Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1954, Page 20

Samvinnan - 01.03.1954, Page 20
stóð stúlkan upp og gekk hljóðlega út úr húsinu, sem í svefni. Hún gekk brosandi til árbakkans. Chienniang var að stíga upp úr bátnum, en Wang Chou hélt á barninu. Hann sá stúlk- una á árbakkanum koma stöðugt nær, og er stúlkurnar tvær mættust, runnu þær saman í einn líkama og klæði Chienniangs urðu tvöföld. Fjölskyldunni varð mikið um, er þernan tilkynnti, að sjúka dóttirin væri horfin. Þegar þau síðan sáu Chienniang stíga niður úr burðar- stólnum, heilbrigða með myndarlegt barn í fanginu, voru þau ekki aðeins glöð, heldur sem steini lostin af undr- un. Þá skildu þau, að andi stúlkunn- ar, hennar sanna persóna, hefði farið með drengnum til að búa með hon- um, því að ástin hafði vængi, sem brutust út úr fangelsinu. Hin sjúka dóttir, sem eftir varð, var aðeins skuggi, líkami án sálar. Þessi saga gerðist árið 692 eftir Krist, og fjölskyldan hélt þessum ein- kennilegu atburðum leyndum. Þegar fram liðu stundir eignaðist Chienn- iang mörg fleiri börn, en hún og Wang Chou lifðu í hamingju til hárrar elli og elskuðu hvort annað meira með hverju ári. Réttlæti og öryggi... (Frh. af bls. 9) um af hálfu ríkisvaldsins. Þar segir meðal annars: Þjóðir Indlands heita því að stjórna Indlandi sem sjálfstæðu og lýðræðislegu lýðveldi og tryggja öll- um borgurum þess: Félagslegt, fjárhagslegt og póli- tískt réttlæti; skoðanafrelsi, mál- frelsi, ritfrelsi og trúfrelsi. Jafnrétti gagnvart lögunum, og jafna aðstöðu til að njóta allra rétt- inda, sem þjóðfélagið hefur yfir að ráða. Ennfremur vill Indland styðja að „bræðralagi“ manna, sem tryggir virðingu fyrir einstaklingnum og ein- ingu þjóðarinnar. Þessi orð sýna vissulega, að mann- réttindahugsjónin hefur fest rætur víða um lönd. Þrátt fyrir allt eru mannréttindi betur og víðar tryggð hjá núlifandi kynslóð en þau hafa áður verið, þótt þeim sé að vísu stöðugt ógnað af ein- ræðisöflum. Sú vernd mannréttinda, sem þeg- ar hefur fengizt, leggur einstakling- um og þjóðum heimsins þá skyldu á herðar að verja þessi réttindi og stuðla að því, að sem flestir menn öðlist þau. Lausl. þýtt af V. Á. Sjónvarpið ... (Frh. af bls. 7) stutta kvikmyndabúta af fjarlægum löndum með erindum? Væri ekki fróðlegt að sjónvarpa gripasýningum eða sýna ný landbúnaðartæki og kynna þau? Það ervinsælt erlendis að sjónvarpa teiknikennslu fyrir börn og unglinga og sýna þeim föndur og handíðir. Slík- ir dagskrárliðir hafa stóraukið áhuga á listum og vísindum. Margt fleira mætti til taka og ofan á allt þetta bætast kvikmyndir ýmis konar til skemmtunar. Sjónvarpstæki eru að vísu dýr enn- þá. En þau hljóta að lækka í verði með tímanum og það verður til lengd- ar ekki til fyrirstöðu almennri út- breiðslu sjónvarpsins hér á landi frek- ar en í öðrum löndum, sem búa þegn- um sínum verri lífskjör en Islendingar njóta. Við verðum að fylgjast með á þessu sviði eins og öðrum — og þá mun þióðinni bætast merkilegt og áhrifarík.' menningartæki. Það þarf ekki lengur efnað fólk tit að eiga sjón- varp, eins og sjá má af loftnetunum á þessum smáíbúðahúsum. r—---------------------------^ Vöxtur sjónvarpsins Nokkra hugmynd má fá um hinn öra vöxt sjónvarpsins í Bandaríkjunum af eftirfarandi töl- um: Sjónvarps- Sjónvarps- stöðvar tæki 1946 ......... 5 8.000 1948 ........ 44 1.000.000 1950 ....... 107 10.500.000 1952 ....... 123 22.210.000 Tala heimila í landinu er um 40 milljónir, svo að annað hvort heimili hefur nú sjónvarp. Leyfi hafa verið veitt fyrir 255 sjón- varpsstöðvum til viðbótar. Litlafell... (Frh. af bls. 6) sem skip verða að fá fjórða hvert ár. Það er 917 þungalestir, 65.6 metra langt, 8.9 metra breitt og er djúprista 4 metrar eða 13 fet. I skipinu er Atlas Polar dieselvél, 725 hestöfl. Losunar- dælur hefur það tvær, sem afkasta um 250 lestum á klukkustund. Olíu- tankar skipsins eru tíu talsins, og það er búið fullkomnustu siglingatækjum. Ibúðir skipverja eru allar hinar vist- legustu, raunar rúmbetri og snotrari en flestir áttu von á í ekki stærra skipi. Skipstjórinn, Bernharð Pálsson, var áður fyrsti stýrimaður á Arnar- felli, og fyrsti vélstjóri, Sigurjón Jó- hannsson, var áður vélstjóri á sama skipi. Fyrsti stýrimaður er Franklín Hólmbergsson og annar stýrimaður Jón Ragnars. Ymsar bollaleggingar voru manna á meðal um nafn þessa nýja skips, þegar það var á leiðinni, og daginn, sem það lá í Reykjavík, undir sænsku flaggi. Þegar nafnið fréttist, heyrðust ýmsir láta þá skoðun í Ijós, að eign- ist sömu aðilar stórt olíuskip, eins og engan veginn er útilokað, sé tilvalið að skíra það Stórafell eða Miklafell. Hvort stjórn Sambandsins og Olíufé- lagsins eru á sama máli, veit að sjálf- sögðu enginn og kemur það vonandi í ljós á sínum tíma. 20

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.