Fréttablaðið - 14.08.2009, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
Í dag er föstudagurinn 14. ágúst
2009, 226. dagur ársins.
5.16 13.32 21.46
4.49 13.17 21.42
Ísland í dag er í viðtengingar-hætti. Fréttatímar hefjast
gjarna á orðinu „Ef“ og síðan koma
langar vangaveltur um hvað gæti
gerst ef eitthvað annað gerist eða
gerist ekki fyrst. Ef Icesave-samn-
ingurinn verður samþykktur, ef
það eru til einhverjir peningar til
að borga skuldirnar, ef loftslags-
breytingar halda áfram með sama
hraða, ef Íslendingar fá að ganga í
Evrópusambandið, ef þeir vilja það
svo ekki, ef það verður kosið núna,
virkjað á hálendinu, jarðskjálfti,
súld á miðum ...
EF er þó enn verra í þátíð. Ef ein-
hverjir hefðu ekki sagt það sem
þeir sögðu eða gert það sem þeir
gerðu, ef við hefðum ekki kosið
eins og við kusum og svallað eins
og við svölluðum þá værum við
miklu betur stödd í dag. Eins og
sú vitneskja breyti einhverju.
EF-FRÉTTIRNAR eru best til
þess fallnar að valda kvíða. Þar
sem enginn veit hvað framtíðin
ber í skauti sér eru möguleikarn-
ir óteljandi. Hver sérfræðingurinn
af öðrum kemur með sína skoðun
á því sem gerðist og sína túlkun
á því sem koma skal. Fyrst voru
það hagfræðingar, nú lögfræðing-
ar. Og engir tveir eru sammála. Á
þetta höfum við svo hlustað í næst-
um því heilt ár án þess að skilja
upp eða niður og án þess að vera
miklu nær. Er kreppan búin að ná
botninum? Hvað þurfum við að
herða sultarólina mikið fastar?
Kemst ég einhvern tíma aftur til
útlanda? Verða til bananar hér á
næsta ári? Fá börnin mín almenni-
lega menntun?
Í óvissunni miðri er léttir þegar
öruggar og efalausar staðreyndir
eru bornar á borð. Hinn áttunda
ágúst var þetta helst í fréttum:
„Formaður Rannsóknarnefndar
Alþingis um bankahrunið segir að
nefndin færi þjóðinni líklega verri
fréttir en nokkur nefnd hafi áður
þurft að gera. Nefndin birtir niður-
stöður sínar 1. nóvember.“
ÞAÐ er gott að vita hvað er fram
undan. Þá er hægt að kvíða fyrir
raunverulegum atburðum í stað-
inn fyrir að liggja andvaka milli
vonar og ótta um hvort allt fer á
besta eða versta veg. Það hefði til
dæmis verið frábært í ágúst í fyrra
að vita hvað yrði helst í fréttum í
nóvember. Við hefðum öll sofið svo
miklu betur.
Í öllum efasemdunum sem gegn-
sýra samfélagið þessa dagana er
eitt alveg pottþétt. Hinn fyrsta
nóvember fæ ég verri fréttir en
nokkur nefnd hefur nokkurn tíma
fært nokkrum Íslendingi fyrr og
síðar. Ég hlakka til.
Ef að væri
Skólatöskur
verð frá 1.995
kr. Blýantar
verð frá 25 kr
.
Landsins mes
ta
úrval af yddur
um
Pennaveski
Bóksali frá 187
2
Landsins mes
ta
úrval af yddur
um
Skólabókardæmi
Eymundsson
fylgir með
blaðinu í dag