Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1945, Blaðsíða 7

Samvinnan - 01.04.1945, Blaðsíða 7
SAMVINNAN 4. HEFTI hönd þjóönýtingarinnar á þessa þroskamiklu menn- ingarstöð, sem dafnað hefur í skjóli hugsjóna og frels- is í Reykjanesi, og mörg önnur hliðstæð menntasetur hér á landi. Námsþreytan og afleiðingar hennar. Mjög hefur brytt á því, síðan hið erlenda skóla- kerfi tók að ryðja sér til rúms, að hin langa bekkja- seta með þrálátum kennslubókayfirheyrslum hefði sijógvandi áhrif á þá, sem mest urðu fyrir þessari aðbúð. Eru þess mýmörg dæmi, að vel gefnir menn, sem haldið hefur verið við einhliða bóknám, fjarri störfum heimilanna, frá sjö ára aldri og fram um Þrítugt, hafa misst viljaþrek og starfsgáfur, svo að þeir eru ekki hæfir til að leysa af hendi nema vélræn störf. Nálega engir þeir menn, sem bera af um meðferð bróðurmálsins hafa búið við þess háttar kennslu- þvingun. Þegar heimaalinn piltur úr Öræfum féll fyrir bokkrum árum í jökulsprungu en var bjargað eftir alllanga stund, ritaði hann skýrslu um málið, sem tesin var í útvarpinu. Var það mál manna, sem báru skyn á þess háttar málefni, að enginn jafnaldri pilts- ins, sem setið hefði á skólabekk frá sjö ára aldri, hefði getað ritað svo rithöfundarlega um slíkt ævin- týri. hað hefði verið mikil gifta, ef Einar Arnórsson, sem skipaði milliþinganefnd þá, sem tekið hefur sér fyrir hendur að eyðileggja frjálst uppeldi á íslandi, hefði falið þessari nefnd eða annarri nefnd það mikils- verða verkefni að rannsaka ástæðuna til þess að hámsþreytan er að draga dug og mátt úr mörgum æskumönnum, í stað þess að uppeldisráðstafanir Þjóðarinnar eiga að hafa gagnstæð áhrif. hað hefði verið lofsvert að hefja baráttu gegn stór- brn skólabyggingum í Reykjavík, þar sem nemenda- fjöldinn er svo mikill, að hvorki skólastjóri eða kenn- arar hafa nokkur veruleg persónuleg kynni af börnun- Urn. Vel hefði farið á, að mótmæla þeim ósið, að vekja ^lenzk börn í skammdeginu klukkan sjö að morgni, til að knýja þau áleiðis til einhliða bókfræðaáreynslu. hefði verið sæmilegt verkefni fyrir uppeldisfræð- lnga að leggja ráð á, hversu börn gætu haft nægi- iega kröftuga fæðu, þar á meðal lýsi, og hversu hægt V0eri að koma börnunum af götunni til svefnhvíldar a hentugum tíma á kvöldin. Ef til vill er allra þýð- ingarmesta atriðið í öllum uppeldismálum landsins, hversu hægt er að flytja hugsjón héraðsskólalag- abna frá 1939 inn á hin-sólbrenndu svið námsþreyt- ánnar, en það er sama og að tengja þráðinn aftur VlS hið þjóðlega uppeldi, þar sem saman var ofið í kúsund ár dagleg störf, andleg vinna og íþróttir eða ^að> sem jafngilti þeim, eins og ferðalög í veglausu landi. Það má að vísu harma það, að jafn greindur maður og Einar Arnórsson er, skyldi ekki setja nefnd til að gera það sem mest lá á við athugun uppeldis- málanna. Samt má vel vera að nefndarskipun hans verði til nokkurs gagns, með því að vekja umræður, sem þörf var á um skaðsemi hins þvingaða uppeldis. Markalínur uppeldismálanna. Meðan íslandi var stjórnað með harðri hendi af framandi þjóð, voru brotin skörð í menningarvirki íslendinga. Flutningur lærðaskólans frá Bessastöð- um til Reykjavíkur var fyrsti sigur erlendu stefn- unnar. Síðan hefur mjög verið höggvið í hinn sama knérunn með erlenda skólaskipun, erlendar kennslu- bækur og erlendar fyrirmyndir við bóklegar yfir- heyrslur. Víðtæk námsþreyta hefur fylgt í slóð þess- ara aðgerða. Lokabarátta hinnar erlendu stefnu er nú að hefjast með kröfunni um að knýja börn og unglinga úr heimilum, og undan uppalandi áhrif- um foreldranna í yfirheyrsluverksmiðju ríkisvaldsins. Gegn þessu ofbeldi mun rísa öflug mótalda, er mun að lokum sigra eins og þjóðlegir íslendingar urðu yfir- sterkari erlenda valdinu og konungkjörnu auðmýkt- inni í frelsismálum þjóðarinnar. Hin forna íslenzka menning á enn djúpar rætur í þjóðinni. Foreldrar munu ekki umyrðalaust afhenda börn sín í yfir- heyrsluverksmiðjur. Hið fjölbreytta, frjálsa og dáð- mikla uppeldi héraðskólanna hefur sýnt, að þar var stefnt að réttu marki. Þá mun fyrirmyndReykjaness- skólans ekki verða gleymd. Fólkið í dreifbýlinu verð- ur að marka nýja stefnu í uppeldismálinu, en á þjóð- legum grundvelli. Það þarf að efla hrausta, dugandi og starfsama barnakennarastétt í landinu. Vel fær kennari getur kennt og haft eftirlit með 50 börn- um. Kennarinn þarf að hafa litla jörð í sveit, geta tekið heim 10—15 börn í einu. Hann þarf að hafa hentugt bókasafn fyrir börn og unglinga og dreifa bókum um byggðina. Takmarkið með slíkri kennslu er að treysta á heimilin eftir því sem frekast má verða, og taka ekki börnin í heimavistarskóla frá foreldrum nema að því leyti, sem nauðsyn krefur. Heimilisuppeldið er þá aðalatriðið. Börn læra málið af fullorðnu fólki og við dagleg störf. Bandið milli foreldra og barna er ekki rofið á óeðlilegan hátt. Skólinn sendir bækur á heimilin til barnanna, til að mæta eðlilegu fróðleikshungri æskumanna, sem ekki eru ofmettir á lexíulestri og yfirheyrslum. Skólinn hjálpar heimilinu með þá þætti fræðslunn- ar, sem teljast mega nauðsynlegir, en ekki er hægt að inna af hendi af foreldrum skólabarna og eldri systkinum. íslendingar fundu glöggt, frá 1264—1944, að það 111

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.