Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.08.2009, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 14.08.2009, Qupperneq 24
4 föstudagur 14. ágúst ✽ ba k v ið tjö ldi n Stjörnumerki: Steingeit. Uppáhaldsmatur: Hrefnukjöt. Uppáhaldsverslun: Aftur. Diskurinn í spilaranum: Yoshimi Battles the Pink Robots með Flaming Lips. 22 ára gamall hefur Mundi Vondi getið sér gott orð sem graf- ískur hönnuður og myndlistarmaður, tekið þátt í gjörningum úti um allan heim og hannað þrjár fatalínur undir merkinu Mundi. Viðtal: Alma Guðmundsdóttir Ljósmyndir: Arnþór Birkisson É g teiknaði mjög mikið sem krakki, en ég er lesblindur og með at- hyglisbrest sem kom ekki ljós fyrr en í tí- unda bekk svo ég hélt eiginlega að ég væri algjör fáviti þangað til þá,“ segir Mundi brosandi, spurður hvenær sköpunarhæfileikar hans hafi komið í ljós. „Mér gekk ágæt- lega í barnaskóla en þegar ég kom í menntaskóla fóru einkunnirnar að hrapa. Ég var skárri í raungrein- um og fór á náttúru- og eðlisfræði- braut í MH, en féll síðan og fór þá í Iðnskólann í Reykjavík á mynd- listarbraut. Fyrstu önnina tók ég bara verklega áfanga, en þegar ég sá fram á að önnina á eftir yrðu bara bóklegir áfangar sá ég aug- lýsta keramikbraut í Myndlista- skólanum í Reykjavík. Ég ákvað að slá til og tók hálft ár þar. Keram- ik er alveg heill heimur út af fyrir sig og það var mjög skemmtilegt nám,“ segir Mundi, sem stóð sig vel og var í kjölfarið boðið til Ung- verjalands ásamt tveimur sam- nemendum sínum. „Við vorum í klaustri í þrjár vikur og lærð- um allt milli himins og jarðar um keramik, en eigandinn er mikill áhugamaður um Ísland og býður reglulega nemendum til sín,“ segir hann. Meðfram náminu í Mynd- listaskólanum var hann einnig iðinn við grafíska hönnun og fékk ýmis verkefni tengd henni. „Ég var alltaf að dunda mér í tölvunni í hönnunarforritum, hannaði plak- öt fyrir menntaskólaböll, aðallega fyrir MH og MR, og dundaði mér við að gera myndir í Photoshop,“ segir Mundi, sem sótti um í Lista- háskólanum þar sem hann komst inn á grafíska hönnunarbraut, en hann hafði þá gert 114 blaðsíðna umsóknarmöppu í Photoshop. ÚT UM ALLAN HEIM Fljótlega eftir að Mundi byrjaði í Listaháskólanum fór hann að vinna myndlist með Friðriki Svani Sigurðssyni eða Morra og Schuyler Jack Maehl. Saman stofnuðu þeir listahópinn MOMS og ekki leið á löngu þar til þeir voru kynnt- ir fyrir austurríska listahópnum Gelitin. Eftir að hafa unnið með þeim við vel heppnaðan gjörning í Kling&Bang galleríinu ferðuð- ust þeir saman til New York, tóku þátt í Feneyjatvíæringnum og frömdu eftirminnilegan gjörning á Írlandi. „Við sýndum í rosalega flottu galleríi í New York, í eftir- partíi og matarboði í tilefni þess að ljósmyndarinn Jason Schmidt var að gefa út bók. Við byggðum risastóran skúlptúr yfir gestun- um á meðan þeir voru að borða, brýr yfir borðin sem náðu alveg upp í loft. Við stilltum okkur svo upp á fjórum hæðum, vorum allir með fötu á hausnum og gerðum svo svona pissugosbrunn. Fólk var þá aðeins farið að víkja, því á meðan við vorum að byggja þetta misstum við ýmislegt, svo sem skrúfur sem duttu ofan í matar- diskana hjá fólki, en við fengum rosalega góð viðbrögð og það birt- ist mynd af okkur yfir heila opnu í V-Magazine,“ segir Mundi sem fer ásamt MOMS og Gelatin til Torino á Ítalíu í nóvember þar sem þeir munu syngja í óperu. Aðspurð- ur segist hann ekki vita hvernig það muni fara fram. „Það besta við þessa gjörninga er að þeir eru mjög óskipulagðir. Það gerir það að verkum að það er stórt op fyrir einhverjar undarlegar uppákom- ur eða eitthvað óvænt. Það er það sem gerir þetta spennandi.“ MUNDI VONDI Fyrir þremur árum byrjaði Mundi að hanna föt undir merkinu „Mundi“. Spurður um aðdragandann kemur í ljós að hann var með símaskrá í huga þegar fyrsta peysan varð til. „Á öðru ári mínu í Listaháskólan- um var samkeppni um forsíðuna á símaskránni í grafísku hönnunar- deildinni. Ég tók þá upp á því að láta prjóna fyrir mig munstur til að skanna inn og prenta það svo utan á símaskrána, svona eins og hún væri prjónuð. Hugmyndin mín vann nú ekki, en þegar ég fór og sá það sem ég var búinn að láta prjóna spurði ég manninn sem sá um það hvort þeir gætu ekki saumað fyrir mig eina peysu úr því. Seinna um daginn var svo peysan tilbúin, með ákveðnu geimfaramunstri sem ég teiknaði. Þegar ég byrjaði að ganga í peysunni fékk hún svo mikla athygli að ég ákvað að fara niður í Kronkron og spyrja Hugrúnu og Magna hvort þau væru tilbúin að selja hana fyrir mig og það varð ákveðið „hitt“ úr því,“ segir Mundi, sem ákvað þá að gera heila fatalínu fyrir veturinn 2007 í samstarfi við móður sína, Sigyn Einarsdóttur, en þau stofnuðu fyrir tækið Mundi de- sign ehf. í sameiningu. „Við sóttum um í „show-room“ í París þar sem við komumst að og seldum þar í tíu búðir um allan heim,“ útskýrir Mundi. Hann hannaði svo aðra línu sem hann kallaði Fisherman‘s in- vasion, eða Innrás fiskimannsins, og fékk þá styrk frá Útflutnings- ráði til að fara til Tokyo, Berlínar og sýna á dönsku tískuvikunni. Í kjöl- farið seldist sú lína tvöfalt betur en sú fyrsta. Í dag er hans þriðja lína í verslunum og sú fjórða kemur út í haust. HRÆDDASTUR VIÐ RÚTÍN Flott par Mundi og Tinna Bergsdóttir fyrirsæta stefna á að flytja saman til útlanda á næstunni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.