að ráðist hafi verið á skipið hinn 24. júlí þegar það var á ferð um Eystrasalt. Samkvæmt áhöfn skipsins réðust rúmlega tíu grímu- klæddir menn um borð, bundu og börðu áhöfnina og spurðu út í fíkniefnasmygl. Tólf tímum síðar fóru þessir menn aftur frá borði og sigldu burt á hraðskreiðum gúmmíbát. Í viðtali við sænska dagblaðið Metro hinn 31. júlí er haft eftir manni, sem sagður er vera í áhöfn skipsins, að árásarmennirnir hafi verið í svörtum einkennisbúning- um. „Þeir líktust bandarískum úrvalshermönnum og virtust mjög fagmannlegir. Þeir sögð- ust vera að leita að kókaíni, sem við áttum að hafa tekið um borð í Kaliníngrad. Þeir töluðu ensku með einhvers konar hreim.“ Skipið var í viðgerð í Kalinín- grad áður en það hélt til Finn- lands að ná í timbur, sem flytja átti til Alsír. Síðast fréttist af skipinu, svo staðfest sé, á siglingu um Ermar- sund hinn 28. júlí. Fréttir af ferð- um þess eftir það eru óstaðfest- ar. Rússneskir fjölmiðlar segja skipið hafa sést á Biskajaflóa hinn 30. júlí og að síðar hafi einnig sést til þess úr portúgalskri eftirlits- flugvél. Joao Barbosa, talsmaður portú- galska sjóhersins, segir hins vegar að skipið hafi ekki komið inn í portúgalska landhelgi. Hafi skipið sokkið ætti mikið magn af timbri að hafa flotið upp og sjást á yfirborði sjávar. Ólíklegt þykir að sjóræningjar frá Sómalíu hafi skipið á valdi sínu. gudsteinn@frettabladid.is Örlög týnda rússneska skipsins eru enn ráðgáta Rússneski herinn leitar flutningaskipsins Arctic Sea víðs vegar um Atlantshaf. Ekki er vitað hvort skipinu hefur verið rænt eða hvort aðrar skýringar eru á hvarfi þess. Síðast sást til þess á Ermarsundi hinn 28. júlí. SKIPIÐ SEM TÝNDIST Rússneska skipið Arctic Sea átti að flytja timburfarm frá Finnlandi til Alsír. NORDICPHOTOS/AFP FAGNAÐARKJAFTUR Aðdáandi fótboltaliðsins Fluminense í Brasilíu mætti til leiks harla kjaftvíður. NORDICPHOTOS/AFP LÖGREGLUMÁL Rauðri málningu var skvett á hús athafnamannanna Karls Wernerssonar við Engihlíð og Hreiðars Más Sigurðssonar við Hlyngerði í fyrrinótt. Ekki er vitað hver stóð að baki verknaðinum. Þetta er í fimmtánda sinn á stuttum tíma sem málningu er skvett á hús í eigu fólks sem starf- ar í fjármála- eða orkugeiranum og í annað sinn sem hús Hreiðars Más verður fyrir barðinu á skemmdarverkum. Ekkert málanna er upplýst. Hópur sem kallar sig A.S.Ö. hefur lýst á hendur sér skemmdarverkum á heimilum forstjóra Landsvirkjunar og Alcan þar sem grænni málningu var skvett. Engin hefur hins vegar lýst ábyrgð á skemmdunum hjá hinum. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær var lakkeyði skvett á bíla hjá forstjóra Orkuveit- unnar. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar málin fimmtán. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er ekki búið að ákveða hvort haft verði sérstakt eftirlit með húsum hjá fólki úr fjármála- eða orkugeiranum. - kh Fimmtán skemmdarverkamál hjá fólki í orku- og fjármálageiranum: Skvett á hús Karls og Hreiðars Más HÚS HREIÐARS Þetta er í annað sinn sem máln- ingu er skvett á hús Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, við Hlyngerði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA STJÓRNMÁL Sigrún Jónsdótt- ir stjórnmálafræðingur hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samfylkingar- innar. Tæplega þrjátíu manns sóttu um starf framkvæmda- stjóra. Sig- rún gegndi því starfi tíma- bundið í síð- ustu kosning- um. Hún hefur einnig starfað sem kosninga- stjóri á landsvísu og í Suðvestur- kjördæmi, að því er fram kemur í tilkynningu frá flokknum. Þá var hún bæjarfulltrúi í Kópavogi í átta ár. Frá árinu 2005 hefur hún starfað hjá Háskóla Íslands, síðast sem deildarstjóri félags- og mannvísindadeildar. Sigrún mun hefja störf um mánaðamót- in. - þeb Samfylkingin: Sigrún ráðin í trúnaðarstarf SIGRÚN JÓNSDÓTTIR Innbrotsþjófar gómaðir Þrír innbrotsþjófar voru gripnir með fangið fullt af þýfi, þar sem þeir voru á leið út úr fjölbýlishúsi við Lindar- götu í Reykjavík í fyrrakvöld. Þá var brotist inn í leikskóla í Grafarholti og þaðan stolið sjónvarpsskjá. Þjófurinn er ófundinn. LÖGREGLUFRÉTTIR SRÍ LANKA, AP Mannréttindasam- tökin Amnesty International segja að á gervihnattarmynd- um frá Srí Lanka megi sjá móta fyrir fjöldagröfum og hugsan- lega sprengjusvæðum rétt hjá svæðum þar sem fjöldi almennra borgara hafi lokast inni undir lok borgarastríðsins. Með birtingunni vilja samtök- in sýna fram á að yfirlýsingar stjórnarinnar á Srí Lanka, um að hætt hafi verið að nota stór vopn síðustu mánuði átakanna fyrr á þessu ári, standist ekki. Samein- uðu þjóðirnar segja að sjö þúsund borgarar hafi fallið fyrstu fimm mánuði ársins. - gb Loftmyndir frá Srí Lanka: Fjöldagrafir koma í ljós Í júlí náði verð á fiski hæsta meðalverði frá upphafi á fiskmörkuðum á Íslandi. Ástæðan er lágt gengi íslensku krónunn- ar og hið einfalda lögmál um framboð og eftirspurn. „Fiskur er búinn að vera skuggalega dýr síðustu þrjá mánuðina,“ segir Birgir Guð- mundsson, sem kaupir fisk fyrir mötuneyti og fiskbúðina Vegamót á Neshaga. „Fyrir það fyrsta er framboðið lítið og svo endar besti og dýrasti fiskurinn alltaf í útlöndum því þeir sem kaupa til útflutn- ings geta boðið hátt verð því ömur- legt gengi íslensku krónunnar vinnur með þeim. Fiskverð hækkar bara og hækkar á meðan krónan er svona og á meðan eftirspurnin er svona mikil erlendis.“ Miðað við þetta ástand er mesta furða hvað fiskbúðir reyna að liggja á brems- unni með að hækka verðið hjá sér. Birgir tekur dæmi af því að þegar hann rak fisk- búð árið 2005 hafi roð- og beinlaus ýsa kost- að 990 krónur kílóið, en kosti í dag yfir- leitt um 1.490 krónur. „Fiskur á Íslandi er ódýr miðað við önnur lönd,“ fullyrðir Birgir. „Hann þyrfti í raun að vera miklu dýrari því við sem erum að kaupa fyrir íslenska markaðinn erum í vonlausri sam- keppni við þá sem selja til útlanda á meðan krónan er svona lágt skráð.“ Neytendur: Gengishrunið hefur áhrif víða Fiskur aldrei eins dýr á Íslandi

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.