Samvinnan - 01.01.1947, Side 31
Hvaða skuldabréf á ég að kaupa?
SPARSEMI ER DYGGÐ.
Sparsemi er nauðsynlegur þáttur bættum lífskjörum og afkomu einstakl-
ingsins og um léið þjóðarinnar.
Sparsemi er grundvöllur efnalegs sjálfstæðis og veitir sérhverjum öryggi
og virðingu fyrir sjálfum sér.
Kaupið bréf þau, sem hér eru á boðstólum. Þau gefa hærri vexti en yfir-
leitt eru fáanlegir annars staðar, og síður verður tdl sparipeninganna gripið,
til stundaránægju, ef þeir eru geymdir í skuldabréfum. — Það er spamaður.
Gefið ungbarninu 15 ára skuldabréf til skólaáranna.
Géfið fermingarbaminu 10 eða 15 ára skuldabréf. Það kemur sér vel við
stofnun lieimilis seinna meir.
Gefið skuldabréf Framkvæmdasjóðs S. í. S. við hvers konar tækifæri.
hvers vegna er sambandið að selja skuldabréf?
Vegna þess að peningar eru afl þess sem gera skal, og samvinna landsins
þarfnast þess að ráðist sé í miklar og margvíslegar framkvæmdir — meiri
framkvæmdir, en Sambandið hefur eigið fé til í.
Framkvæmdir, sem eiga að verða til þess að fólkinu í landinu geti liðið
betur.
Til þess að fáar krónur þeirra fátæku verði drýgri, og þannig veitt meiri
lífsþægindi.
Til þess að skapa meiri atvinnu í landinu.
Til þess að gera iandið og þjóðina sterkari, sjálfstæðari og öruggari til að
mæta þeim örðugleikum, sem framundan kunna að vera.
HVAÐA framkvæmdir ERU ÞETTA?
Meðal annars:
AÐ kaupa hentug og fullkomin flutningaskip, sem flytja nauðsynjar
landsmanna erlendis frá beint á hafnii', þar sem sambandsfélögin eru við.
AÐ auka ullariðnaðinn svo sem verða má í samkeppni við erlendan iðn-
að, til þess að ullin geti orðið unnin í landinu sjálfu.
AÐ koma upp ýmiss konar iðnaði til öryggis um vörugæði og verðlag á
neyzluvörum landsmanna.
Framkvæmdasjóður S I S