Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1945, Side 16

Samvinnan - 01.04.1945, Side 16
SAMVINNAN 4. HEFTI veitt honum hiö bezta uppeldi heima í sveit, og í frægustu menntasetrum Bandaríkjanna og Ev- rópu. Hann giftist ungur ágætri frændkonu sinni. Heimili þeirra var öruggt virki í hversdagslegum mót- gangi hins félagslega baráttulífs stjórnmálamanns. Rossevelt var gæddur mörgum samstilltum eiginleik- um hins sigursæla manns. Hann hafði að baki sér sterkan ættargarð, gott heimili og mikinn auð. Hann var glæsimenni á velli og í allri framgöngu. Yfir honum var ró og jafnvægi hins bjartsýna og lífsglaða framfaramanns, sem veit að veröldin getur verið gjafmild móðir fyrir alla, ef mannkynið kann að meta gæði hennar. Tveir meðfæddir eiginleikar urðu honum að miklu gagni í langri baráttu. Hann var auðugur að hug- sjónum og rödd hans var einhver hin fegursta og full- komnasta, sem beitt var í opinberu lífi í Bandaríkj- unum. Margsinnis var meginhluti blaðanna í Banda- ríkjunum í andófi við forsetann. En þegar hann lýsti áhugamálum sínum í útvarpinu, þá hlustaði öll þjóðin, hugfangin jafnt af mikilleik hugsjónanna og hinni glsésilegu rödd ræðumannsins. Á þeim vett- vangi vann Roosevelt forseti marga stórsigra á heimavígstöðvunum. Þegar Roosevelt tók við völdum í Bandaríkjunum, var mesta fjármálakreppa veraldarinnar í algleym- ingi. í ættlandi hans voru 15 miljónir manna at- vinnulausar og brauðvana, mitt í gnægð hins góða og auðuga lands. Roosevelt einbeitti kröftum sínum um margra ára skeið til að bæta þetta þjóðarmein. Undir forustu hans voru ótrúlega mikil auðævi látin fljóta í stríðum straumum út um landið, til að gera sem flesta þátttakendur í starfinu. Ein af óteljandi stórframkvæmdum Roosevelts-stjórnarinnar, var að stífla stórfljót eitt í Klettafjöllum með 400 feta háum múrvegg, skapa uppistöðu, sem var álíka löng og leið- in frá Reykjavík austur undir Eyjafjöll, framleiða þar raforku, sem nam 2 miljónum hestafla, dreifa henni til margra iðnaðarstaða og lyfta með mætti raf- magnsins heilu fljóti úr djúpum farvegi yfir víðáttu- miklar, sólsviðnar hásléttur þar sem auðnin breyttist eins og með kraftaverki í frjósama aldingarða. Þannig barðist Roosevelt við kreppuna og margar aðrar minni meinsemdir hins mikla lýðveldis. Þá kom stríðið. Þrjár stórþjóðir heims: Þjðverjar, ítalir og Japanar höfðu gert með sér bandalag á ræningja vísu. Þær ætluðu að yfirbuga allan heiminn og gera hvern frjálsan mann að þræl. Áhrifamesti leiðtoginn í þessu myrka bandalagi lýsti yfir, að hið nýja þrælaveldi ætti að standa óbreytt í þúsund ár. Bandaríkin voru ekki í bráðri hættu fyrst um sinn. Tilgangur einræðisleiðtoganna var að leggja smá- þjóðir Norðurálfunnar fyrst undir járnhælinn, sækja þá yfir Ermarsund og fjötra þá þjóð, sem lengst og á áhrifamestan hátt hefur varið hugsjón frelsisins og snúa loks vopnum alls hins undirokaða heims að sólarlandinu mikla í Vesturheimi. Þar átti að jarð- setja frelsishugsjón mannkynsins. Roosevelt forseti beið ekki þess, að eldurinn hefði brennt til grunna hús nábúans. Hann beitti allri orku sinni til að fá Bandaríkjaþjóðina til að skilja hætt- una og koma strax til hjálpar aðþrengdum þjóðum Norðurálfunnar. Það er erfitt verk að fá frjálsa þjóð til að leggja út í hörmungar nútíma-heimsstyrjaldar. En Roosevelt tókst þetta. Bandaríkjaþjóðin skildi hinn mikla boðskap. Allar frjálsar þjóðir urðu annað- hvort að leggja fram alla orku sína, eða verða þræl- ar hinna grimmustu og siðlausustu manna, sem farið hafa með völd, síðan á bernskuárum mannkynsins. Undir forustu Roosevelts sendi Bandaríkjaþjóðin Bretum, Rússum og hverri annarri stríðandi þjóð, sem barðist gegn möndulveldunum, fé, mat og hergögn. Hvar, sem barizt var á hinum heims-víða vígvelli á landi, sjó eða í lofti, mættu herskarar möndulveld- anna amerískri tækni og amerískri mótstöðu. Roose- velt var á vegum þjóðar sinnar alstaðar nálægur þar, sem hættan var mest. Og þó var enginn baráttumaður í liði Bandamanna miður fær til herþjónustu heldur en Roosevelt for- seti. Á miðjum aldri hafði hann fengið lömunarveiki og náði aldrei nema nokkrum bata. Líkami hans var ávallt eftir þ&ð ófullkominn bústaður sálarinnar. En sál Roosevelts, var svo máttug, að hún lét ekki á sig fá, þó að kul dauðans næddi gegnum gisið sál- artjaldið. Með ótrúlegri andlegri orku tókst Roose- velt að vinna sitt mikla verk, þrátt fyrir heilsubilun, sem hefði gert flesta menn að byi;ði fyrir mannfé- lagið. Að lokum kom þar, að hinn mikli máttur samein- uðu þjóðanna braut mótstöðuorku hinna skipulögðu frelsisræningja. Ítalía hrapaði fyrst og síðan tóku að hrynja skörð í múrveggi Hitlers og Japanskeisara. Bandaríkin lyftu því Grettistaki að leggja öllum bandaþjóðunum lið, hafa auk þess voldugan her- afla í Evrópu og berjast með annari hendi við Japani en sigra þá í hverjum leik. Aldrei í sögu heimsins hefur ein þjóð ráðið yfir jafn mikilli orku eins og Bandaríkin í þessari styrjöld. Þjóðin hafði orðið máttug í því landi, þar sem allar auðsuppsprettur jarðarinnar verða ekki tæmdar þó að djúpt sé graf- ið um þúsundir ára. Roosevelts mun jafnan getið á spjöldum sögunnar fyrir þau afrek, sem tilheyra stórviðburðum hinna ríku og voldugu þjóða. En nafn þessa merkilega 120

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.