Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.08.2009, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 14.08.2009, Qupperneq 42
30 14. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is Grindvíkingurinn Óli Stefán Flóventsson staðfesti í gær að hann hefði greinst með svínaflensuna. Níu aðrir leikmenn liðsins veikt- ust einnig skyndilega eftir síðustu helgi og er talið líklegt að þeir séu með sams konar flensu, en rannsóknir á sýnum munu leiða það í ljós í dag. „Ég fékk staðfestingu á að um svínaflensu væri að ræða í hádeg- inu í dag [í gær] og er búinn að vera rosalega veikur en er að rífa mig upp úr þessu og er nú orðinn hitalaus. Ég fékk mikinn hita á mánudagsmorgun og fann þá fyrir miklum haus- og bein- verkjum, fann fyrir særindum í hálsi og hóstaði sífellt meira og meira. Mér skilst að samkvæmt reglum landlæknisembættisins þurfi menn að halda kyrru fyrir í viku á eftir,“ segir Óli Stefán. Hann gerir sér ekki almennilega grein fyrir því hvernig eða hvenær hann hafi smitast en segir augljóst að ekki þurfi mikið til. „Ég var byrjaður að hósta eitthvað á laugardegin- um og læknarnir halda að ég hafi líklega verið orðinn smitberi þá. Það var hins vegar ekkert verið að spá neitt í þetta og menn áttuðu sig ekkert á þessu. Zoran [Stamenic] var orðinn veikur á laugardeginum og gat ekki spilað leikinn á sunnudeginum vegna veikindanna og ég sit einmitt hliðina á honum í klefan- um, þannig að það þarf líklega lítið til að menn smitist. Við vorum líka allir að drekka úr sömu vatnsbrúsunum og annað slíkt,“ segir Óli Stefán. Óli Stefán segir mikilvægt að önnur lið í deildinni geri ráðstafanir um leið og einhver leikmaður finni fyrir einkennum og taki þann mann bara úr umferð. „Það er mikilvægt að einblína á það núna að önnur lið í deildinni hafi varann á, því þetta er bráðsmitandi andskoti. Þetta gæti vissulega sett strik í reikninginn á Íslandsmótinu ef heilu liðin fara að hrynja niður í flensu hvert á fætur öðru. KSÍ hlýtur annars að þurfa að taka þetta með í reikninginn. Þetta er bara faraldur og fleiri lið eiga eftir að lenda í þessu.“ Grindvíkingar hafa þegar sótt um frestun til mótanefndar KSÍ á næsta leik sínum í Pepsi- deildinni gegn ÍBV á sunnudag. ÓLI STEFÁN FLÓVENTSSON: GREINDIST MEÐ SVÍNAFLENSUNA Í GÆR EN AÐRIR NÍU LEIKMENN GRINDAVÍKUR VEIKTUST Mikilvægt að önnur lið í deildinni geri ráðstafanir > Heimir framlengdi við FH Heimir Guðjónsson hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild FH og verður þjálfari meistaraflokks félagsins til loka tíma- bilsins 2011. Heimir stýrir nú FH annað tímabilið í röð, en hann tók við liðinu af Ólafi Jóhannessyni, núverandi landsliðsþjálfara. Undir stjórn Heimis varð FH meistari í fyrra og er með dágóða forystu á toppi deildarinnar nú. Heimir varð einnig Íslandsmeist- ari með FH sem leikmaður. 1. deild karla KA-Afturelding 2-1 0-1 Albert Ástvaldsson (35.), 1-1 David Disztl (42.), 2-1 David Disztl (56.). ÍA-Haukar 0-1 0-1 Úlfar Pálsson (4.). Víkingur R.-Leiknir R. 1-2 0-1 Ólafur Kristjánsson (75.), 1-1 Marteinn Briem (78.), 1-2 Ólafur Kristjánsson (90. +1). Víkingur Ó.-Selfoss 1-6 1-0 Brynjar Guðjónsson, 1-1 Hjörtur Hjartarson, 1-2 sjálfsmark, 1-3 Stefán Gunnlaugsson, 1-4 Arilíus Marteinsson, 1-5 og 1-6 Sævar Gíslason. STAÐAN Í DEILDINNI 1. Selfoss 16 11 2 3 34-18 35 2. Haukar 16 9 4 3 31-18 31 3. KA 16 7 5 4 23-15 26 4. HK 15 8 2 5 27-21 26 5. Leiknir R. 16 6 6 4 22-20 24 6. Fjarðabyggð 15 7 2 6 25-25 23 7. Víkingur R. 16 6 3 7 27-24 21 8. Þór 15 7 0 8 21-22 21 9. ÍR 15 6 1 8 27-34 19 10. ÍA 16 4 5 7 20-23 17 11. Aftureld. 16 3 5 8 17-26 14 12. Víkngur Ó. 16 2 1 13 16-44 7 HM U-21 árs í handbolta Ísland-Noregur 34-24 (20-11) Mörk Íslands: Ólafur Gústafsson 6, Oddur Grét- arsson 5, Rúnar Kárason 5, Ásbjörn Friðriksson 5, Ólafur Bjarki Ragnarsson 4, Guðmundur Árni Ólafsson 4, Anton Rúnarsson 3, Bjarni Aron Þórðarson 1, Hjálmar Þór Arnarson 1. Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 18, Ingvar Kristinn Guðmundsson 5. *Ísland keppir um 13.-14. sæti í mótinu. ÚRSLIT FÓTBOLTI Það styttist óðum í Evr- ópumótið í Finnlandi og íslenska kvennalandsliðið er nú komið saman fyrir lokaundirbúning sinn. Ein stærsta ákvörðunin sem bíður Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar er að velja á milli tveggja frábærra markvarða liðsins en Þóra Björk Helgadóttir og Guðbjörg Gunn- arsdóttir hafa aldrei verið í betra formi og hafa báðar farið á kost- um með liðum sínum í Noregi og Svíþjóð. Þjálfarar Pepsi-deildar kvenna eru þó nánast á einu máli um hvor eigi að vera í markinu því átta af tíu segja að Þóra eigi að vera mark- maður númer eitt. Fréttablaðið kannaði skoðanir tíu þjálfara Pepsi-deildar kvenna á nokkrum hlutum varðandi lands- liðið og EM. Þjálfararnir voru, auk þess að velja markmann liðs- ins, spurðir hver væri mikilvæg- asti leikmaður liðsins, hver kæmi mest á óvart á EM og hvernig lið- inu myndi ganga. Þóra hefur meiri reynslu Þóra Björg Helgadóttir fær atkvæði átta af tíu þjálfurum. „Þóra á að klára sinn landsliðs- feril þarna,“ sagði einn þjálfarinn og flestir tala um að hún hafi meiri reynslu en Guðbjörg og það ráði úrslitum. „Þóra fær mitt atkvæði, mér finnst hún betri markmaður og hún er best undir mikilli pressu og álagi. Hún stýrir vörninni vel og gefur henni sjálfstraust með miklu öryggi í sínum leik. Einnig hef ég séð hana á æfingum núna og hún er í hörkuformi,“ sagði annar þjálfari úr Pepsi-deildinni. Guðbjörg fær aðeins tvö atkvæði þrátt fyrir að hafa staðið sig frá- bærlega með Djurgården á sínu fyrsta ári í sænsku deildinni. „Guð- björg á að standa í markinu, hún er á toppi síns ferils að spila gríðar- lega vel í einni af þrem sterkustu deildum heims. Hungrið og vilj- inn fyrir því að spila knattspyrnu í háum gæðaflokki um ókomna tíð er til staðar. Hún er því sá mark- vörður sem ver mark liðsins næstu árin og á að fá þessa reynslu á EM í ár,“ sagði annar þjálfarinn og hinn segir að þær séu jafngóðar en að það sé meiri framtíð í Guð- björgu. Allir ættu að fá góða vísbend- ingu um hvor þeirra verður í mark- inu þegar Ísland mætir Serbíu á Laugardalsvellinum á laugardag- inn. Margrét Lára og Katrín mikilvæg- astar Fimm leikmenn íslenska liðsins fengu atkvæði sem mikilvægasti leikmaður liðsins. Markadrottning- in Margrét Lára Viðarsdóttir fékk flest atkvæði eða fimm en fyrir- liðinn Katrín Jónsdóttir fékk fjög- ur atkvæði, þar af tvö sem hluti af mikilvægu miðvarðarpari með Guðrúnu Sóleyju Gunnarsdóttur. Einhverjir þjálfarar áttu erfitt með að gera upp á milli. „Þetta er gríðarlega erfið spurning, ég met þetta þannig að miðvarðarparið og Margrét Lára séu mikilvægustu leikmenn Íslands eins og stend- ur og ég get ekki gert upp á milli þeirra,“ sagði einn þjálfarinn. Skarð Margrétar Láru verður ekki fyllt að mati margra þjálfar- anna. „Liðið þarfnast leikmanns sem hefur sannað sig sem marka- skorari á stóra sviðinu á móti frá- bærum vörnum og vel skipulögð- um liðum,“ sagði einn og annar átti erfitt með að gera upp á milli Katrínar og Margrétar en komst samt að niðurstöðu. „Það er eigin- lega engin sem getur fyllt skarð Margrétar, eigum því miður ekki annan senter eins og Margréti þannig að ég held að hún fái mitt atkvæði.“ Katrín fær mikið hrós frá þjálf- urunum. „Hún er svakalegur leið- togi, skorar mikilvæg mörk og á eftir að drífa liðið áfram,“ sagði einn um fyrirliða íslenska liðsins og annar var á svipuðum nótum. „Katrín er mikill leiðtogi í þessu liði bæði innan vallar og utan og stelpurnar bera mikla virðingu fyrir henni.“ Katrín og Sara Björk koma á óvart Átta leikmenn íslenska liðsins fengu tilnefningu til þess að koma mest á óvart en þær Katrín Ómars- dóttir og Sara Björk Gunnarsdótt- ir fengu báðar tvö atkvæði. Einn þjálfarinn talaði þó um að það kæmi ekkert á óvart í þessu liði. Flestir þjálfaranna eru bjartsýn- ir á gengi íslenska liðsins á mótinu og sjö af tíu þjálfurum spá því að íslenska liðið komist upp úr riðlin- um. „Ég hef trú á því að ef við náum góðum úrslitum úr þeim leik og verðum ekki fyrir meiðslum, þá nái liðið frábærum árangri,“ sagði einn og annar er á svipuðum nótum. „Ég hef mikla trú á þessum stelp- um sem eru búnar að leggja mikið á sig til þess að toppa núna á EM.“ Þrír þjálfaranna telja að liðið komist ekki áfram. „Þær munu standa í öllum liðum en fara ekki upp úr riðlinum. Til þess er riðill- inn of sterkur og við erum enn með of marga farþega í hópnum sem hafa engu að bæta við þetta lið,“ sagði einn þjálfarinn, sem trúir ekki á að liðið fari í átta liða úrslitin. Fréttablaðið þakkar góð við- brögð þjálfaranna tíu í Pepsi-deild kvenna við þessari könnun. Nú er bara að bíða og sjá hvernig stelp- urnar okkar standa sig þegar á hólminn er komið í Finnlandi. ooj@frettabladid.is Þóra á að vera í markinu á EM Fréttablaðið leitaði til þjálfara liðanna í Pepsi-deild kvenna og spurði þá nokkurra spurninga varðandi ís- lenska kvennalandsliðið sem er á leiðinni á lokakeppni Evrópumótsins í Finnlandi síðar í þessum mánuði. ERFITT VAL Landsliðsþjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson þarf að ákveða hver verður markvörður númer eitt á EM í Finnlandi en Guðbjörg Gunnarsdóttir og Þóra Björk Helgadóttir hafa báðar verið sjóðandi heitar með félagsliðum sínum undanfarið. Þjálfarar Pepsi-deildar kvenna eru á því að Sigurður Ragnar eigi að velja Þóru Björk. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON NIÐURSTÖÐURNAR Hvort á Þóra eða Guðbjörg að standa í markinu? Þóra Björg Helgadóttir 8 atkvæði Guðbjörg Gunnarsdóttir 2 Hver er mikilvægasti leikmaður íslenska liðsins? (sumir þjálfarar gáfu fleiri en eitt atkvæði) Margrét Lára Viðarsdóttir 5 atkvæði Katrín Jónsdóttir 4 Guðrún Sóley Gunnarsdóttir 1 Edda Garðarsdóttir 1 Hólmfríður Magnúsdóttir 1 Hvaða leikmaður mun koma mest á óvart á EM? Katrín Ómarsdóttir 2 atkvæði Sara Björk Gunnarsdóttir 2 Kristín Ýr Bjarnadóttir 1 Guðný Björk Óðinsdóttir 1 Fanndís Friðriksdóttir 1 Margrét Lára Viðarsdóttir 1 Rakel Hönnudóttir 1 Erna Björk Sigurðardóttir 1 Hvernig mun íslenska liðinu ganga? Upp úr riðlinum 7 atkvæði Ekki upp úr riðlinum 3 FÓTBOLTI Knattspyrnustjórinn Simon Davey hjá enska b-deildar- félaginu Barnsley er sannfærður um að landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson muni í dag skrifa undir samning við félagið eftir að Barnsley og Reggina komust að samkomulagi um lánssamning á dögunum. Ítalskir fjölmiðlar greindu síðar frá því að leikmaðurinn sjálfur vildi ekki fara til Eng- lands, en ef marka má Davey gæti Emil verið í leikmanna- hópi Barnsley fyrir leikinn gegn Aroni Einari Gunnarssyni og félögum í Coventry á morgun. „Við munum setjast niður með Emil á föstudagsmorgun og þá verður vonandi gengið frá samn- ingi. Síðan þurfum við að fá leik- heimild frá knattspyrnusam- bandi Íslands og þá ætti hann að ná leiknum gegn Coventry,“ segir Davey í viðtali á opinberri heima- síðu Barnsley. - óþ Simon Davey, Barnsley: Emil vonandi klár í næsta leik EMIL Líklega á leiðinni í ensku b-deild- ina eftir allt saman. NORDIC PHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.