Fréttablaðið - 14.08.2009, Page 25

Fréttablaðið - 14.08.2009, Page 25
14. ágúst föstudagur 5 1. Ef þú vilt láta fing- urna þína líta út fyrir að vera lengri og mjórri skaltu nota ljóst naglalakk. Dökkir og skærir litir breyta út- línum fingranna svo þeir virðast styttri. Fimm frábær fegrunarráð 2. Til að fá meiri fyllingu í augnhár- in er hægt að bera smá af gamla góða Nivea-kreminu á augnhárin áður en maskarinn er settur á. 3. Leyfðu húðinni að þorna vel eftir sturtu áður en þú setur á þig svitalyktareyði. Raki og hiti minnk- ar virknina svo svitalyktin kemur fyrr fram. 4. Hægt er að nota milt barnasjampó til að hreinsa augnmálninguna á kvöld- in í stað þess að kaupa dýran augnfarðahreinsi. 5. Ef þú átt varaliti sem eru nán- ast uppurnir er um að gera að skafa afganginn upp úr þeim, hita í örbylgju og setja í litla krukku. Þá fer ekkert til spill- is, þú geturðu blandað saman mismunandi litum og borið svo á varirnar líkt og vara- salva. Bókin á nátt- borðinu: Símaskráin. Mesta dekrið: Svettið. Draumafríið: Tunglið. Líkamsræktin: Nýja þríhjólið mitt. Hverju mynd- irðu sleppa til að spara? Bensíni. Áhrifavaldur- inn: Gunnar Örn. UNA ERFIÐUR BRANSI Aðspurður segir Mundi sér og móður sinni koma vel saman, en viðurkennir að hönnunarbrans- inn sé erfiður. „Við mamma erum rosalega góð saman og skilningsrík, en auðvitað ríf- umst við alveg. Þótt ég gæti ekki séð fyrir mér að vinna með neinum öðrum, þá vantar ennþá alveg viðskiptavitið í þetta, við erum bæði svo mikil fiðrildi. Við erum bæði búin að taka lán til að keyra þetta áfram, því þetta er algjört hark og maður þarf að koma með nýja línu tvisvar á ári. Þegar viðskiptafræðingur- inn kemur inn í þetta fer þetta kannski að fullmótast,“ segir Mundi og brosir. Spurður hvað- an hann fái innblásturinn segir hann hönnun sína vera byggða á svolítið undarlegri framtíð- arsýn. „Fólk hefur alltaf svolít- ið brenglaðar hugmyndir um hvernig við munum líta út í framtíðinni, að allt verði rosa- lega þröngt, með götum hér og þar. Mér finnst það ekki beint málið því við lifum í framtíð- inni núna og ættum að klæða okkur eins og við séum í fram- tíðinni. Ég vil því gera föt sem koma okkur út fyrir þennan hefðbundna ramma.“ MEÐ MÖRG JÁRN Í ELDINUM Mundi er í sambandi við Tinnu Bergsdóttur fyrirsætu. Hún hefur starfað á vegum Eskimo úti um allan heim, en þau kynntust í ágúst í fyrra þegar hún var í stuttu fríi hér landi og þau búa nú saman. Mundi segir þau stefna á að flytja úr landi á næst- unni, en hvað varðar vinnu seg- ist hann ekki vilja binda sig ein- ungis við fatahönnunina. „Ég er ennþá að starfa sem myndlistar- maður og grafískur hönnuður og er svolítið að reyna að tvinna það saman við fatahönnunina. Ég vil geta tekið að mér ólík verkefni og vil byggja upp mitt nafn á því að ég geti gert hitt og þetta. Ég vil reyna að halda lífinu sem fjölbreyttustu því það sem ég er hræddastur við er þessi rútína sem við erum öll einhvern veg- inn föst í. Ég er alltaf að berjast við að brjóta hana upp og krydda tilveruna hjá sjálfum mér og von- andi hjá fólkinu í kringum mig á sama tíma,“ segir Mundi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.