Samvinnan - 01.01.1947, Side 26
Samvinnurekslur og ríkisrekslur í Sovétríkjunum
Brezkct samyinnublaðið Cooperative Review ræðir breytt viðhorf Sovétstjórnarinnar
JÖRBREYTING sú á starfsað-
stöðu samvinnufélaganna, er átt
hefur sér stað í Sovét-Rússlandi, er
stórmerkileg, ekki aðeins vegna þeirr-
ar þýðingar, sem hún hefur fyrir þjóð-
arbúskap Sovétríkjanna, heldur einn-
ig sem ábending um traustleika og
heilbrigði stefnumála samvinnuhreyf-
ingarinnar. Hin nýja skipan í Rúss-
landi vekur mesta athygli fyrir það, að
nú um tíu ára skeið hefur öll verzlun
í borgum og bæjum verið í höndum
ríkiseinkasala, en samvinnufélögum
var el'tirlátin verzlunin í sveitum og
strjálbýli. Enginn vafi leikur á því, að
samvinnufélögunum var þar með
fengið hið erfiðara hlutskiptið, að
annast vörudreifingu í strjálbýlinu,
oft víðs fjarri framleiðslu- og menn-
ingarmiðstöðvum. En eins og bent er
á í skýrslu brezku nefndarinnar, sem
samvinnufólögin sendu í kynnisför til
Sovét-Rússlands, leikur enginn vafi á
því, að kaupfélögin hafa leyst störf sín
ágætlega af hendi, þrátt fyrir erfiða
aðstöðu og nú síðast þrátt fyrir mikla
erfiðleika vegna styrjaldarinnar og
eyðileggingarinnar af hennar völdum.
Nú hefur ríkisstjórnin rússneska
upphafið bannið á starfsemi kaupfé-
laga í þéttbýlinu, og hefur þar með að
verulegu leyti fellt úr gildi hina eldri
skipan. Augljóst er, að tíu ára reynsla
af störfum kaupfélaga og ríkiseinka-
sala hefur sannfærthinarússneskuleið-
toga um það, að heppilegt muni vera,
að innleiða kaupfélagsverzlun einnig
í borgum og bæjum, þar sem ríkis-
einkasölurnar hafa verið einar um hit-
una til þessa. Þessi skipting verzlunar-
innar — ríkiseinkasölur í borgum, en
samvinnufélög í sveitum — var í aug-
um flestra kommúnista orðið klassiskt
skipulag í sósíalisku þjóðfélagi. En þó
var það allútbreidd skoðun víða, að
þetta væri aðeins millibilsástand, og
innan skamms tíma mundi Sovét-
stjórnin taka skrefið allt og fullnægja
þannig á rökréttan hátt hinum sósíal-
istisku kenningum, með því að leggja
kaupfélögin í sveitunum einnig niður,
26
til samvinnufélaganna
Annars staðar í þessu hefti
er greint lauslega frá breytingu
þeirri, sem Sovétstjórnin hefur
gert á aðstöðu kaupfélaganna
í Rússlandi, samkvæmt heim-
ildum Alþjóðasambands sam-
vinnumanna. Brezka samvinnu-
blaðið „Cooperative Review"
ræðir þessi mál allýtarlega nú
um áramótin og segir m. a.:
og láta ríkiseinkasölurnar einar um
verzlunina jafnt í byggð sem borg.
Það er athyglisvert, að brezka sendi-
nefndin, sem kynnti sér starfsemi rúss-
nesku kaupfélaganna, undir forustu
Rusholmes lávarðar, var ekki þessarar
skoðunar. í greinargerð sinni um för-
ina, segir nefndin m. a.:
„Nefndin ræddi við ýmsa aðila
um það, hvort líklegt mætti telja,
að ríkið mundi í framtíðinni
innleiða einkasölur sínar í sveit-
unum, eins og það hefði gert í
bæjum og borgum. Langsamlega
flestir voru þeirrar skoðunar, að
miklu meiri Jíkindi væru til þess,
að samvinnufélögin fengju leyfi
, til þess að starfa í borgunum,
heldur en að einkasölurnar yrðu
færðar út í sveitirnar.
Það er einnig almenn skoðun,
að dreifingaskipulag kaupfélag-
anna væri ekki aðeins mun full-
komnara eins og sakir standa,
heidur hefðu yfirburðir þeirra
komið bezt í ljós á hinum erfiðu
árum eftir byltinguna, þegar
þeim var falið að annast mest
alla vörudreifinguna í borgun-
um. Flestir töldu hana hafa verið
í miklu betra lagi þá, en hún
væri nú, í höndum ríkiseinkasöl-
unnar.“
Reynslan hefur nú sannað, að spá-
dómur sendinefndarinnar, um þróun
samvinnu- og ríkisreksturs í Sovétríkj-
unum, hefur stuðst við yfirgnæfandi
líkur. Þar að auki hefur komið í ljós,
að mjög aukin áherzla er nú lögð a
framleiðslu kaupfélaganna og henm
er ætlað meira rúm en áður í þjóðar-
búskapnum. Þetta er augljóst af til-
skipun ríkisstjórnarinnar, en þar seg-
ir svo:
„Samvinnufélög neytenda
verða að skipuleggja framleiðslu-
störf í rnjög auknum mæli, svo
sem fullvinnslu landbúnaðaraf-
urða, byggingu vélaverkstæða og
verksmiðja til stórframleiðslu
neyzluvara."
Þessar neyzluvörur eiga síðan að
vera á boðstólum í búðum Centrosoy-
us (kaupfélagasambandsins). Sam-
vinnufélögin eru því beðin að hefjast
handa um stóraukna framleiðslu
neyzluvarnings fyrir almenning þegai'
hvers konar varningur er af skornum
skammti. . . .
Ástæða er til þess að gleðjast yfú'
því, hversu djarfmannlega Sovétstjórn-
in hefur tekið á vandamálunum og
það að því er virðist án tillits til
kommúnistískra kennisetninga. Stjórn-
arvöldin hafa lært af reynslunni og alh
bendir til þess, að ákvörðun þeirra um
að hverfa frá allsherjar ríkiseinkasölu-
skipuiaginu, muni verða þjóðum
landsins til mikils gagns. Enginn vafi
er heldur á því, að þessar ráðstafanu
muni hafa mikil áhrif út í frá. Víða
um lönd, þar sem samvinnuhreyfingm
er í vexti, munu samvinnumenn og
stjórnmálamenn draga ályktanir af
þeirri reynslu, sem fengist hefur 1
Rússlandi með ríkisrekstri og sam-
vinnurekstri, og nú er opinberuð a
einarðlegan hátt í tilskipunum Sovet-
stjórnarinnar.
Forsíðumynd: Ljósm. Edv. Sigtu-
geirsson. Ljósmyndir a.f Hvassafelh:
Edv. Sigurgeirsson og Sverrir Þor.
Aðrar myndir flestar léðar af ,A i ■