Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1954, Side 14

Samvinnan - 01.03.1954, Side 14
VORKOMA. Vorið kemur, blóm af blundi vakna, blærinn andar þýtt um vanga þinn. Hlær nú sólin, glóa geislaraðir, glitrar dögg, er roðnar kvöldhiminn. Fuglar syngja, fossa lækjasytrur, fjöllin missa hvíta kollinn sinn. Loftið angar, titra þýðir tónar, töfrafegurð hjúpar alheiminn. Þorsteinn Júlíusson. ÆR Hávær stígur þögnin hringdans í höfði mér, hamast þar og ber, svo að missi ég minn sans og vitlaus orðinn er. En úti fyrir argar og sargar ótt og títt á hverju kveldi eilífðin. Poeta anonyma. Við undum við ástmyrkan barm þinn, ó, móðir, alsæl, unz svæfði okkur þrálátur hjartsláttur þungur, þrej^tt og góð. Emil H. Eyjólfsson. SLÁTTUMAÐUR. Daggperlur glitruðu. Á gullþrúðgum morgni gekk hann á teig. Með sláttumannstól og hrífu í hönd í sinn helgidóm steig og horfði til fjallsins, á hlíðar og tinda, á hóla og börð. Þá fann hann sinn guð, hinn eina, er hann átti: íslenzka jörð. Þá fór hann að brýna, en bitið var gott, svo hann byrjaði að slá. Hann sönglaði stef, þegar stilkarnir skárust. Það stirndi á hans ljá. Ur augum hans las ég alla hans daga, hverja einustu stund. Hann var íslenzkur maður með Islendings hjarta á íslenzkri grund. NÆTURLJÓÐ. Ölgandi sarð okkar móður, Jörðina, svartnættið, blóðheitt og mjúkfingrað, þögult og myrkt. Við sátum við niðdimman, sjólaminn vog og sórum. Gullnir lokkar lituðust augnanna blárna, líkaminn varð óstilltur strengur, sem titraði af trega tálsælum, sálin sem vorfönn í blóðugu regni blíðmjúku, bráðin og gljúp og köld, samt gegnumsýrð orku glóðheitri, sem faldi í sér myndina, lagið og ljóðið, listina. Hann sló þarna sífellt. Skini og skúrum skeytti hann lítt, en stundaði verk sitt með lipurð og lagni, sem löngum er títt. Hans treyja var stöguð. 1 íslandi eygð’ann augnarmið sitt. Verkmaður snauði, ég veit ei neitt hlutskipti veglegra en þitt. Urn jörðina þeysir járnbentur dauðinn með jökulgreip og hitti hann að starfi. ■— Nú hvítna hans kjúkur, og köld er hans neip. Þetta er saga svo margra, saga okkar þjóðar. — Og síðar ég fann, að ég sleit mig frá guði, en sló mínu trausti á sláttukóng þann. Kristján Bersi Olafsson. SKÓLAMÁL Þegar vitið hrópar hátt með hyggjugreinum sönnum, lokast eyrun ósjálfrátt á okkar skólamönnum. Jón Thór Haraldsson. ÞESSI KLASSÍSKA ÁSTARSORG. Oftast ber ég létta lund mót ljúfu brosi þínu, en þó er jafnan opin und innst í hjarta mínu. Jón Thór Haraldsson.

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.