Fréttablaðið - 14.08.2009, Síða 20
14. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR2
„Þegar öflugt fallbyssuskot
glymur út yfir Húnaflóa hefjast
Kántrý dagar á Skagaströnd. Á
þeirri sömu stundu munu yngstu
bæjarbúarnir bjóða þeim eldri að
heimsækja og skoða hið virðulega
þorp Smábæ á Kofavöllum sem
reist var í sumar. Áður en allt
þetta gerist hefur Skagaströnd
tekið hamskiptum.“ Þannig hefst
fjörleg fréttatilkynning frá Sig-
urði markaðsstjóra og hún gaf til-
efni til að slá á þráðinn til hans.
„Kántrýdagar eru fjölskyldu-
hátíð og fela í sér skemmtun og
margvíslega viðburði fyrir alla
aldurshópa,“ segir Sigurður og
getur þess að bærinn sé litskrúð-
ugur enda segi keppnisskapið til
sín þegar íbúarnir skreyti göt-
urnar. Hann nefnir ljósmynda-
og listsýningar sem dæmi um
viðburði og einnig tónleika bæði
af léttum og alvarlegum toga. Á
sunnudeginum telur hann bera
hæst gospelmessu í hátíðartjaldi
þar sem Óskar Einarsson stjórn-
ar tónlistarflutningi eins og síð-
ustu ár.
Dorgveiðikeppni er líka á dag-
skrá ásamt göngu með leiðsögn á
Spákonufell. Og talandi um spá-
konur. Á Skagaströnd eru spakar
konur sem skyggnast fram í tím-
ann gegnum lófa, spil eða kaffi-
bolla að sögn Sigurðar. „Hér var
sett upp spákonutjald í sumar
sem hefur vakið feikna athygli og
ferðafólk flykkst í. Því má segja
að framtíðin sé að verða að mikil-
vægum atvinnuvegi hér.“
Til að seðja hungrið segir
Sigurður boðið upp á kántrýsúpu
á föstudagskvöldið og sameigin-
legt grill á laugadagskvöldið.
Kaffihúsið Bjarmanes og hinn
eini sanni Kántrýbær sýni líka
sínar bestu hliðar enda liggi allra
leiðir þangað. En býst hann við
mörgum gestum?
„Hér voru fjölmennar hátíðir
haldnar fyrir nokkrum árum en
við hættum með þær. Við viljum
ekki þrjátíu þúsund manns, ekki
einu sinni fimm þúsund. Á Kántrý-
dögum erum við heimamenn að
hafa gaman saman. Ef einhverjir
vilja blanda geði við okkur er
grundvallaratriði að þeir séu
líka skemmtilegir og leggi eitt-
hvað fram til að gera þessa daga
betri en aðra.“
gun@frettabladid.is
Kántrýsúpa og samvera
Skagstrendingar gera sér dagamun um helgina og halda kántrýdaga. Gott og skemmtilegt fólk er vel-
komið þangað að njóta þeirra með þeim að sögn Sigurðar Sigurðarsonar, markaðsstjóra sveitarfélagsins.
ERPSSTAÐIR er ferðaþjónustubýli í Dölum. Á Erpsstöðum getur fjölskyldan
átt notalega stund innan um íslensk húsdýr. Einnig má njóta þess að innbyrða
heimagerða rjómaísinn Kjaftæði. Frítt er í fjósið laugardaginn 15. ágúst frá
klukkan 13 til 16. Nánar á www.erpsstadir.is
Í tjaldinu því arna skyggnast spákonur inn í framtíðina. Þeirra á meðal er Dagný Marín Sigmarsdóttir, ein forsvarsmanna
menningar félagsins Spákonuarfs, sem hér gægist út. MYND/ÚR EINKASAFNI
,
MISTY
Gó jónusta - fagleg rá gjöf
Laugavegi 178, 105 R
sími 551-3366 - www.misty.is
teg. 4457 - íþróttahaldarinn MEGA góði
í BCD skálum á kr. 3.950,- aðhalds-
buxur í stíl á kr. 2.650,-
teg. 86200 - einfaldur, létt fylltur og
fl ottur í BC skálum á kr. 3.950,- buxur í
stíl á kr. 1.950,-
Opið mán-fös kl. 10-18
Lokað á laugardögum í sumar
Mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja
MEÐ TUDOR
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt til
að klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silf-
urplett.Við eigum líka fægilög,fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa.
SENDUM Í PÓSTKRÖFU.
SJÁLFLÍMANDI HNÍFAPARASKORÐUR
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.