Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1954, Qupperneq 9

Samvinnan - 01.03.1954, Qupperneq 9
Sjahlan hefur ein þjóð brotið af sér hlekki ófrelsis eins og Frakkar gerðu i byltingunni. Hér sjdst Parisarbuar rifa niður hið illrœmda fangelsi, Bastille. kölluðum „Guðs dómi“, en til hans taldist m. a. járnburður og fleiri „sönnunaraðferðir“, er meira voru metnar en vitnisburður heyrnar- eða sjónarvotta. Járnburði var sérstak- lega beitt, er sanna skyldi galdur á sakborning. Gæti sakborningur borið eða tekið upp á ákveðinn hátt rauð- glóandi málmstykki, var hann sak- laus. Skorti hann hinsvegar þrek til þess, var hann sekur fundinn. A þrettándu, fjórtándu og fimmtándu öld var þó slíkur „Guðs dómur“ for- dæmdur af páfa, enda véku þessar sönnunaraðferðir smám saman fyrir réttarprófum og vitnisburði. Er tím- ar liðu, varð og lögsaga lénshöfðingj- anna takmarkaðri og háðari þjóð- höfðingjunum. I refsimálum höfðu höfðingjar and- legrar og veraldlegrar stéttar rétt til að láta þjóðþingin dæma mál sín. Refsingar voru mjög mismunandi eftir stöðu og stétt sakbornings. Rétt- arhöld og yfirheyrslur fóru fram fyr- ir luktum dyrum, og hinn ákærði fékk engan verjanda. Auk þess höfðu þjóð- höfðingjar ótakmarkað vald til að skerast í mál á öllum stigum þess og kveða upp dóma, réttláta eða rang- láta, eftir geðþótta. Konungur gat með sérstakri fyrirskipan (lettre de cachet) látið fangelsa hvern og einn án dómsúrskurðar. Hann gat og fellt niður ídæmda refsingu sakbornings. Einnig gat hann frestað málarekstri eftir geðþótta. Gangur dómsmála var ennfremur ákaflega seinn. Þau mál, er dæmast skyldu endanlega af þjóðþingum, höfðu oft áður gengið í gegnum fjög- ur dómstig eða fleiri. Þá var mála- rekstur svo dýr, að fátækir menn gátu eigi náð rétti sínum með aðstoð dóm- stóla. Það var fyrst á síðustu stjórnarár- um Lúðvíks fjórtánda, að hafin var opinber útgáfa á gildandi lögum í landinu. I stjórnarskránni frá 1791 er boðið að gefa út heildarlögbók. Stjórnarskráin frá 1791 grundvall- aðist á fyrstu mannréttindayfirlýs- ingunni frá 1789. Þar komu fram grundvallaratriði, sem höfðu mikil áhrif á löggjöf flestra ríkja heims á nítjándu öld. Mannréttindayfirlýs- ingin frá 1948 byggir að verulegu leyti á þessum sömu grundvallaratriðum. Þessi undirstöðuatriði voru m. a., að enginn skyldi handtekinn án heimild- ar í lögum, og gilti þá ákveðin máls- meðferð. Varðhald, áður en málsrannsókn hófst, var afnumið, þegar um minni- háttar misgerð eða afbrot var að ræða, og lagaheimild var til að láta þá, er sóttir voru í refsimálum, lausa um stundarsakir gegn tryggingu, meðan málaferli stóðu. Eigi var það lengur skjdda sakborninga að sanna sakleysi sitt, heldur hvíldi sönnun- arskylda um sök hans á dómstólun- um. Þá fékk varnaraðili rétt til að velja sér lögfræðing til varnar máli sínu. Á Englandi varð samræmd heildar- löggjöf fyrr til en annarsstaðar í Evr- ópu. Jafnvel enn gilda ákvæði um mannréttindi í enskum lögum, er sett voru á síðari hluta 13. aldar. I ensku Frelsisskránni (Magna Carta) frá 1215 segir m. a., að eng- an frjálsan mann megi handtaka, fangelsa, gera útlægan eða landræk- an eða á nokkurn hátt tortíma nema samkvæmt dómi að landslögum. Þó varð í þessu efni afturför á tímabili. Mannfrelsi og mannhelgi var mjög heft á tímum hinna svokölluðu „Rósa- stríða“ og meðan Tudor- og Stuart- harðstjórnin stóð. Á því tímabili var réttarfar að hinum mestu ólögum. Án stoðar í lögum voru menn dæmdir af ýmiskonar auka-dómstólum. Menn voru neyddir til játningar með mis- þyrmingar- og pyntingartækjum. Ó- lögleg eignaupptaka var algeng og hverskonar yfirtroðslur laga. Parla- mentið reis gegn harðstjórn þessara konunga, en studdi Vilhjálm af Óraníu til valda og setti „Réttinda- skrána“ (Bill of Rights) árið 1689. Á átjándu öld afnumdust með öllu gjörræðisdómar valdhafa og menn urðu aðeins dæmdir eftir lögum landsins af reglulegum dómstólum. í öðrum Evrópulöndum urðu miklar endurbætur í þessu efni vegna áhrifa frá Englandi og Frakklandi. Á dögum landnáms í Vesturheimi ríkti oft og tíðum öryggisleysi og illt réttarfar. Byggðalögin voru einangr- uð hvert frá öðru og risu upp við erfiðar og oft hættulegar aðstæður. Hinir gömlu landnemar voru óstýri- látir og oft yfirgangssamir. Er tímar liðu, sköpuðust lög og réttur á hlið- stæðan hátt og í Vestur-Evrópu. Að öðru leyti varð þróunin sú í mestum hluta heims, að ólög og rétt- leysi þokuðu fyrir lagasetningu og vaxandi mannréttindum. Hið tak- markalausa vald einræðisherranna rénaði, en sanngirni og réttsýni í lög- gjöf jókst. I ýmsum löndum heims er enn í dag grimmúðugt réttarfar, þar sem mannréttindi og mannhelgi eru að engu höfð. Til samanburðar við slíkt er ánægjulegt að minna á nokkur ákvæði í hinni nýju indversku stjóm- arskrá, sem eiga að tryggja borgar- ana gegn ranglátum ofbeldisaðgerð- (Framh. d bls. 20) 9

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.