Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1954, Blaðsíða 13

Samvinnan - 01.03.1954, Blaðsíða 13
Xnn um gluggans gler geisli bjartur fer. Vetrarveðrin dvína, vorsins geislar skína, milduð minning og þrá morgunskíman grá. Hlæjandi geimur grætur gulli um bjartar nætur. VUhjálmur Bergsson. SIÐAPOSTULI. Ég krýp og iðrast við altari drottins eftir lítilvægt atvik, sem alls ekki er synd. Ég horfi á fólkið og hneykslast á því. Það gengur allslaust í útbreiddan faðm augnabliksnautnar og illra siða. En lágvær rödd frá rótum hjartans kvelur mig stöðugt með hvísli sínu. Og loksins veit ég mitt leyndarmál: Mig langar að gera hið sama. Gylfi Gröndal. VÍSUR TIL J. R. Ort af tilefni af kosningu í skóla félaginu Framtíðin. TREGI. Er stormurinn æðir um íslands grund og úthafsins brim sverfur strendur, koma faðir og móðir og staldra um stund og stara út á hið breiða sund; þau standa og haldast í hendur, því sonur þeirra út á sæinn frá þeim hefur siglt. Skyldi hann koma heim eða verða til „Valhallar“ sendur? Haukur Helgason. Hyllum frækinn fullhugann, fremst er sækir snarbrattan menntaklækjamjóstigann. Mjög vel rækir djúphygð hann. Öðrum flestum af hann ber, engum brestum haldinn er, sómamestur, fremstur fer. Fundargestur þetta tér. Erfitt ekki valið var. Vítt um bekki kusu þar formann þekkan Framtíðar fljóð og rekkar alls staðar. ROMANCE. Á vængjum söngsins svíf ég undurhljótt, er sindra norðurljós á vetrarnótt. Og úti í geimnum gimsteina má sjá, er glitra líkt og snjókorn jörðu á. I hugarheimi birtast unaðslönd og ástarbönd, er undi snótin fögur mér við hlið. En svipmyndir, er svífa fyrir skjótt, þær sveiflast, breytast ótt og síðan hverfa út í svartnættið. En töfrablær á bleika mánann slær. I brjósti strengur hjartað snortið fær. Kjósandi A-listans. Arngrímur Sigurðsson. 13

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.