Samvinnan - 01.10.1952, Page 13
gildi ostsins og einnig nauðsynlega
æfingu í ostneyzlu, á líkan hátt og
hinar eldri menningarþjóðir gera. —
Hver húsmóðir og hver einstakling-
ur eiga að gera sér ljóst, að hinn góði
og feiti ostur er sérlega holl, nærandi
og ljúffeng fæða og þrátt fyrir allt
einnig ódýrari en margar aðrar fæðu-
tegundir, ef miðað er við hið alhliða
og holla næringargildi hans.
Ef miðað er við ýmislegt álegg á
brauð, hefur osturinn, miðað við
þunga, langmest næringarefna-inni-
hald (hitaeiningar) og sýnir eftirfar-
andi þetta mjög glöggt:
Hitaeiningafjöldi í góðum osti i
hlutfalli við ýmislegt brauðálegg, allt
miðað við 1 kg. af hverri tegund.
3000
Góður 40%-feitur ostur inniheldur:
Smjörfeiti .................... 23%
(fita í þurrefni 40%)
Eggjahvítu, sölt, bætiefni o. fl. 32%
Vatn .......................... 45%
100%
Hver húsmóðir og einstaklingur ætti
því að festa sér í minni, að mjólkur-
ostur og mysuostur innihalda flest af
hinum lífsnauðsynlegu bætiefnum.
Einnig er osturinn auðugur af ýmis
konar steinefnum, en þessi efni eru
nauðsynleg fyrir beinmyndun og
beinvöxt æskunnar, sem þarf að
styrkjast og vaxa. —
Frægur, erlendur lífseðlisfræðingur
og læknir, dr. Herz, hefir sagt: „Notið
mjólkurost og mysuost í hinu daglega
fæði, og þið munið auka og viðhalda
hreysti ykkar, lífsþrá ykkar og lífs-
gleði....“
Að þessu athuguðu skulum við
spyrja sjálf okkur:
Notum við hinn góða mjólkurost og
mysuost nœgilega mikið i hinu dag-
lega fœði okkar? J. K.
Ostaréttir, sem vöktu athygli
á Iðnsýningunni 1952
í sýningareldhúsi SÍS á iðnsýningunni voru tvisvar sinnum dag-
lega sýndir ostaréttir og var húsmæðrum gefið rit um matreiðslu
með ost, samið af Helgu Sigurðardóttur, skólastjóra Húsmæðra-
kennaraskólans. Sýningu réttanna annaðist Aðalbjörg Hólmsteins-
dóttir og var áhorfendum boðið að bragða allt það, sem mat-
reitt var í eldhúsinu. Mesta athygli vöktu fjórir ostaréttir, og fara
hér á eftir uppskriftir að þeim:
Ostsúpa.
2 1. kjöt-, fisk- eða
grænmetissoð
40 gr. smjörlíki
40 gr. hveiti
1 laukur
150 gr. rifinn ostur
1 eggjarauða
Salt
Smjörlíkið er brætt, hveitið
hrært út í og þynnt út með soð-
inu. Laukurinn, sem er saxaður,
er látinn út í og súpan soðin í 10
mínútur. Þá er rifni osturinn
látinn út í. Eggjarauðan hrærð
með salti og rjóma, og súpan
hrærð þar út í. Borðuð með
glóðarbökuðu hveitibrauði.
Ostabúðingur.
200 gr. ostur
25 gr. smjörlíki
25 gr. hveiti
3—4 dl. mjólk
3 egg
salt og pipar
paprika
hrært eða brætt smjör
Smjörlíkið er brætt, hveitið
sett út í, þynnt út með mjólk-
inni, kryddað og kælt. Osturinn,
sem skorinn er í jafna bita, er
settur út í, eggjarauðurnar
hrærðar í, þegar jafningurinn
er alveg kaldur, er hinum stíf-
þeyttu hvítum blandað gætilega
saman við.
Búðinguinn látinn í vel smurt
mót og brauðmylsnu, sem bland-
að er í rifnum osti, stráð yfir.
Bakað í % klst. í heitum ofni,
fyrst við meiri undirhita. Borð-
aður strax. Hringinn í kring í
mótið, um leið og hann er borð-
aður, er raðað sundurskornum
tómötum, gúrkum eða radísum.
Blómkálsbúðingur.
100 gr. rifinn ostur
2 blómkál (eða hvítkál)
100 gr. smjörlíki
100 gr. hveiti
4 dl. mjólk
2—4 egg
Salt, pipar
Smjörlíkið er brætt, hveiti
hrært saman við og þynnt út
með mjólkinni. Kalt. Blómkálið
soðið í 2—3 mínútur í gufu eða
vatni. Tekið í hríslur og raðað í
smurt mót. Jafningurinn hrærð-
ur með eggjarauðunum, rifnum
ostinum blandað í og að síðustu
hinum stífþeyttu hvítum. Salt
og pipar sett í eftir smekk og
jafningnum hellt yfir blómkál-
ið. Bakaður búningurinn hefur
lyft sér og er gulbrúnn. í búðing-
inn má eins hafa hraðfryst
blómkál eða hvítkál. Með búð-
ingnum má borða tómatsósu eða
hrært smjör. Það er til drýginda
að borða soðið grænmeti með
búningnum.
Ostaeggjakaka.
100 gr. rifinn ostur
3 egg
i/2 tsk. salt
3 msk. rjómi eða mjólk
4 meðal kartöflur (soðnar)
karsi eða steinselja
50 gr. smjör
Eggin eru þeytt með saltinu,
þar í er rjómanum og rifna ost-
inum blandað. Smjörið er brún-
að ljósbrúnt á pönnu, eggjajafn-
ingnum hellt á, steikt við hægan
eld, — stinga skal í kökuna með
gaffli. Þegar kakan er hálfbök-
uð, er kartöflubitunum raðað
ofan á og saxaðri steinselju stráð
yfir. Þegar eggjakakan er hlaup-
in, er hún lögð tvöföld saman,
látin á heitt fat, og rifnum osti
og saxaðri steinselju stráð yfir.
Borðuð með hrærðu smjöri.
v