Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1945, Blaðsíða 4

Samvinnan - 01.04.1945, Blaðsíða 4
SAMVINNAN 4. HEFTI landrými. Víða var landareign heimilisins fjölbreyttur heimur. Landslag margbreytt, störf fjölbreytt, bæði við búsmalann, veiðar, heyföng og ferðalög. Börnin voru starfsfélagar fullorðna fólksins og gátu í einu fullnægt leikþrá sinni og athafnalöngun. Þau lærðu móðurmálið af fullorðna fólkinu, við störfin, af lestri helgirita og hetjusagna. Með þessum hætti ólust upp Snorri goði, Gunnlaugur ormstunga, Ari fróði, Jón Loftsson, Snorri Sturluson, Þórður kakali, Hrafn Oddsson, Ögmundur Pálsson, Jón Arason, Jón á Sval- barði, Arngrímur lærði, Hallgrímur Pétursson, Jón Vídalín, Skúli fógeti, Jón Eiríksson, Fjölnismenn, Jón Sigurðsson, Grímur Thomsen, Gröndal, Matthías, Steingrímur, Einar Jónsson, Hallgrímur Kristinsson, Torfi í Ólafsdal og Jóhannes Kjarval, til að nefna nokkur nöfn kunnra afburðamanna frá öllum tíma- bilum þjóðarsögunnar. Einkenni íslenz-ku þjóðar- innar frá upphafi vega og til síðustu ára hafa mótast af uppeldi í dreifbýli, við samstarf barna og fullorð- inna, litla eða enga skólagöngu á æskuárum en stöð- ugt sambland líkamlegrar áreynslu við dagleg störf, og ástundun andlegra verðmæta. Einkenni hins þjóð- lega íslenzka uppeldis er, að það hefir verið byggt á fjölþættu starfi, frelsi og sjálfsábyrgð. Nú er stefnt að því að gerbreyta öllu uppeldi ís- lendinga. Það á að einangra börnin frá heimilunum og starfinu. Börnin eiga að nema móðurmálið hvert af öðru, en ekki af samfélagi við foreldra og fullorðin systkini. í stað frelsis á að koma þvingun. í stað heim- ila uppeldisverksmiðjur. í stað fjölbreyttra starfa og óbundins bókalesturs eiga að koma margra ára í- troðningur misjafnra yfirheyrslumanna á misjöfn- um skólabókum. Hér geta orðið vegamót, ef þjóðin gætir ekki að sér í tíma. Samvinnumönnum ber að gæta sérstakrar varúðar. Þeir hafa átt góðan þátt í að efla þjóðaruppeldið með því að leitast við að gera þá skóla, sem þeir reistu, stór og fullkomin heimili, þar sem unnt var að láta beztu einkenni hins forna uppeldis njóta sín með alveg óvenjulegum hætti. Hið þvingaða uppeldi. Það er talið sennilegt, að núverandi menntamála- ráðherra muni leggja fyrir Alþingi á hausti kom- anda frumvarp um hið nýja uppeldi. Þar er gert ráð fyrir að börn og unglingar eigi að sinna samstæðri skólagöngu um átta ára skeið, frá 7—15 ára. í þessu skyni er ætlazt til, að byggðir verði heimavistarskól- ar um land allt til að mæta þessari þörf. Foreldrar í sveitum eiga samkvæmt þessu nýja skipulagi, að láta börn sín af höndum til kennaranna og hafa þau þar í bóklærðu iðjuleysi vetur eftir vetur, að frátöldum hæfilegum leyfum. Þegar bamaskólanum sleppir taka við gagnfræðaskólarnir. Héraðsskólarnir eiga að leggjast niður, en verða í þess stað gagn- fræðaverksmiðjur sveitanna. Mikið þarf að auka húsa- köstinn, því að Laugarvatn myndi hvergi nætrri nægja æskunni úr Árnesþingi, sem þangað verður að sækja samkvæmt valdboði löggjafans. Ekki er ætlast til að Alþingi setji skipulega löggjöf um, hvað kenna skuli í þessum nýju fræðsluverksmiðjum, heldur beri kennslumálaráðherra að mestu sá ákvörðunarréttur og úrskurðarvald. — Síðan eiga menntaskóli og háskóli að taka við straumnum frá allsherjarprófi gagnfræðaskólanna. Þetta uppeldiskerfi á að starfa eins og risakvörn. Ríkið tekur börnin sjö ára í sínar hendur með fulkominni lagaþvingun. Það sendir börnin úr einum skóla í annan, allan þroskatímann. íslendingar sögðu forðum: Sjálfur leið þú sjálfan þig. Nú á að segja við íslendinga: Foreldrar skulu sviptir börnum sínum. Börnin skulu einangruð frá heimilinu og vandamönnum. Móðurhöndin á ekki lengur að hlynna að börnum landsins, heldur vanda- lausar manneskjur, þjálfaðar í kaupkröfufélögumr sem framkvæma uppeldisverkin ýmist fyrir fast mán- aðarkaup eða í vellaunaðri eftirvinnu. Heimilisuppeldi — verksmiffjuuppeldi. Á fyrri árum yfirstandandi styrjaldar var börnum úr Reykjavík og stærri kaupstöðunum komið fyrir á sumrin í stærstu skólum sveitanna. Ég kynntist aff- stöðunni í einum þessara skóla. Þar voru 100 börn, og til eftirlits og kennslu nokkrir kennarar, sumir kunnir menn í fremstu röð í stétt sinni. Börnin höfffu björt og hlý húsakynni, góðan mat og aðgang aff sundlaug og leikfimihúsi. Auk þess röska kennara, sem fúsir voru að fræða þau. En börnin voru samt leið á þessari paradísarvist. Þau höfðu raunverulega ekkert að gera við sitt hæfi, sennilega þreytt á 'lexíu- lestri frá undangengnum námsárum. Þau urðu skap- ill og vond í sambúð. Þegar reynt var að láta drengina fitla við moldarvinnu, sóttu þeir á, að reka spaðana hver í annan og drógu þá ekki af kröftunum. Einn drengur, 10—11 ára, var svo óþekkur, að hann þótti ekki hæfur til að vera með í hópnum. Honum var komið fyrir hjá bónda í sveitinni, þar sem eitt barn var fyrir. Kaupstaðardrengurinn gerbreyttist á svip- stundu. Hann varð fylgispakur bónda við öll störf, einkum allt, sem laut að meðferð húsdýranna. Dreng- urinn, sem ekki reyndist sambúðarhæfur í 100 barna iðjulítilli skólavist, varð við margbreytta vinnu sveita- heimilis hvers manns hugljúfi og fús til þátttöku í margvíslegum störfum. Um haustið vildi drengurinn vera kyrr í sveitinni. Það varð að vísu ekki, en hann 108

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.