Fréttablaðið - 14.08.2009, Side 48

Fréttablaðið - 14.08.2009, Side 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Brynhildar Björnsdóttur Í dag er föstudagurinn 14. ágúst 2009, 226. dagur ársins. 5.16 13.32 21.46 4.49 13.17 21.42 Ísland í dag er í viðtengingar-hætti. Fréttatímar hefjast gjarna á orðinu „Ef“ og síðan koma langar vangaveltur um hvað gæti gerst ef eitthvað annað gerist eða gerist ekki fyrst. Ef Icesave-samn- ingurinn verður samþykktur, ef það eru til einhverjir peningar til að borga skuldirnar, ef loftslags- breytingar halda áfram með sama hraða, ef Íslendingar fá að ganga í Evrópusambandið, ef þeir vilja það svo ekki, ef það verður kosið núna, virkjað á hálendinu, jarðskjálfti, súld á miðum ... EF er þó enn verra í þátíð. Ef ein- hverjir hefðu ekki sagt það sem þeir sögðu eða gert það sem þeir gerðu, ef við hefðum ekki kosið eins og við kusum og svallað eins og við svölluðum þá værum við miklu betur stödd í dag. Eins og sú vitneskja breyti einhverju. EF-FRÉTTIRNAR eru best til þess fallnar að valda kvíða. Þar sem enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér eru möguleikarn- ir óteljandi. Hver sérfræðingurinn af öðrum kemur með sína skoðun á því sem gerðist og sína túlkun á því sem koma skal. Fyrst voru það hagfræðingar, nú lögfræðing- ar. Og engir tveir eru sammála. Á þetta höfum við svo hlustað í næst- um því heilt ár án þess að skilja upp eða niður og án þess að vera miklu nær. Er kreppan búin að ná botninum? Hvað þurfum við að herða sultarólina mikið fastar? Kemst ég einhvern tíma aftur til útlanda? Verða til bananar hér á næsta ári? Fá börnin mín almenni- lega menntun? Í óvissunni miðri er léttir þegar öruggar og efalausar staðreyndir eru bornar á borð. Hinn áttunda ágúst var þetta helst í fréttum: „Formaður Rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið segir að nefndin færi þjóðinni líklega verri fréttir en nokkur nefnd hafi áður þurft að gera. Nefndin birtir niður- stöður sínar 1. nóvember.“ ÞAÐ er gott að vita hvað er fram undan. Þá er hægt að kvíða fyrir raunverulegum atburðum í stað- inn fyrir að liggja andvaka milli vonar og ótta um hvort allt fer á besta eða versta veg. Það hefði til dæmis verið frábært í ágúst í fyrra að vita hvað yrði helst í fréttum í nóvember. Við hefðum öll sofið svo miklu betur. Í öllum efasemdunum sem gegn- sýra samfélagið þessa dagana er eitt alveg pottþétt. Hinn fyrsta nóvember fæ ég verri fréttir en nokkur nefnd hefur nokkurn tíma fært nokkrum Íslendingi fyrr og síðar. Ég hlakka til. Ef að væri Skólatöskur verð frá 1.995 kr. Blýantar verð frá 25 kr . Landsins mes ta úrval af yddur um Pennaveski Bóksali frá 187 2 Landsins mes ta úrval af yddur um Skólabókardæmi Eymundsson fylgir með blaðinu í dag

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.