Samvinnan - 01.08.1957, Blaðsíða 25
JÓN KONRÁÐSSON
(Framh. af bls. 6)
Jón Konráðsson, bóndi í Bæ
á Höfðaströnd hafði verið í
stjórn kaupfélagsins síðan 1920
og stjórnarfomiaður síðan 1922.
Hann hafði óbilandi trú á gildi
samvinnunnar og var gjörkunn-
ugur öllu, sem að kaupfélag-
inu laut.
Jón var fæddur 3. nóvember
1876 í Bæ á Höfðaströnd. Bær
stendur út við Höfðavatnið
þar sem Jóhann skáld Sigur-
jónsson ráðgerði stórútgerðar-
höfnina. Foreldrar Jóns voru
Konráð hreppstjóri Jónsson og
kona hans Ingibjörg Gunn-
laugsdóttir. Jón naut ekki
skólamenntunar, en aflaði sér
haldgóðrar þekkingar með
sjálfsnámi. Hann fór fljótlega
að láta til sín taka í félagsmál-
um, enda hlóðust á hann marg-
vísleg trúnaðarstörf fyrir
hreppsfélagið og kaupfélagið.
Jón tók við hreppsstjóm árið
1904. Hann var lengi formaður
fastejignanefndar Skagafjarðar
og formaður Búnaðarsambands
Skagfirðinga. Jón var kvæntur
Jófríði Björnsdóttur frá Gröf á
Höfðaströnd.
Kirkjan í Gröf...
(Framh. af bls. 8)
nýju viðir voru sniðnir nákvæmlega
eins og hinir eldri höfðu verið. Nú
er kirkjan því eins og hún var áður,
nema í örfáum smáatriðum, sem
skýrt er frá jafnóðum í lýsingu kirkj-
unnar hér á eftir. Endurbyggingunni
var að fullu lokið 1953.
Lýsing kirkju, kirkjugri'pa
og kirkjugarðs.
Grafarkirkja stendur á sínum foma
gmnni. Stóð hún sunnan við bæinn,
sem nú er búið að rífa. Nýja stein-
húsið var byggt allmiklu neðar, og
eru enn peningshús á gamla bæjar-
stæðinu.
Kirkjan er torfkirkja, en eins og
önnur slík hús er hún að verulegu
leyti byggð úr timbri, þó að mikið
beri á torfinu hið ytra. Veggir em
1,5 m þykkir, hlaðnir úr strengjum,
ytri brún þeirra 1,20 m á hæð, en
innri brún 1,70 m. Þakið er kross-
reist, torf yzt, en milli torfs og súðar
er nú skotið bámjámi, sem ekki sést,
en ver kirkjuna leka. Stafnar báðir
eru úr lóðréttum borðum yfirnegld-
um, 3,5 sm þykkum og 19,5 sm
breiðum, og standa lausholtin fram
úr stöfnunum. Breið fjöl er um
stafna þvera neðarlega þeim til
styrktar. Hurðin er eins smíðuð og
stafnamir, úr yfimegldum fumborð-
um. A henni em jám nýsmíðuð og
ekki gerð eftir neinum fyrirmyndum.
Hurðarhringur úr messing er einnig
nýr, en hann er nákvæm eftirlíking
eftir hring, sem nú er í þjóðminja-
safni. Þann hring eftirlét Sigurhjört-
ur Jóhannesson, bóndi á Urðum í
Svarfaðardal, Andrési forngripasafn-
ara Johnson, og kvað hringinn til sín
kominn vestan úr Skagafirði og hafa
verið þar í kirkjuhurð í Gröf.
Tveir tveggja rúðna gluggar eru
á hvomm stafni kirkjunnar, 23X40
sm að stærð (gluggar þessir voru
stækkaðir um helming við endur-
bygginguna), en á hvom bjórþili einn
örsmár gluggi efst, og em þá ekki
fleiri gluggar á kirkjunni. Á vestur-
stafni eru skrautlega útskomar vind-
skeiðar, nákvæmlega gerðar eftir
þeim vindskeiðum, sem áður voru,
en þær vora nú orðnar svo máðar af
elli og útivist, að ekki var viðlit að
nota þær aftur. Upp af burstinni er
vindhani, útskorinn í sama stíl og
vindskeiðarnar, og á honum tölu-
stafirnir 1, 6 og 7, og vantar aðeins
einn staf í ártal, sem gamlir menn
muna, að verið hafi á vindhana, sem
eitt sinn var á kirkjunni. Síðasta
stafinn muna þeir ekki, né heldur
gerð vindhanans, og er hann saminn
í stíl við annan útskurð í kirkjunni.
Ártal þetta bendir til, að endurbót
eða skreyting kirkjunnar hafi farið
fram á ámnum 1070—80. Vindskeið-
ar á austurstafni em með sama út-
sniði og á vesturstafni, en enginn út-
skurður á. Gömlu vindskeiðamar
vom alveg sléttar og óskreyttar.
Að innanmáli er kirkjan 6,25 m að
lengd og 3,21 m að breidd, í fjómm
stafgólfum, vegghæð 1,72 m, en hæð
undir mæni 3,46 m. Kirkjan virðist
sýnilega byggð eftir hinni fornu „ad
quadratum“ meginreglu, breidd og
lengd í hlutfallinu 1:2.
Innsta stafgólfið er kór kirkjunn-
ar. Milli kórs og kirkju er milligerð.
Norðan kórdyra skiptist hún með
breiðum, láréttum borðum í þrjú bil,
sem í tveimur hinum neðri eru spjöld
samfelld, en í hinu efsta 6 heilir og
tveir hálfir pílárar, útsagaðir og
grænmálaðir, og er þetta hið eina í
kirkjunni, sem ekki ber trélit.
Ætli sjúklingurinn sé ekki búinn að borða of
marga banana — hann er farinn að láta eins og api!
Ferguson léttir bústörfin allt árið
SAMVINNAN 25