Fréttablaðið - 14.08.2009, Page 38
26 14. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Hin einstæða sultugerðar-
keppni verður haldin tíunda
sinni í Mosfellsdalnum – en
heimamenn hafa nánast ein-
okað keppnina til þessa.
„Við konurnar í Mosfellsbænum
höfum einokað þessa keppni.
Reyndar var sigurvegarinn í eitt
skipti frá Garðabæ en annars er
þetta alger einstefna,“ segir Dísa
Anderiman sultugerðarkona með
meiru.
Dísa hefur verið prímus mótor í
starfsemi hins sérstæða og rómaða
markaðar í Mosfellsdal og á laugar-
daginn rennur upp stór stund. Þá
verður sjálf sultugerðarkeppn-
in haldin tíunda sinni. Dísa spar-
ar hvergi stóru orðin og eggjar
sultugerðarmenn til dáða. Segir
til dæmis karlmenn algjöra aum-
ingja í sultugerð því aldrei hafi þeir
komið til álita sem sigurvegarar.
„Aldrei karlmaður unnið og hafðu
það. Í fyrra tók vinur minn reynd-
ar þátt og lagði fram chutney sem
hann var afskaplega stoltur af – en
þá var verið að keppa í sultugerð og
hann fór nánast að gráta. Því hef ég
ákveðið að hafa riðla í þetta skipt-
ið,“ segir Dísa. Nú verður því keppti
í sultu-, chutney- og marmelaði-
gerð. Sérfræðingar munu þekkja
muninn en hinn heillandi heim-
ur sultugerðarinnar getur reynst
þeim sem ekki til þekkja framandi
eins og blaðamaður komst að þegar
Dísa tók að útskýra leyndardóma
sultugerðar innar. Hún segir þetta
reyndar ekki mikið mál: „Það þarf
ekki að taka nema tuttugu mín-
útur að gera sultu. En þú þarft
undir búning. Stela rabarbara ein-
hvers staðar eða fara út í Bónus
og kaupa appelsínur.“ Verðlaunin í
sultugerðar keppninni hafa í gegn-
um tíðina verið af ýmsum toga og
frumleg: Geit, landnámshæna … og
nú verður einmitt landnámshæna í
verðlaun sem og mánuður á hænu-
hóteli sem Dísa hyggst koma á fót,
verðlaunareitur í öðrum riðli og í
þeim þriðja fjársjóðskort yfir gjöf-
ul berjasvæði.
Væntanlegir þátttakendur skrá
sig ekki heldur mæta til leiks
klukkan eitt á útimarkaðinn og
leggja til sína sultukrukku merkta
dulnefni. Með skal fylgja umslag
merkt dulnefninu en þar í skal
vera rétt nafn sultugerðarmanns-
ins og uppskriftin. Dómarar hafa
verið nafntogaðir matgæðingar:
Siggi Hall, Diddú, Rúnar Mar-
vins – Dísa þylur nöfnin og endar
með að tilkynna að nú séu dómar-
ar þau Dóra á Næstu grösum og
Sæmi rokk. „Þau þekkja allt sem
heitir grös, grænmeti og ávextir á
Íslandi,“ segir Dísa – ókrýnd sultu-
drottning Íslands.
jakob@frettabladid.is
Karlar aumingjar í sultugerð
SULTUGERÐARKONUR HLÆJA AÐ KARLPENINGNUM Dísa, sultudrottning Íslands,
eggjar sultugerðarmenn til dáða en með henni (t.h.) er nágrannakona hennar
Svandís Matthíasdóttir – mikilvirk sultugerðarkona sem ætlar sér ekkert minna en
sigur í keppninni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Nicole Richie, sem á von á sínu
öðru barni í næsta mánuði með
tónlistarmanninum Joel Madden,
segist vera sjúk í hamborgara.
Samkvæmt Twitter-síðu Richie
borðar hún gjarnan seint á kvöld-
in og lendir það þá yfirleitt á Joel
að ná í matinn.
„Ég er sá sem þarf að fara
og annað hvort búa til samloku
fyrir hana eða kaupa hamborg-
ara, en það er oft klukkan tvö eða
þrjú á nóttunni. Þetta eru ekkert
óvenjulegir hlutir sem hún er
að sækjast í, það er bara á svo
óhentugum tíma sólarhringsins,“
segir Joel Madden, en saman eiga
þau Richie dótturina Harlow sem
er eins og hálfs árs.
Sjúk í
hamborgara
Bandaríski leikarinn Michael
Douglas segir að fjölskylda sín
sé eyðilögð yfir handtöku sonar
hans Cameron. Hann var tekinn
fastur í New York í síðasta mán-
uði grunaður um eiturlyfjasölu.
„Fjölskyldan er eyðilögð og
afar vonsvikin vegna hegðunar
Camerons,“ sögðu Douglas og
fyrrverandi eiginkona hans
Diandra í yfirlýsingu. „Allar fjöl-
skyldur sem hafa glímt við eitur-
lyfjanotkun vita hversu slæm
áhrif hún hefur.“ Cameron gæti
átt yfir höfði sér tíu ára fangelsi
verði hann fundinn sekur. Hann
hefur tvívegis áður verið hand-
tekinn í tengslum við eiturlyf.
Fjölskyldan
er eyðilögð
CAMERON DOUGLAS Sonur leikarans
Michaels Douglas, Cameron, er í slæm-
um málum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BORGARAR OG SAMLOKUR Oft lendir
það á Joel Madden að búa til eða sækja
mat fyrir Nicole Richie um miðja nótt.
> LANGAR Í BARN
Leikkonan Kate Hudson hefur átt í
ástarsambandi við hafnaboltakapp-
ann Alex Rodriguez í nokkra mán-
uði. Sambandið er víst orðið það
alvarlegt að Hudson er farin að
tala um barneignir. „Hún er ný-
orðin þrítug og hana langar í
annað barn. Hún vill að sonur
sinn, Ryder, eignist systkini
og er sannfærð um að þau
eigi eftir að eignast fallegt
barn saman,“ var haft eftir
heimildar manni.
Skemmti- og veitingastaðurinn
Café Cultura á Hverfisgötu held-
ur upp á sex ára afmæli sitt
um helgina og er fólk hvatt til
að mæta, skemmta sér og sjá
breytingarnar sem hafa verið
gerðar á staðnum. Í kjallaranum
er verið að opna nýtt rými sem
er tilvalið til tónleikahalds auk
tyrknesks eldhúss á staðnum
þar sem hægt verður gæða sér
á tyrkneskum mat og drekka
tyrkneskt kaffi. Um helgina
munu þeir DJ Kári, Joseph Rog-
ers, bræðurnir Erpur og Eyjó,
Dynamo Fog, Útidúr og Chuck
and Norris halda uppi stemning-
unni á Café Cultura.
Breytingar
hjá CulturaSvo virðist sem leikkonan
Sienna Miller sé komin með
nýjan mann upp á arminn.
Samkvæmt breska blaðinu
The Mirror er Sienna hætt
með leikaranum Balthaz-
ar Getty og farin að hitta
breskan plötusnúð, George
Barker. Parið á að hafa
hist fyrr á árinu og eru
þau að sögn vina mjög
hamingjusöm saman.
„Þetta er enn mjög nýtt
og nokkuð afslappað, en
Sienna og George virð-
ast mjög ánægð saman.
George er mjög heil-
steyptur og góður strákur
og þau eiga marga sam-
eiginlega vini. Hann er
ekki frægur og hann hefur
engan áhuga á að verða
frægur og hann er á lausu,
sem er plús. Hann er mjög
mikill áhugamaður um
tónlist og hefur verið að
kynna Siennu fyrir nýjum
tónlistar stefnum. Þau hitt-
ust fyrr á árinu og eru nú
að tala um að fara í frí til
Ibiza saman,“ var haft eftir
vini parsins.
Fyrrverandi kærasti
Siennu, leikarinn Balthazar
Getty, var enn kvæntur
þegar þeirra samband hófst
og hlaut Sienna mjög slæmt
umtal í kjölfarið sem hafði
mikinn áhrif á starfsferil
hennar.
Ógiftur kærasti handa Siennu
SIENNA MILLER
Opið
Föstudag
Laugardag
Sunnudag
12 - 18
12 - 16
13 - 16
Slim - 3ja sæ
ta kr. 169.80
0 I Tilboðsve
rð kr. 135.84
0
2401 - Leðursó
fi kr. 324.800
I Tilboðsverð k
r. 194.880
3050 - Leðursófi kr. 284.000 I Tilboðsverð 169.000
Akralind 9
201 Kópavogur
Sími 553 7100
www.linan.is
Ný sófasending
Seljum eingöngu beint af
lager okkar sem er aðeins
opinn um helgar.
Lítil yfirbygging = betra verð
Edge - Hornsófi 280x200 kr. 298.700 l Tilboðsverð kr. 238.900
Litir: Sand og Night