Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1954, Blaðsíða 7

Samvinnan - 01.03.1954, Blaðsíða 7
Undirbúning að sjónvarpi á íslandi þarf að hefja strax Sjónvarpið getur - fyrr eða síðar - orðið mikilvægt menningartæki hér á landi Af hverju hefur ekki verið meira talað og skrifað um sjónvarp á Islandi en raun ber vitni? Hér gleypa menn við hvers konar nýjungum og kaupa til landsins fullkomnustu vélar og tæki, en samt hefur ekki verið alvar- lega talað um að hefja hér sjónvarp. Ríkisútvarpið mun að vísu hafa fylgzt nokkuð með sjónvarpinu og út- varpsstjóri hefur á stuttum starfs- ferli sýnt því áhuga. En það var ekki fyrr en mjög nýlega, að fyrst var bor- in fram tillaga á alþingi um rannsókn á því, hvort ekki sé tími til þess kom- inn að hefja sjónvarp hér á landi. Á síðasthðnu ári birti Samvinnan grein um sjónvarp. Nú hefur ritstjóra blaðsins njdega gefizt tækifæri til að kynnast lauslega sjónvarpi og gat hann ekki betur séð, en að þessi nýja tækni sé þegar að verða fjárhagslega viðráðanleg fyrir íslendinga og eigi sennilega mikið erindi til þeirra. Þetta er að vísu ályktun leikmanns, dregin af ýmsum ytri aðstæðum, en ekki byggð á ítarlegri athugun. Fyrir örfáum árum var sjónvarp svo dýrt, að óhugsandi var fyrir smáþjóð eins og Islendinga að koma upp sjón- varpsstöð. En framfarir á þessu sviði hafa verið ótrúlega örar og þessi nýi „miðill“ hefur breiðzt út, orðið al- manna eign, í hverju landinu á fætur öðru. Er því ástæða til að ætla, að öll tæki til sjónvarps séu ódýrari og reynsla af þeim svo miklu meiri en áður, að tími sé til þess kominn fyrir íslendinga að ganga í hóp þeirra þjóða, sem hafa byrjað sjónvarp eða eru að undirbúa það. I Bandaríkjunum er sjónvarp eins og útvarp í höndum einstaklinga og félaga, en þó háð nokkru ríkiseftir- liti. Þar hafa fjöldamörg dagblöð og útvarpsstöðvar, sem eru töluvert veigaminni fyrirtæki en ríkisútvarpið og sízt fjársterkari, komið sér upp sjónvarpsstöðvum. Þegar sltkar smá- stöðvar eru skoðaðar, er erfitt að trúa því, að öflug, opinber stofnun á Is- landi geti ekki alveg eins komið sér upp slíkri stöð. Þessar smástöðvar geta að vísu keypt mikið af efni sínu frá stórum útvarpsfélögum og þurfa því ekki að annast nema 10—20% af sjónvarps- efni hvers dags sjálfar. En þær sjón- varpa frá klukkan 8 á morgnana til miðnættis óslitið. Hér á landi væri væri mjög vel við unandi, þótt ekki væri byrjað með meira en 2—3 tíma sjónvarpi á kvöldin, sem eftir nokkur ár mætti auka upp í 4—-5 tíma. A sjónvarpið erindi til Islendinga? Sjónvarpið er enn á bernskustigi og því á vafalaust eftir að fara mjög fram á næstu árum. Það hefur vaxið mjög ört — og orðið umdeild stofnun í þeim löndum, sem mest hafa af því. Eitt er þó ekki hægt að deila um, en það eru hinar geysimiklu, almennu vinsældir sjónvarpsins. Ymislegt bendir til þess, að gagn- rýnin á sjónvarpinu hafi verið óþarf- lega hörð í fyrstu og gallarnir að veru- legu leyti barnasjúkdómar nvrrar Eisenhower forseti sést hér fylgjast með pvi i sjónvarpi, er flokksþing republikana kaus hann forsetaefni. Sjónvarpið hefur haft mikil álirif á stjórnmálasviðinu — til góðs að þvi er fefstir telja. tækni. Fólk situr ekki óslitið við sjón- varpstækin kvöld eftir kvöld lengur, heldur lærir að „skrúfa fyrir“, rétt eins og gerðist með útvarpið á fyrstu árum þess. Efni sjónvarpsins fer einn- ig batnandi, og tilraunir hafa verið gerðar með mjög athyglisverða dag- skrárliði. Sjónvarpið á erindi til Islendinga eins og annara, vegna þess að það er ný tækni, sem er að verða þáttur í daglegu nútímalífi. Það mun hafa sér- staka þýðingu fyrir íslenzk heimili í skar .mdeginu og í dreifbýlinu, þegar þao nær þangað. Loks gefur sjónvarp- ið einstakt tækifæri til þess að halda uppi fræðslu og menningarstarfi. Það gæti vel orðið háskóli, sem næði inn á hvert heimili. Það er að vísu dýrt að færa upp heil leikrit í sjónvarp, en þó ætti að vera viðráðanlegt að færa útvarps- leikritin á svið og sjónvarpa þeim, og vel mætti sjónvarpa heilum leikritum, sem sýnd eru í landinu. En það er hægt að setja saman með miklu minni kostnaði dagskrárliði, sem mundu verða fróðlegir og skemmtilegir. Fréttamenn mundu sjást með kort og myndir til skýringar, fréttakvik- myndir utan úr heimi og viðtöl við fólk, sem kemur við daglegar fréttir. Þá mætti sýna margskonar frétta- kvikmyndir og allt annað, sem nú er kvikmyndað í stórum stíl í landinu. Væri ekki ánægjulegt að sjá kvik- myndir úr óbj^ggðum, úr fjarlægum byggðum, kvikmyndir af atvinnufyr- irtækjum? Erindin í útvarpinu eru ekki öll skemmtileg, þótt flest séu um athygl- isvert efni. En væri ekki munur að geta sýnt muni úr þjóðminja- eða byggðasöfnum, listasöfnum, sýnt (Framh. á bls. 20) 7

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.