Samvinnan - 01.10.1952, Qupperneq 20
steikarofn, og mun vera óþekkt að
nrestu enn sem komið er. Er þetta ofn,
opinn að ofan, og er matur og bakst-
ur látinn niður í hann í grindum. Er
þannig hægt að elda fyrir heila fjöl-
skyldu í þessu litla tæki, og til bakst-
urs hefur það reynzt sérlega hentugt.
Elitadreifing er mjög hagkvæm í steik-
arofninum, og hægt er að leggja rist-
arplötu yfir hann. Þá fæst með ofnin-
um klukka, sem getur gert hann al-
gerlega sjálfvirkan, þannig að hann
slökkvi og kveiki á sér sjálfur.
Erlendis hafa þessi tæki selzt all-
mikið til heimila, sem hafa góðar elda-
vélar fyrir, en að sjálfsögðu er þetta
tæki sérstaklega hentugt þar, sem
eldavél er ekki til eða erfitt er að
koma henni við. Tæki þessi hafa náð
mikilli útbreiðslu vestan hafs og kosta
hér um 1000 kr.
STEIKARPLATA.
Annað smátæki, sem nýlega hefur
verið sent á markað og virðist ætla að
ná vinsældum hér á landi, mætti kalla
„steikarplötu“, en það nefnist frá
verksmiðjunnar hálfu „Sandwich
Grill“. Eru þetta raunar tvær litlar
steikarplötur, önnur í loki, og má
steikja smárétti og samlokur þar á
milli. Þá fylgir þessu tæki vöfflujárn,
sem má leggja á plötuna og þannig
baka vöfflur. Tæki þetta, sem er einn-
ig framleitt af Westinghouse verk-
smiðjunum, kostar um 500 krónur.
BRAUÐRISTA.
Þetta tæki er ekki eins nýtt af nál-
inni og tvö síðasttalin heimilistæki,
enda hefur það þegar náð allmikilli
útbreiðslu. Nú er mest selt af sjálf-
virkum ristum, og enn frekari nýj-
ungar munu vera væntanlegar á næst-
unni. Það hefur valdið nokkrum
vandræðum við notkun á brauðrist-
um hérlendis, hve brauð eru hér lítil
og flötur hrauðsneiða smár, og hefur
þetta fyrirbyggt, að fullur árangur
næðist af tækjunum. Erlendis eru að-
allega seld formbrauð og þau svo stór,
að sneiðarnar standa upp úr hinum
sjálfvirku brauðristum, þegar þær eru
ekki að rista.
RYKSUGUR.
Nýlega hafa komið hingað til lands
litlar handryksugur frá Westinghouse
og þykja þær hentugar til ýmsra
Laundromat þvottavél og þurrkari.
verka, þar sem venjulegar ryksugur
eru of fyrirferðarmiklar. Þessar hand-
ryksugur kosta á sjötta hundrað
krónur. Af venjulegum ryksugum
hefur SÍS aðallega flutt inn hollenzk-
ar Holland-Electro vélar, sem kosta
um 1100 krónur, en einnig örlítið af
Westinghouse ryksugum frá Banda-
ríkjunum, sem eru nokkru dýrari.
HRÆRIVÉLAR.
Hrærivélar eru nú komnar á ótrú-
lega mörg íslenzk heimili, enda er
framboð af þeim nú mikið. Hefur SÍS
selt venjulegar, litlar hrærivélar, Eng-
lish Electric, sem eru nákvæmlega
eins og amerísku Westinghouse vél-
arnar, og kosta 1150 krónur. En auk
þess hefur SlS flutt inn í vaxandi
mæli „Kitchen-Aid“ vélina frá Hobart
verksmiðjunum vestan hafs, og hefur
hún notið mikilla vinsælda. Fluttar
hafa verið inn tvær stærðir af þess-
um vélum til heimilisnotkunar, 3 lítra
með glerskál og 4 lítra með stálskál.
Vélar þessar eru seldar án hjálpar-
tækja, og getur hver keypt eins mik-
ið af slíkum tækjum og hann vill, en
það er liinn mikli kostur við þessar
vélar, hversu margvísleg verkefni þær
geta leyst af hendi með þessum hjálp-
artækjum. Sem dæmi má nefna nokk-
ur helztu hjálpartækin: hakkavél,
berjapressa, deigkrókur, grænmetis-
kvörn, silfurfægjari, hnífabrýni,
Það er ótrúlega margt, sem hcegt er að gera með
Hobart hrcerivélinni.
ávaxtapressa, dósaopnari, ískvörn,
haunaafhýðari og dropateljari.
,,Kitchen-Aid“ kostar nú um 1500
krónur minni vélin, en með helztu
hjálpartækjum um 2300, þótt hver
geti ráðið sjálfur, hvað hann kaupir
mikið af slíku; og hin stærri um 2000
krónur, eða tæp 3000 með helztu
hjálpartækjum.
STRAUVÉLAR.
Eitt af þeim mörgu tækjum, sem
nú ryðja sér jafnt og þétt til rúms, er
strauvélin. Er hún framleidd í ýms-
um stærðum, allt frá litlum vélum,
sem standa á borði (SlS á von á slík-
um „Simplex“ vélum, sem kosta um
2000 krónur) til stærri véla með við-
byggðu borði, en þannig er vélin hinn
myndarlegasti húsmunur. Má fá
„Ironrite“ strauvélina, sem SlS hefur
fyrirliggjandi, ýmist hvíta fyrir eld-
hús eða þvottastofu, eða í fögrum
tréumbúðum, sem sóma sér í fínustu
stássstofu. „Ironrite“ kostar um 5800
krónur og hefur reynzt mjög vel hér
á landi. Er það kostur við hana, að
komast má að valsinum frá báðum
endum, og vélinni stjórnar húsmóðirin
algerlega með hnjánum. Þau heimili
hér á landi, sem hafa eignazt strau-
vélar, skipta þegar hundruðum.
Nefna mætti ýms fleiri heimilistæki,
gömul og ný. Hér hefur ekki verið
minnzt á eldavélar, þar eð þær hafa
um langt skeið verið framleiddar í
landinu og því lítið flutt inn af þeim,
en á því sviði hafa orðið margvíslegar
framfarir. Vatnshitarar eru mikið not-
aðir erlendis, en hér á landi sér nátt-
úran sjálf víða fyrir heitu vatni. Slíkir
rafhitarar, sem venjulega eru settir
upp í eldhúsum, fást fyrir 40—300
lítra og kostar til dæmis 110 lítra
tankur um 3500 krónur.
Hér hefur þá verið gefið stutt jrfir-
ht yfir þau heimilistæki, sem flutt
hafa verið til landsins, og hægt er að
fá með stuttum eða engum fyrirvara.
Þetta er að vísu aðeins reykurinn af
réttunum, en vonandi batnar hagur
landsmanna svo, að sem flest heimili
geti notið einhverra eða allra þeirra
þæginda, sem hér hefur verið lýst.
i.iD.i
20