Fréttablaðið - 14.08.2009, Page 26
6 föstudagur 14. ágúst
tíðin
✽ fylgist vel með
90‘S-PARTÍ Ekki missa af brjáluðu 90‘s-partíi á
Nasa annað kvöld með DJ Kiki-Ow og DJ Curver. Það
verður án efa troðfullt svo þú skalt tryggja þér miða
í tæka tíð ef þig langar til að dansa frá þér allt vit við
skemmtilega 90‘s-slagara.
PUBLIC ENEMIES Myndin gerist á krepputímum
fjórða áratugar síðustu aldar í Bandaríkjunum og segir
sögu Johns Dillinger sem var þekktur fyrir fjölda vel
heppnaðra bankarána. Ekki missa af Johnny Depp
fara á kostum í frábærri kvikmynd.
„Við kynntumst í Listaháskólan-
um þar sem við vorum að taka
kennsluréttindi og vorum allar
að kenna tónmennt í vetur. Við
erum búnar að halda hópinn og
svo þegar okkur leiddist eitthvað
ákváðum við að koma saman og
gera eitthvað í sumarfríinu,“ segir
Elfa Björk Rúnarsdóttir fiðluleik-
ari og söngkona í hljómsveitinni
Listynjur. Með henni eru þær
Inga Stefánsdóttir söngkona og
Elísabet Þórðardóttir píanóleik-
ari, en í sumar hafa þær troðið
upp á Thorvaldsen á miðviku-
dagskvöldum og flytja þar tón-
list úr öllum áttum í rómantíska
kantinum.
„Við erum búnar að fara og
spila í hádeginu í fyrirtækjum,
bara svona til að gleðja fólk í
kreppunni og koma fram í brúð-
kaupum og víðar. Við erum bara
að leika okkur og erum algjör-
lega á eigin forsendum, en svo er
þetta bara búið að vinda upp á
sig,“ segir Elfa sem komst í úrslit í
Idol-stjörnuleit árið 2003. „Fram-
haldið er svo kannski bara að
taka upp eitt eða tvö lög og ef við
fáum einhver gigg áfram munum
við taka því,“ bætir hún við. - ag
Listynjurnar:
Stofnuðu
band í sumarfríinu
Listynjur Þær Elfa Björk, Inga og Elísabet hafa meðal annars spilað á Thorvaldsen á
miðvikudagskvöldum í sumar.
„Ég kláraði stúdent 1999, svo
það eru tíu ár liðin síðan ég var
í skóla,“ segir Ása Ottesen tísku-
bloggari sem sest á skólabekk
í haust. „Ég byrjaði að taka
undirbúningsnámskeið
í akademískum vinnu-
brögðum og var að klára
það núna. Svo er ég að
fara í félagsfræði og
hlakka mikið til,“ út-
skýrir hún.
Ása hefur starfað í
fataversluninni Gyllta
kettinum undanfarin
fjögur ár, en á morg-
un er síðasti vinnu-
dagurinn henn-
ar áður en skól-
inn hefst. Spurð
hvað tekur við að námi loknu
segist hún sannfærð um að tísk-
an verði ofarlega á blaði. „Ég hef
ekkert ákveðið en ég veit að
tískan verður alltaf áhuga-
mál hjá mér og ef ég þekki
mig rétt þá mun ég eitt-
hvað vinna við hana. Ég
verð allavega með blogg-
ið í vetur og svo kannski
einhver verkefni sem
gefa smá vasapening,“
segir Ása, en slóðin á
tískubloggsíðu henn-
ar er trend-land.blog-
spot.com. - ag
Ása Ottesen tískubloggari:
Skellti sér í skóla
Á skólabekk Ása byrj-
ar í félagsfræði í Há-
skóla Íslands í lok
ágúst.
TUBÉREUSE ILMVATNIÐ ÚR
SYSTRUM Við Madonna eigum sama
uppáhalds ilminn frá L´artisan parfumeur.
SJÁVARTEPPIÐ frá Vík Prjónsdótt-
ur fékk ég í afmælisgjöf frá mannin-
um mínum.
PÚÐLUHUNDATÖSKURNAR mínar,
heklaðar úr nótagarni og fást í ýmsum
litum í Kronkron.
ÍSFÓLKSBÆKURNAR. Ég á í ástar-haturs
sambandi við þennan bókaflokk.
Á ÍSSKÁPNUM ER „COLLAGE“
AF MYNDUM SEM MÉR ÞYKIR
VÆNT UM. Eins konar innblást-
ur fyrir lífið.
LITIRNIR MÍNIR, Túss, tré, blek og
svo framvegis.
ÚTSAUMUÐ TÍSKUTEIKNING
EFTIR MIG AF FÖGRU FLJÓÐI
MEÐ SVANI FYRIR AUGUN-
UM. Það er hægt að panta myndir
í gegnum heimasíðuna mína hildur-
yeoman.com.
GÖNGUGRINDIN hans Högna sonar míns
sem er nýorðinn 7 mánaða. Við fengum
hana á Egilsstöðum í Góða hirðinum.
HILDUR BJÖRK YEOMAN
fatahönnuður og tískuteiknari
TOPP
10
DER eftir
Thelmu úr
Fabelhaft
við Lauga-
veg.
BRÚN ÁN SÓLAR
Bobbi Brown hefur sent frá sér gel sem
gerir húðina fallega brúna án sólar um
leið og þú berð það á þig.
Gelið, sem kallast All over bronzing
gel, inniheldur einnig sólarvörn númer
15 svo húðin er varin gegn skaðleg-
um geislum sólarinnar. Gelið fæst nú
í Golden Sun lit og er tilvalið fyrir
allar húðgerðir.