Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1945, Síða 8

Samvinnan - 01.04.1945, Síða 8
SAMVINNAN 4. HEFTI var ekki holt að lúta yfirráðum erlendra manna. Þeir kunnu ekki að stjórna á íslandi, og íslendingar sættu sig aldrei við yfirráð þeirra. Nú verður að hefjast þjóðleg frelsisbarátta í uppeldismálum landsmanna. Um langa stund höfum við í því efni lotið erlendum yfirráðum, íslenzk reynsla hefur verið virt að vett- ugi. Framandi fyrirmyndir hafa verið settar í önd- vegi, með þeim árangri, að meðferð móðurmálsins hefur stórlega hrakað, og lind ljóðlistarinnar nálega þornað, þar sem hin erlendu þvingunaráhrif hafa markað dýpstu sporin. Hið eðlilega verkefni frjálsrar þjóðar er að rétta hlut sinn á hverjum þeim vettvangi þar sem hið erlenda vald hefur beint eða óbeint lamað viðnáms- þróttinn. Sú sókn, sem nú er hafin í nafni skóla- nefndar Einars Arnórssonar stefnir að algerðri upp- lausn hins þjóðlega uppeldis. Hún jafngildir því þegar íslendingum var boðið 1851 að játast undir, að landið væri hreppur í Danmörku. Ofan á öll gömlu dönsku áhrifin á nú að bæta ómeltum og ófram- kvæmdum fyrirmyndum úr stórborgum stóriðjuland- anna. í miljónaborg, eins og Manchester, sézt ekki grasblettur fyrir almenning fyr en í útjöðrum borg- arinnar. í slíkri borg getur verið nauðsyn að taka börn og unglinga í þvingunarskóla fremur en að hafa æskuna iðjulausa á asfaltauðninni. Allir ís- lendingar gætu, mannfjöldans vegna, átt heima í einni götu í slíkri borg. En í raun og veru er aðstaða íslendinga allt önnur. Þeir byggja land, sem er litlu minna en allt England. Sjálf höfuðborgin er ekki nema eins og laglegt þorp á erlenda vísu. Við íslend- ingar höfum erft þetta stóra land með hinum miklu fjörðum, og víða en frjóa útsæ.íslenzka þjóðin býr við allt aðrar aðstæður og landshætti heldur en fólkið í kolaborgum Englands. Bretar verða að miða uppeld- ið við sín lífsskilyrði en íslendingar við sitt land. Munur landanna og lífskjaranna er mikill. Við ís- lendingar höfum skapað uppeldisskipulag, sem er lagað eftir landi okkar og lífsskilyrðum. Það var glapræði að brjóta niður hið forna uppeldi með lé- legum fyrirmyndum úr höfuðborg Danmerkur. Það er enn meiri fásinna að ætla að gleypa ómeltar fyrir- myndir úr stóriðjuuppeldi ensku kola- ag járnnámu- borganna. Vegna aðsteðjandi hættu í þessu efni verður að hefja sjálfstæðisbaráttu í uppeldismálum þjóðarinnar. íslendingar hafa með heillar aldar taki þurrkað burtu spor hins erlenda valds í landstjórn- armálum, og tengt nútímann við frelsisöldina. í uppeldismálum er nú fyrir dyrum hliðstæð barátta. Þar verður nútíðin líka tengd við glæsileg fordæmi frá frelsisöldinni. „Ráðríkur maður“ Það er nafni minn, Jón Kr. Sigurjónsson prentari í Eddu, er ég kalla ráðríka mann- inn í Samvinnunni. Hann hefur sem sé það verk með hönd- um að brjóta um, eins og komizt er að orði'á prentsmiðj u-íslenzku, það er að segja: hann tekur Við ÖllU efninu Jón Kr. Sigurjónsson sextugur í ritið, þegar það hef- ur verið sett og steypt í lausar leturlínur úr blýi í setjaravélinni. Fyrst tekur hann þá prófarkir af öllu saman á langar pappírsræmur. Prófarkirnar eru lesnar og leiðréttar villur þær, sem slæðst hafa inn í hjá setjaranum. Allar línur, sem eitthvað er skakkt í, þótt ekki sé nema einn bókstafur eða greinarmerki, þarf að setja á nýjan leik. Nú tekur nafni minn til óspilltra málanna og tínir allar skökku línurnar úr stokknum og setur nýjar, leiðréttar línur í þeirra stað. Ekki setur hann það fyrir sig að lesa allt á höfði og frá hægri til vinstri í leturstokknum, því að þannig lærði hann að lesa í Svartaskóla — eins og meistarinn sjálfur. — Næst setur nafni minn fyrir- sagnir á greinarnar staf fyrir staf, og raðar svo öllu letrinu í prentmótin í mátulega stórar blaðsíður. Þá getur oft verið erfitt að láta standast á strokkinn og mjaltirnar. Sumar greinarnar enda í miðjum dálki, í öðrum ganga nokkrar línur af og verður að fella þær undir grein á næstu síðu o. s. frv. Þá þarf oft að koma myndum fyrir í lesmálið svo vel fari o. s. frv. Allt þetta reynir á útsjón, þolinmæði, æfingu og smekkvísi prentarans miklu meira en margan grunar, er hann rennir augum yfir fullprentað blað eða tíma- rit. Og loks kemur að því að koma öllu í hefti af ákveðinni stærð, sem endilega á að komast þar fyrir, og láta þó hvorki verða of né van á öftustu blaðsíð- unni. — Þá er það sem ráðríki nafna míns kemur til skjalanna. Hann tekur af skarið: Þetta kemst ekki, nema það sé stytt um nokkrar línur. — Stund- um styttir hann sjálfur — einkum gerir hann sér dælt við undirritaðan — stundum skilur hann eftir skörð og heimtar „eitthvað, sem passar í þau“. — Að öllu samanlögðu er nafni minn ekki eingöngu ráðríkur í venjulegri merkingu, heldur líka ríkur að ráðum, — ráðagóður, þegar í harðbakkana slær. Jón Sigurjónsson átti sextugsafmæli hér á dögun- um en er alveg eins glaður og reifur eftir sem áður, — ef hann hefur þá ekki yngzt í anda síðan. Hann er Austfirðingur að ætt og hóf iðn sína í prentsmiðju Austra gamla á Seyðisfirði. Síðan 1901 hefur hann starfað í helztu prentsmiðjuin í Reykjavík. Á þessu 45 ára tímabili hefur drjúgur skerfur af blaða- og bókakosti gengið um greipar hans og mótast þar af vandvirkni hans og smekkvísi. Hann hefur mörgum kynnst á lífsleiðinni og margra hylli unnið með glað- lyndi sínu, bjartsýni og drenglyndi, — þrátt fynr ráðríkið. — Ég þakka honum samvinnuna. J- EV- 112

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.