Fréttablaðið - 14.08.2009, Síða 34
22 14. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ólík hegðun kynjanna - innkaup
Karlar Konur
Nýársheit
1. Reyna að vera
vinsamlegur.
Njóttu
dagsins.
Takk.
Flott!
Þá get ég strikað
það út!
Sáðfruma
Hannesar
Smárasonar
Ég moka
innkeyrslur
fyrir þúsund-
kall....
Já, ég...
... á tímann.
Plús fæðispeninga,
tryggingar, orlof og
lífeyrissjóð.
Borgað fyrir fram.
Það er
greinilega
hart í ári!
En þú verður
auðvitað áfram
kylfusveinn!
1.
teigur
Láttu ekki svona,
Haraldur! Auðvitað
færðu að vera með
á seinni hringnum!
Ég hefði
getað orðið
maður með
mönnum!
Brauð
Brauð
Engir stórtónleikar með erlendum flytj-anda hafa verið haldnir hér á landi síðan Eric Clapton kom fram í Egilshöll-
inni fyrir rúmu ári. Stétt hljómleikahaldara
skellir skuldinni skiljanlega á hina mátt-
lausu íslensku krónu; segir að til einskis sé
að gera plön sem fara svo beinustu leið út
í bláinn þegar gjaldmiðillinn hoppar út og
suður – þrumustuð.
Alls voru haldnir sex stórtónleikar hér
á síðasta ári, með téðum Clapton, John
Fogerty, Bob Dylan, Whitesnake,
James Blunt og Paul Simon,
og tap varð á þeim öllum. Af
þessum giggum nennti ég bara
að mæta á Dylan og Paul Simon, en sé
dálítið eftir því að hafa ekki skellt mér
á Fogerty. Ástæða þess að ég fór ekki
er án efa sú að ég var hreinlega orðinn
mettur. Upp úr miðjum síðasta áratug
fóru nefnilega heimsins frægustu bönd
og tónlistarmenn (svona næstum því) að
streyma unnvörpum til landsins til tónleika-
halds, og áhorfendur gátu leyft sér að gerast
vandlátir á framboðið. Hefði mér boðist að
sækja tónleika með John Fogerty árið 1991
hefði ég ekki hugsað mig tvisvar um.
Á þeim tíma var lífið ósköp einfalt; Ef
erlendur flytjandi hélt tónleika hér á landi
var ég mættur í biðröðina til að kaupa miða,
burtséð frá því hvort ég fílaði tónlistina
eður ei. Hverjir einustu hljómleikar voru
heimssögulegur viðburður í augum ungs
tónlistarnörds, og ég undirbjó mig vandlega
fyrir þá alla.
Þess vegna togast á í mér tilfinningarnar.
Auðvitað er gaman að geta valið úr tónleik-
um. En það er líka dásamlega nostalgískt að
verða spenntur yfir væntanlegum tónleikum
Jethro Tull, bara vegna þess að þeir eru það
eina í boði næstu mánuði og jafnvel ár. Fátt
er svo með öllu illt.
Eftirsjá og tilhlökkun
NOKKUR ORÐ
Kjartan
Guðmundsson