Samvinnan


Samvinnan - 01.05.1947, Blaðsíða 22

Samvinnan - 01.05.1947, Blaðsíða 22
KOOPERACUA USUUSLIIUf UHISJOUD Frá samvinnustarfinu erlendis Finnland. Þótt árið 1946 væri eitt hið erfiðasta, sem yfir Finnland hefnr gengið, bæði vegna vaxandi dýrtíðar, hráefnaskorts og þungra útgjalda til sigurvegaranna í styrjöldinni, mátti þó sjá ýms merki þess, að nýtt fjör væri að færast í efna- hags- og fjármálalíf landsins. Myndarlegt átak var gert til þess að endurreisa utanríkisverzlunina. I innanlandsverzl- uninni er eftirtektarverðast, að kaupfélögin hafa hvarvetna verið í vexti. Umsetning kaupfélagasambandanna jókst verulega á árinu. Nokkuð af þeirri aukningu á rót sína að rekja til dýrtíðar, en er þó einnig um beina viðbót að ræða. Sambandið S. O. K. seldi vörur fyrir 7.159 millj. finnskra marka, og er það 89.5% aukning frá árinu áður. Hitt sam- bandið, O. T. K., seldi fyrir 7.076 millj. marka, og er það 94.2% aukning. Umsetning sambandsfélaganna jókst einn- ig um 77—79%. Framleiðsla kaupfélaganna og samband- anna er einnig í vexti, og jókst 108—114% á árinu. A árinu 1946 bættust finnsku kaupfélögunum 20.000 nýir féagsmenn. Bendir þetta ótvírætt til þess, að finnskur almenninigur treysti samvinnufélögunum bezt til þess að leysa vandamál verzlunar- og vörudreifingar á erfiðum tímum. Bretland. Brezka heildsölusambandið C. W. S. hefur nýlega birt reikninga sína lyrir árið 1946. Sýna þeir, að vörusala sam- bandsins hel'ur numið £ 205.957.000, og er þetta rösklega 12% hærri upphæð en árið 1945. Framleiðsla verksmiðja í eigu sambandsins jókst um 7% að verðmæti frá árinu á undan. Hagnaður af rekstri santbandsins varð £ 6.281.000, og var sú upphæð öll — að undanskildum 120 þús. pundum, er lögð voru í varasjóð — endurgreidd kaupfélögunum í hlutfalli við vörukaup þeirra hjá sambandinu. Svíþjóð. Á árinu 1946 náði vörusala sænsku kaupfélaganna ein- um milljarði króna í fyrsta sinn, óx úr 982 millj. árið 1945 í 1.187 milljarða króna árið 1946. Þetta er 15.8% aukning, og er mesta aukning, sem nokkru sinni helur orðið á einu ári. Þess ber að gæta, að vöruverð var svipað í Svíþjóð allt árið, og er því um raunverulega söluaukningu að ræða. 22 Aætlað hefur verið, að almennt hafi sænsk smásöluverzhm aukist um 12% vegna aukins innflutnings á árinu og betri aðgangs að vörum. Hafa samvinnufélögin því gert betur en að lylgjast með, og hafa sótt á og bætt aðstöðu stna umfram aðrar verzlunargreinar. Sænska samvinnusambandið, K. F., hefur einnig aukið verzlun sína á árinu. Seldi það alls konar vörur fyrir 590 millj króna, miðað við 534 millj. árið 1945. Þessi aukning var einvörðungu af verzluninni við kaupfélögin. Bandaríkin. Eitt af olíusamvinnufélögunum í Kansas City hefur ny' lega gert kaup á eignum olíitfélags nokkurs í Oklahoina- ríkinu. Kaupin ná til 189 olíubrunna, sem framleiða 70.000 tunnur á mánuði. Þar að auki er um að ræða 20.000 ekrur lands, þar sem ekki hefur verið unnin olía ennþa> en talið er olíuauðugt. Þá hafa samvinnufélögin í Kansas einnig bætt við sig 99 brunnum í því ríki og 65.000 ekrtnn lands. Með þessitm kaupum helur Samband olíusamvinnn- félaganna í Kansas, C. C. A., sem er grundvöllur hinna nýju alþjóðlegu samtaka, verulega bætt aðstöðu sína, þvl að nú er rösk.ur helmingur allrar þeirrar olíu, er það sehu- unninn úr eigin brunnum. Palestína. Sömu sögtt er að segja frá landinu helga og úr flestun .öðrum löndum. Þar hefur samvinnuhreyfingin einnig s(,t frarn á verzlunar- og framleiðslusviðinu. Verzlun kaup félaganna í landinu jókst um 30.2% á síðastliðnu ári, °S er það mesta aukning, sem orðið hefur á einu ári þar. Trieste. Samvinnumenn í Trieste — hinni umdeildu borg — ust banda um stofnun samvinnusambands eftir að hei11 Bandamanna höfðu tekið borgina í júlí 1945. í þessu saiu bandi eru nú 138 ýmis konar samvinnufélög, er teljs 70.189 félaga. Júgóslafía. Samkvæmt opinberum skýrslum eru 13.198 saniviuu11 félög í Sambandi júgóslafneskra samvinnufélaga. Meðhm3 talan er 2.487.366.

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.