Fréttablaðið - 14.08.2009, Blaðsíða 32
20 14. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Vefurinn Ættartal.is fór í loftið fyrir
skemmstu en þar er hægt að skrá upp-
lýsingar um sig og ættingja sína og búa
til eigið ættartal. Hægt er að setja inn
myndir, skrá stutt æviágrip, sögur og
fleira.
Viðskipta- og tölvunarfræðingurinn
Brynjólfur Ómarsson fékk hugmyndina
að vefnum fyrir nokkrum árum og hefur
gengið með hana í maganum síðan. „Ég
vissi að margir höfðu verið að gera þetta
handvirkt sem er mikil vinna. Hug-
myndin lá þó í dvala í nokkurn tíma en
vinnan fór á fullt í vetur,“ segir Brynj-
ólfur, sem býr í Kína ásamt eiginkonu
sinni og vinnur að vefnum með þrem-
ur forriturum.
Þegar notendur hafa stofnað ættartal
geta þeir gefið hverjum sem er aðgang
að því og þeir hinir sömu geta þá hjálpað
til við að bæta inn upplýsingum. Þannig
getur öll ættin safnað saman gömlum
myndum og sögum og búið til lifandi
upplýsingavef. Með þeim hætti er hægt
að koma í veg fyrir að skemmtilegar
minningar gleymist og að gull molar ryk-
falli í myndaalbúmum. Notendur geta þó
alfarið stýrt því hvaða gögn birtast og
hverjir hafa aðgang að þeim.
Ættartréð er hægt að skoða graf-
ískt auk þess sem notendur geta skrif-
að fréttir þannig að aðrir ættingjar geti
fylgst með því þegar nýtt barn kemur
í heiminn, þegar brúðkaup er í vænd-
um eða þegar ættarmót er á næsta leiti.
„Vefurinn ætti sérstaklega að geta gagn-
ast þeim sem fá það hlutverk að undir-
búa ættarmót eða niðjatöl en auk þess
öllum þeim sem hafa áhuga á ættinni
sinni, að rekja hana og að halda utan
um hana.“
Brynjólfur og samstarfsmenn hans
eru enn að þróa vefinn og setja inn nýja
notkunarmöguleika. „Við eigum eftir að
koma upp spjallborði auk þess sem við
munum bjóða fólki upp á að geta sam-
nýtt ættir.“ Ekki er hægt að sækja upp-
lýsingar um forfeður sína sjálfkrafa
en í haust verður boðið upp á leið til að
samnýta upplýsingar úr mörgum ætt-
artölum. „Ef fólk rekur ættir sínar að
sameiginlegum forföður mun það geta
samnýtt grunninn að því gefnu að báðir
aðilar heimili það,“ segir Brynjólfur,
sem stefnir að því að koma vefnum á fót
í fleiri löndum þegar fram líða stundir.
vera@frettabladid.is
BRYNJÓLFUR ÓMARSSON: OPNAR ÆTTARTAL.IS
Bitastæð ættartöl á vefnum
VINNUR AÐ VEFNUM Í KÍNA Brynjólfur, sem er búsettur í Kína, stefnir að því að koma vefnum á fót í fleiri löndum þegar fram líða stundir.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Sigríður Ingimundardóttir
Hornbrekku, Ólafsfirði,
lést á heimili sínu að Hornbrekku þann 7. ágúst sl.
Útförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn
15. ágúst kl. 14.00.
Gíslína Helgadóttir Ingimar Antonsson
Sigurður Helgason Ágústa Pétursdóttir
Hannes Helgason María Jónsdóttir
Ingimundur Helgason Arndís Friðriksdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Jónína Ágústsdóttir
áður Dalbraut 18, Reykjavík,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund þriðjudag-
inn 11. ágúst. Útförin verður auglýst síðar.
Ragnhildur Ásmundsdóttir Árni Arnþórsson
Óskar Már Ásmundsson
Þráinn Ásmun dsson Guðbjörg Árnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sonur minn, faðir, stjúpfaðir og afi,
Hörður Barðdal,
Brúnastöðum 17, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut að morgni
þriðjudagsins 4. ágúst, verður jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju miðvikudaginn 19. ágúst kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim
sem vildu minnast Harðar er bent á Íþróttafélag fatl-
aðra í Reykjavík.
Sesselja E. Guðnadóttir Barðdal
Jóhanna I. Barðdal
Sesselja E. Barðdal
Bergþóra Fanney Barðdal
Þórður V. Oddsson Marta E. Guðmundsdóttir
og barnabörn.
Árni Sigurbjörnsson
frá Grófargili, Kópavogsbraut 1b,
Kópavogi,
andaðist á líknardeild Landspítalans Landakoti þriðju-
daginn 28. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hins látna.
Jóhanna G. Gunnlaugsdóttir og fjölskylda,
systkini hins látna og fjölskyldur þeirra.
HALLE BERRY ER 43 ÁRA Í DAG
„Ég veit að ég er aðeins ein
manneskja og mitt framlag
er agnarsmátt.“
Bandaríska leikkonan Halle
Berry hlaut Óskarsverðlaun
árið 2002 fyrir hlutverk sitt
í myndinni Monster’s Ball.
Hún er eina blökkukonan sem
hefur hlotið Óskarsverðlaun
fyrir besta leik í aðalhlutverki.
Þennan dag árið 1942 var
Golfsamband Íslands stofn-
að en það er elsta sérsam-
bandið innan ÍSÍ.
Golfíþróttin hafði rutt sér
til rúms á Íslandi tæpum
áratug áður en læknarnir
Gunnlaugur Einarsson og
Valtýr Albertsson komust
í kynni við íþróttina þegar
þeir voru á ferðalagi um
Svíþjóð og Danmörku
snemma árs árið 1934.
Þegar eftir heimkomuna
hófu þeir undirbúning að
stofnun golfklúbbs í Reykja-
vík og hinn 14. desember
árið 1934 var Golfklúbb-
ur Íslands (nú Golfklúbbur
Reykjavíkur) formlega stofn-
aður.
Í fyrstu var tekið á leigu
svonefnt Austurhlíðarland
við Sundlaugarveg og þar
var fyrsti golfvöllur lands-
ins vígður hinn 12. maí árið
1935 en leigumálinn rann
út árið 1937. Hinn 1. ágúst
árið 1938 var níu holu golf-
völlur og klúbbhús vígt í
Öskjuhlíðinni en mannvirk-
in mörkuðu tímamót í sögu
golfsins.
Gunnlaugur Einarsson
gegndi fyrstur formennsku
í GSÍ en fyrsta landsmótið í
golfi var haldið sama ár og
sambandið var stofnað.
ÞETTA GERÐIST 14. ÁGÚST ÁRIÐ 1942
Golfsamband Íslands stofnað
GOLF Golfíþróttin er mjög vinsæl á
Íslandi í dag.
MERKISATBURÐIR
1942 Þýsk sprengjuflugvél sem
stefndi til Reykjavíkur er
skotin niður og er þetta
fyrsta óvinaflugvél sem
Bandaríkjamenn skjóta
niður yfir Evrópu í síðari
heimsstyrjöld.
1951 Fyrsti Lionsklúbbur á Ís-
landi stofnaður, Lions-
klúbbur Reykjavíkur.
1959 Alþingi samþykkir breyt-
ingu á skipan kjördæma á
Íslandi og er þeim fækkað
úr 28 í 8 um leið og þing-
mönnum er fjölgað úr 42
í 60.
1982 Rainier III, fursti af Món-
akó, og kona hans, Grace
Kelly, koma í heimsókn
til Íslands ásamt börnum
sínum tveimur, Carolinu
og Albert.
Hið árlega Stórmót Taflfélags Reykjavíkur og Árbæjar-
safns verður haldið sunnudaginn 16. ágúst klukkan 14.
Fyrir Stórmótið verður lifandi tafl á torginu í Árbæjar-
safni. „Við höfum gert þetta í nokkur ár. Þá teiknum við
taflborð á torgið, klæðum fólk upp á í búninga og tveir
fulltrúar frá Taflfélaginu standa uppi á svölum og hrópa
skipanir,“ segir Dagný Guðmundsdóttir, safnvörður í Ár-
bæjarsafni. Hún hefur safnað fólki saman á ýmsan máta.
„Ég hef smalað saman vinum og ættingjum og í ár notað-
ist ég líka við Facebook,“ segir hún glaðlega. Manntafl-
ið hefst klukkan 13 og verður án efa gaman að fylgjast
með uppáklæddum drottningum, konungum og hirðmönn-
um þeirra taka sér stöðu á skákvellinum en Dagný lofar
harðri baráttu.
Allir geta komið og fylgst með en þeir sem hafa áhuga
á að skrá sig til leiks á mót Taflfélagsins geta gert það í
símamiðasölu Árbæjarsafns og á mótsstað.
Kóngar og drottningar berjast
MANNTAFL Tveir spilarar stjórna hinum lifandi taflmönnum ofan af
svölum.