Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1945, Qupperneq 24

Samvinnan - 01.04.1945, Qupperneq 24
SAMVINNAN 4. HEFTI vitugu meðborgarar halda fram, að í kirkju ættu menn helzt aldrei að koma. Strákanginn fær efni í áhrifaríka sögu, sem hann verður að láta hina krakkana njóta með sér. Þóttist Gvendur úti staddur árla morguns. Sér hann að austan með sjónum kemur maður stór vexti og fagur ásýndum, klæddur hvítum kyrtli, með gull- baug um höfuðið. Hann gengur þangað, sem nokkrir kaðalspottar liggja við hús Jensens, fléttar þá saman svo að af verður ógnarlegur sporðdreki. Með svip ógnar og reiði gengur hann þangað, sem kýrnar eru og tekur til að berja þær óþyrmilega. Kýrnar forða sér í allar áttir, en eina, sem ekki er vel gangkná lemur hann í hel. Kaupmaður Jensen kemur að, fu.ll- ur gremju yfir þessu atferli, en fær þrumandi hirt- ingarræðu fyrir að hafa verzlunarbúð í húsi sínu. Við munum ekki síður en þorpsbúar kannast við lýs- ingu þessa. Þannig boða listamenn okkur hinum fátæku guð- spjöllin á þessari upplýsingaöld. Mér finnst þetta dásamleg stæling af hugmyndum þeim, sem Kiljan fær út úr Kristsdýrkun þjóðarinnar, ef ég ber saman orðbragð hans í íslandsklukkunni um „Jesú bónda“. Þykist hann þar sjá hann með augum konu nokk- urrar, sem gaf jörðina Rein til kirkjunnar með þeim ummælum, að þar skyldi jafnan fá að búa ekkja. Ég efast um, að Kiljan sé fær um að dómleggja konu þá. Veit ég fyrir víst, að betur hefur hún skilið kenn- ingar drottins síns en hann, ef ráða má af orðum hans og anda í garð kirkjunnar og Krists sjálfs. Eng- inn getur unnið líknar- og mannúðarverk án efna, hvorki kirkjan eða aðrar stofnanir. Þetta hafa læri- sveinar Krists vitað á öllum öldum. Það stendur í Jakobsbréfi Nýja testamentisins, að það þýðir ekki að segja hinum fátæku að fara í friði og verma sig og metta, því að hann hafi ekki neitt til að verma sig eða metta á. Verkin verði þess vegna að fylgja trúnni. Ég minnist líka þess viðbjóðs, þegar Kiljan í sögunni, Þú vínviður hreini, túlkar tilbeiðslu móður Sölku Völku sem daðurshneigð. Þetta eru tvær myndir, sem listamenn okkar gefa þjóð sinni, af drottni hennar og frelsara, sem hún hefir tignað og tilbeðið í 945 ár. Ég sé ekki betur en að þær séu harla óheillavænlegar til fyrirmyndar börnum okkar, sem játast undir það að gera hann að leiðtoga lífs síns. Það hefur verið andlegt auðnulán okkar og ann- arra þjóða að eiga þá menn á ýmsum sviðum listar- innar, er fylgt hafa drottni sínum „fjalls á tindinn bjarta“ og þaðan haft hina dýrlegu útsýn yfir guðs dásemdir í öllu hans sköpunarverki. Þessir menn hafa hver á sinn hátt unnið að því að útbreiða guðsríkið á jörðu hér, með því að birta fjöldanum hugsýnir sínar og hefja hann þannig upp á æðri svið tilver- unnar. Við íslendingar höfum átt marga jákvæða lista- menn á sviði bókmenntanna, það er að segja menn, sem vinna í þjónustu lífsins og þróunarinnar. Það er Halldór Kiljan, sem gerzt hefur faðir hinnar nei- kvæðu niðurrifsstefnu í bókmenntalist hér hjá okkur. Hann er haldinn þessari listasjálfsblekkingu, sem ekki þykist sjá annað né meira í meðbræðrum sinum en nokkur kíló af kjöti og beinum ásamt fáum lítrum af blóði, samansett á mismunandi hátt eftir því, hvernig efniseindunum hefur þóknazt að hópa sig saman! Enginn skyldi vænta mikils af svo efnisfjötruðum öndum. En hverfum nú aftur til sögu Halldórs Stefánssonar og sjáum hvernig hann leiðir listamannsefni sitt fram sem tákn fyrir lýð sinn. Þessi saga Gvendar um sjálf- an Krist verður til þess að baka honum ónáð hinna fastmótuðu þorpsbúa. Þeir eru líkir okkur hinum fá- vísu, sem ekki komum auga á dásemdarboðskap þess- arar nýju helstefnulistar. Gvendur á fáa aðdáendur. Þó er þar blindingur einn, sem uppgötvar þenna ný- græðing. Blinsi, eins og höfundur nefnir hann, er ekki í sem beztu áliti hjá þorpsbúum. Hann er kallaður öfuguggi og vantrúarhundur, og honum er trúað til að fara með kukl og fordæðuskap. Gætu allar þær lýsingar verið frá 17. öld. En í þessum Blinsa elur höfundur upp anda frelsis og framtaks. Karl tekur Gvend að sér og lætur dóttur .sína, Svanlaugu sem er skóla- gengin, kenna honum skrift og reikning. Sjálfsagt er það eitthvað táknrænt, að þessi Blinsadóttir er eina persónan, sem höfundur hefur nokkuð við. Hún er afburðakona, kona framtíðarinnar. Nú er komið að því, að Gvendur fermist með mestu prýði. Blinsi vill láta hann ganga skólaveginn. En þar eru öll öfl á móti. Kemur nú til kasta prestsins. Eins og vænta má af anda, sem alinn er í þessum herbúðum, er ófögur lýsing, sem birtist hér af herrans þjóni. Líkamsskapn- aði prestsins er lýst í öllum áhrifamætti hinnar prúðu listar, og orðbragð og andi eru í fullu samræmi við ytra borðið. Það er ekki aldeilis í anda prestsins, að fátækur drengur fari að læra latínu. Það geta ekki nema heldri manna synir. Hrökklast Gvendur þaðan, hrelldur og vonsvikin. Ef til vill á þetta að vera eins konar viðurkenning til íslenzkra klerka fyrir alla þá fræðslu, sem þeir á öllum tímum háfa veitt piltum, er ganga vildu skóla- veginn. Það er áreiðanlegt, að þeir hafa hlúð að mörgu frækorni í fátæku brjósti, sem að öllum lík- indum hefði annars skrælnað og aldrei náð að bera ávöxt. — Ég held, að þessir menn ættu sér til fróð- leiks að safna skýrslum um þá, sem lært hafa undir skóla hjá prestum þessa lands. Ég þori að ábyrgjast útkomuna. Hafi það vakað fyrir höfundi að sýna, hvernig gott mannsefni, listamannsefni, sé eyðilagt af fátækt og kotungsskap, hefur tilraunin farið í handaskolum vægast sagt. Gvendur er ekki til neins frá náttúr- unnar hendi. Hann er svona ámóta og ég gæti hugsað mér Stein Steinar. Þar, sem ekkert er, getur ekkert glatazt og ekki heldur dafnað. Allar tilraunir höf. til að kenna Biávíkingum ófarir Gvendar missa ÞV1 marks. Það stoðar ekkert, þótt hann láti gera aðsúg að Blinsa, berja hann og brenna bækur hans, fletta pilsunum upp fyrir höfuð á dóttur hans og binda fyrir ofan með spotta. (Til smekkbætis er svo gefið í skyn að piltarnir í þorpinu hafi gert sér tíðförult heim 1 kofann, meðan stúlkan var svona á sig komin). Þetta hefur ekki heldur nein áhrif á Gvend. Allt er á sömu 128

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.