Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1945, Blaðsíða 9

Samvinnan - 01.04.1945, Blaðsíða 9
4. HEFTI SAMVINNAN JÓNAS GUÐMUNDSSON: Tvö athyglisverð bandalög Arabiska-'bandalagiö. 1. Það vakti strax nokkra athyggli, að þeir Roosevelt Bandaríkjaforseti og Churchill forsætisráðherra Breta áttu viðræður — stuttar að vísu — við helztu ráða- hienn Araba, þegar er þeir komu af Krím-ráðstefn- unni. Lætur „Times“ í London svo um mælt, að þessar viðræður hafi verið „hinar þýðingarmestu með tilliti til framtíðar Mið-Austurlanda“. „Times“ segir frá því, að Ahyssiniu keisari hafi verið hinn fyrsti, sem kom til viðræðna við Churchll, þegar hann kom til Kairo, eftir för sína til Aþenu. Það var 16. febrúar. Næsta morgun kom í heimsókn til Churchills Ibn Saud konungur í Arabíu og um kvöldið tók Churchill á móti Egiftalands-konungi, og ræddust þeir við rúma klukkustund. Þá ræddi Churchill og við forseta Sýr- iands, en þar er nú lýðveldi, sem Bretar og Banda- ríkjamenn viðurkenndu 1941. í öllum viðræðunum tók Þátt utanríkisráðherrann, Anthony Eden. Roosevelt rseddi við Abyssinukeisara, Ibn Saud konung og Egyptalandskonung um borð í herskipi því, sem hann ferðaðist á, og að því búnu átti hann kveðjuviðræð- úr við Churchill í Alexandriu. Áður en Churchill færi heim til Bretlands, átti hann á ný tal við Abyssinu- keisara, Arabíukonung og Egyptalandskonung. Um viðtalið við Egyptalandskonung, það er síðast fór fram, segir „Times“. ..Viðræðan stóð yfir í klukkustund, og var það úiiklu lengri tími en áætlað hafði verið. Viðstaddir voru Eden utanríkisráðherra, sendiherra Breta í Egyptalandi og forsætisráðherra Egyptalands, Ahmed ^asha, (sá er skömmu síðar var myrtur). Viðræðurnar fóru fram viðhafnar- og látlaust og í fullkominni vin- semd. Að þeim loknum lét Faruk konungur svo um ^úælt, að þetta mundi verða talinn „minnisverður fundur.“ 2. Lftir að þeir héldu heim Roosevelt og Churchill, Settust fulltrúar hinna arabisku þjóðhöfðingja á ráð- stefnu í Kairo. í október síðastliðnum höfðu fulltrúar allra ara- biskra þjóða svo og Egipta og Abyssiníumanna átt fúnd með sér í Alexandríu og ákveðið þar að efla nánar samstarf sitt en verið hafði. Hinn 3. marz sl. höfðu fulltrúar landanna í Mið-Austurlöndum náð samkomulagi um samstarf milli ríkja sinna og þann dag undirrituðu utanríkisráðherrar Egiptalands, Saudi-Aarabíu, Transjordaniu, Sýrlands, Libanons og Iraks, svo og Palestinu samning, þar sem þessar þjóðir lýsa yfir því, að þær styðji hver aðra gagnvart hvers konar erlendri ásælni auk þess, sem þær ætli sér að efla viðskiptaleg og fjárhagsleg samskipti arabiskra þjóða. Samningurinn gekk þegar í gildi. Menn hafa að vonum brotið nokkuð heilann um tilgang þessa Araba-bandalags. Enginn efi er á því, að Arabarnir stofna þetta bandalag fyrst og fremst af hræðslu við ásælni og yfirgang frá öðrum þjóð- um, stórþjóðum, sem hver og ein þessara Araba- þjóða treystist ekki til að veita viðnám. . Það er kunnara en frá þurfi að segja, hvert kapp öll stórveldin þrjú, Bretland, Rússland og Bandaríkin, leggja á það að ná fótfestu og yfirráðum yfir auðlind- um landanna í Mið-Austurlöndum. Bretar hafa verið mestu ráðandi á þessum slóðum um langt skeið, en nú er áhrifum þeirra t. d. í Persíu (Iran) ógnað mjög af Rússum, sem bersýni- lega ætla sér að ná áhrifaaðstöðu í því landi. Er þess skemmst að minnast, að Rússar fóru fram á það við stjórnarvöld Irans, að fá réttindi þar í landi til olíuframleiðslu — (Iran er eitt olíuríkasta land í heimi), — en fengu neitun. Hófu þá Rússar slíkan á- róður gegn stjórninni í Iran, að hún varð að biðjast lausnar og fara frá völdum. Bandaríkin hafa að undanförnu lagt mikið kapp á samstarf við Ibn Saud konung í Arabíu og fengið þar í landi mikil réttindi til námagraftar og olíuvinnslu, og öll Arabalönd hafa um nokkur ár notið láns og leiguviðskipta Banda- ríkjanna, svo að hagsmúnir þeirra þar eru mjög miklir orðnir. Bandaríkjamenn munu og vilja fá að koma sér upp herskipahöfn og flugstöðvum á þessum slóðum til verndar hagsmunum sínum á Kyrrahafi og til tryggingar flugleiðinni um Ástralíu og Suður- Afríku til Ameríku. Um hina brezku hagsmuni þarna eystra er óþarft að ræða, því að þar og hvergi annars staðar er aðal- hagsmunasvæði Breta, og stórveldisaðstaða þeirra er undir því komin, að þeim takist að varðveita áhrif sín og sérréttindi þarna. Takist fjandsamlegri þjóð að leggja undir sig íran og ná olíulindunum þar, væri 113

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.