Fréttablaðið - 14.08.2009, Qupperneq 19
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég ákvað að gera tagliatelle af því
að ég vildi gera einfaldan sveppa-
rétt sem allir geta gert,“ segir Ása
Margrét Ásgrímsdóttir, höfundur
bókarinnar Matsveppir í náttúru
Íslands, sem finnst ítölsk matar-
gerð skemmtileg. „Sveppina er
bæði hægt að tína úti í skógi og
nota ferska en eins er hægt að nota
þurrkaða sveppi.“
Svipaða uppskrift er að finna í
bókinni þó Ása hafi breytt henni
örlítið. „Ég setti lauk og pínulít-
ið af þurrkuðum chilipipar. Svo
muldi ég þetta út í án þess að það
yfirgnæfði sveppabragðið. Ég
steikti hvítlauksrif sem ég kramdi
en henti svo frá. Ég set þau ekki í
heldur gefa þau bragð.“
Ásu finnst best að nota ferskt
pasta eða heimagert. „Mér finnst
það spennandi. Mér finnst ferskt
pasta miklu betra þegar ég er á
annað borð með þurrkaða sveppi
eða villisveppi,“ upplýsir Ása
og bætir við að ástæðan sé sú að
ferskt pasta sé mýkra undir tönn.
Aðspurð segir Ása réttinn ein-
faldan að gera. „Hann er til dæmis
góður uppi í sumarbústað og er til-
breyting frá grillmatnum.“
martaf@frettabladid.is
Góður réttur í bústaðinn
Ásu Margréti Ásgrímsdóttur finnst ítölsk matargerð skemmtileg. Hún gefur lesendum Fréttablaðsins
uppskrift að sveppatagliatelle. Hún notar í það ferskt pasta því að sögn er það betra með sveppunum.
200 til 300 g af ferskum
eða frosnum villisvepp-
um eða 25 til 30 g af
þurrkuðum sveppum
500 g ferskt tagliatelle
eða annað gróft pasta
3 til 4 hvítlauksrif,
afhýdd og kramin
lítillega
1 lítill þurrkaður chilipip-
ar eða ½ ferskur rauður
chilipipar
1 meðalstór gulur laukur
200 ml hvítvín og
nokkuð af vatninu sem
þurrkuðu sveppirnir
voru bleyttir í ef þeir eru
notaðir en einnig má
nota vatn og sveppa-
kraft
250 ml rjómi
matarolía til steikingar
smávegis af muldum
gráðosti eða rifnum
parmesan
salt og nýmalaður pipar
ferskt basil eða stein-
selja
Hreinsið fersku sveppina
og skerið í sneiðar og
steikið þar til þeir eru
orðnir hæfilega stökkir. Ef
þurrkuðu sveppirnir eru
notaðir setjið þá í bleyti
í volgt vatn í einn til tvo
tíma og síið vatnið frá
áður en þeir eru steiktir.
Geymið vatnið og notið
í réttinn síðar. Steikið
hvítlauk, lauk og chili á
pönnu með sveppunum.
Takið hvítlaukinn af
pönnunni þegar hann
er orðinn vel steiktur og
fleygið honum. Kryddið
með salti og pipar. Setjið
vínið, sveppavatnið eða
soðið út á pönnuna og
látið malla í um tíu til
fimmtán mínútur og
bætið síðan rjómanum
út í og sjóðið aðeins
lengur.
Sjóðið pastað. Látið
vatnið renna af pastanu
og setjið út í sveppasós-
una og hrærið saman.
Blandið basil og stein-
selju við.
TAGLIATELLE MEÐ VILLISVEPPUM
FYRIR FJÓRA
Ása Margrét útbjó
sveppatagliatelle sem
finna má í nýútkom-
inni bók hennar þótt
örlítið breytt sé.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
SUMARHÁTÍÐ HESTAMANNA verður haldin á
Hellu um helgina. Þar verður auðvitað hestakeppni en
einnig ýmis afþreying í boði fyrir alla fjölskylduna. Þar
má nefna brekkusöng, tónleika, skemmtanir og leiki.
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
H
rin
g
b
ro
t
6.890 kr.
4ra rétta tilboð
og nýr A la Carte
Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf!
Hægt er að panta 4ra rétta seðilinn
með sérvöldu víni með hverjum rétti: 10.990 kr.
Barolo „Ornato“ 2004 | Ítalía.
Chablis Grand Cru ,,Les Clos” 2005 | Frakkland
Glas af eðalvíni
Nú hefur veitingahúsið Perlan bætt við möguleikanum að velja
sér glas af 16 eðalvínum með mat. Verð frá 1.050-3.700 kr.
Sjá nánar á perlan.is.
· Reykt önd með fíkjum, valhnetum og rauðvínsgljáa ·
· Humarsúpa rjómalöguð með grilluðum humarhölum ·
· Lambahryggur með lambaskanka og rósmarínsósu ·
* E Ð A *
· Fiskur dagsins útfærður af matreiðslumönnum Perlunnar ·
· Skyr “Tonka crème brûlée” með karamelluís ·