Samvinnan - 01.03.1959, Blaðsíða 10
Börnin bera byssur og syngja: ,.Við mun-
um gera Taiwan að lýðveldi og drekkja
amerískum árásarseggjum." Ljósmynd-
imar tók hinn frægi franski ljósmyndari,
HENRI CARTIER-BRESSON.
— ★ —
Kínverskir kommúnistar
hafa skipt landinu í
kommúnur, þar sem
fjölskyldu- og heimilislíf er
afnumið og eignaréttur
einstaklingsins þurrkaður út
— ★ —
HVAÐ ER AÐ GERAST I KINA?
Kínverjar voru orðnir menningarþjóð
um 2000 árum fyrir upphaf tímatals okk-
ar. Þeir fundu upp púðrið fyrir Krists
burð og prentlistina nokkru seinna. Þeir
lifðu í friðsælu samfélagi eftir lífsspeki
Konfúsíusar og voru óáleitnir við aðr-
ar þjóðir. Rótgróin forfeðradýrkun ásamt
innilokunarstefnu gerði það að verkum,
að þeir urðu aftur úr í þróuninni. Með-
an aðrar þjóðir tileinkuðu sér vísindi
og hverskonar framfarir, gekk lífið sinn
vana gang í Kína, eins og það hafði gert
í áraþúsundir. Fólkinu fjölgaði alltof
mikið, en alvarlegur skortur var á flest-
um efnislegum gæðum. Þjóðin var
varnarlaus fyrir drepsóttum, flóðum og
hverskonar plágum.
Auðvelt er að gera sér grein fyrir því,
að Kína var hinn ákjósanlegi akur fyr-
Konur og karlar vinna sleytulaust á
akrinum 7 daga í viku. Öðru hvoru er
gert hlé á vinnunni til heræfinga.
ir kommúnismann eins og allt var þar
í pottinn búið. Árangurinn hefur orðið
eftir því sem búast mátti við, svo jafn-
vel föðurlandi kommúnismans, Rúss-
landi, stendur nokkur stuggur af.
í hinu stórmerka blaði LIFE inter-
national, frá 16. febrúar í vetur, er skil-
merkileg grein um þessi mál og fylgja
henni margar ágætar Ijósmyndir eftir
hinn þekkta, franska ljósmyndara
Henri Cartier-Bresson. LIFE hefur ekki
orð á sér fyrir slúðurfréttir og því síð-
ur VI, vikublað sænskra samvinnu-
manna, sem flutti mjög svipaða grein
6. des. 1958. Þar sagði greinarhöfundur-
inn, Thor Brunius, að Rússar væru
smám saman að nálgast kapitalismann,
en Kínverjar væru að framkvæma hinn
sanna kommúnisma.
LIFE styðst við frásögn tveggja
flóttamanna og frásagnir sjónarvotta,
sem hafa átt þess kost að sjá með eig-
in augum austur þar. Á vissan hátt hef-
ur verið unnið stórvirki, en hvað hafa
borgararnir greitt fyrir það? Þeir hafa
greitt með persónufrelsi sínu og eru nán-
ast ánauðugir þrælar.
Kommúnistastjórnin ákvað s.l. vor
nýtt skipulag. í stað samyrkjubúa, var
í tilraunaskyni sett á laggirnar KOMM-
ÚNAN, Spútnik, sem þeim þótti gefast
svo vel, að öllu landinu hefur nú verið
skipt í þessháttar samfélög. 120 milljón
bændafjölskyldur í Kína hafa verið
reknar frá öllum sínum eigum og safn-
að saman í 26 þúsund kommúnur, sem
vinna eingöngu fyrir ríkið og lúta hörð-
um heraga.
Um leið og einstaklmgurinn gengur í
kommúnuna — en það er hann auðvit-
að skyldugur til að gera — missir hann
allar eigur sinar. Fjölskyldur eru leyst-
ar upp. Karlar búa í sérstökum skálum
og konur í öðrum. Börn eru tekin af
mæðrum og ríkið annast uppeldi á þeim
í anda kommúnismans. Þeir sem eru
vinnufærir þræla myrkranna á milli
undir heraga og launin, sem ríkið greið-
ir þeim, nema frá 10—30 ísl. kr. á mán-
uði. Aftur á móti sér kommúnan fólk-
inu fyrir bómullarfötum til að vinna í,
en vinnudagar eru 7 í viku. Kommúnan
sér fólkinu einnig fyrir mat og húsnæði
og allur skarinn borðar við sameiginleg
borð. Frí er aðeins, þegar fyrirlesarar
kommúnistastjórnarinnar eru á ferð-
inni. í stuttu máli sagt: Þrælabúðir án
minnstu mannréttinda.
Af einhverjum ástæðum hefur komm-
únistastjórnin frestað framkæmd þess-
arar stefnu í hinum stóru borgum Kina,
um óákveðinn tíma, en haft er fyrir satt,
að mótstaðan þar sé gífurleg og verði
mun erfiðara að ná þrælatökunum þar.
Sögumaður LIFE, Chang-Hsi-Lan, var
meðlimur í kommúnu, þar til honum
heppnaðist að flýja í nóvember í haust.
Chang er 23 ára og átti heima í Suð-
ur-Kína. Faðir hans var fiskimaður. en
þegar kommúnistar komu til valda í
Kina, tóku þeir af honum bátinn og til-
kynntu honum, að hann ætti að verða
bóndi. Stjórnin úthlutaði honum land-
skika og honum var sagt að rækta hrís-
grjón og sykur. Litlu síðar var landið
tekið af honum og honum sagt, að nú
tilheyrði hann samyrkjubúi. Árin, sem
fóru í hönd voru ekki svo slæm og fjöl-
skyldan bjó í kofa og hafði nægilegt að
borða. Þar voru foreldrar Changs og
bróðir hans, sem átti konu og tvö börn.
í febrúar 1958 kom í þorpið kommún-
isti að nafni Lee Tak. Batt hann endi á
friðsæla daga í þorpinu og varð brátt
almennt hataður. Þessi heiðursmaður
boðaði til fundar og tilkynnti, að mynda
ætti kommúnu úr þorpinu ásamt 19 öðr-
um þorpum. íbúamir litu hver á ann-
an. Enginn vissi, hvað kommúna var,
en Lee skýrði það fyrir þeim: „Þið seljið
kommúnunni allar eigur ykkar og svo
þurfið þið ekki að hafa áhyggjur af
SAMVINNAN